Ótrúlegt taktleysi hjá hluthöfum HB Granda

sjavarutvegur.jpg
Auglýsing

Það dylst engum sem fylgst hefur  með deilum um kaup og kjör á vinnu­mark­aði, að sjaldan eða aldrei hefur staðin verið erf­ið­ari viður­eignar en nú. Verka­lýðs­hreyf­ingin krefst meiri en 20 pró­sent hækk­unar á launum þvert yfir öll stétt­ar­fé­lög, og mestrar hækk­unar hlut­falls­lega hjá þeim sem hafa lægstu laun­in.

Ýmis­legt hefur leitt til þess að kröf­urnar eru tölu­vert mikið hærri en sam­tök atvinnu­lífs­ins og stjórn­völd telja sig geta mætt, en lík­lega eru ákvarð­anir stjórn­valda að und­an­förnu áhrifa­rík­asti þátt­ur­inn. Stjórn­völd ákváðu að gefa sumu fólki sem skuldar verð­tryggð hús­næð­is­lán,  80 millj­arða króna úr rík­is­sjóði og síðan skömmu síðar voru laun lækna hækkuð um meira en 20 pró­sent. Allt hefur þetta ýtt undir vænt­ingar um að hækka laun mynd­ar­lega, enda eru stjórn­völd óbeint að segja að nóg sé til af pen­ingum í rík­is­kass­an­um, þegar það er hægt að gefa fólki tugi millj­arða króna, óháð því hvort það þurfi á pen­ing­unum að halda.

En það er fleira sem grefur undan mögu­leik­anum á því að ná samn­ing­um. Stjórn­endur og ráð­andi hlut­hafar margra af stærstu fyr­ir­tækjum bera mikla ábyrgð, enda hafa þeir sýnt mikið ábyrgð­ar­leysi að und­an­förnu með ákvörð­unum um launa­hækk­anir hjá stjórn­endum og stjórn­ar­mönn­um. Aðal­fundur HB Granda ákvað að hækka laun stjórn­ar­manna um 33,3 pró­sent, en á sama tíma telja hags­muna­sam­tök atvinnu­rek­enda að ekki sé hægt að hækka laun fólks­ins á gólf­inu um meira en 3,5 til fimm pró­sent.  Hvers vegna ætli það sé? Ekki er hægt að segja annað en að þetta sé köld vatns­gusa framan í verka­lýðs­hreyf­ing­una, og stjórn­völd í leið­inni, á versta mögu­lega tíma í nán­ast for­dæma­lausum deilum á vinnu­mark­aði. Hlut­hafar HB Granda, sem hafa ekki síst notið góðs af lágu gengi krón­unnar og mak­ríl­veiðum und­an­farin ár, sýndu takt­leysi með því að hækka launin hjá stjórn­ar­mönnum þetta mikið á þessum tím­um, nema að þeir ætli að láta fólkið á gólf­inu njóta sam­bæri­legra launa­hækk­ana. Það verður að telj­ast mjög ólík­legt.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None