Rof milli skynjunar og raunveruleika hjá Samfylkingunni

16687912498_270dd2aa3a_c.jpg
Auglýsing

Sam­fylk­ingin er stjórn­mála­afl í mik­illi bar­áttu fyrir til­veru sinni. Aug­ljóst er að mikil inn­an­flokksá­tök eiga sér stað milli fylk­inga um hver eigi að stýra flokkn­um. Þau komu ber­sýni­lega fram þegar áhrifa­hópur flokks­manna fylkti sér á bak­við Sig­ríði Ingi­björgu Inga­dóttur á lands­fundi flokks­ins í mars, þar sem hún var einu atkvæði frá því að steypa sitj­andi for­manni, Árna Páli Árna­syni, af stóli. Nýverið var síðan lögð fram til­laga í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins þess efnis að flýta ætti lands­fundi svo hægt verði að kjósa nýja for­ystu, um 100 dögum eftir að ný for­ysta var kos­in.

Á sama tíma og þessar deilur eru að opin­ber­ast heldur fylgi flokks­ins á lands­vísu áfram að hverfa. Sam­fylk­ingin beið afhroð í alþing­is­kosn­ing­unum 2013 og mælist nú með svipað fylgi og Alþýðu­flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­unum sín­um áður en hann rann inn í Sam­fylk­ing­una, þegar Alþýðu­flokk­ur­inn ­fékk 11,4 pró­sent atkvæða. Hin fram­boðin sem buðu fram 1995, en gengu síðar til liðs við Sam­fylk­ing­una (Al­þýðu­banda­lag­ið, Þjóð­vaki og Kvenna­list­inn), fengu sam­tals 26,4 pró­sent atkvæða í þeim kosn­ing­um. Sam­an­lagt fylgi þeirra stjórn­mála­flokka sem mynd­uðu Sam­fylk­ing­una var því 37,8 pró­sent áður en hún var mynd­uð. Flokk­ur­inn hefur aldrei náð slíku fylgi í kosn­ingum og mælist nú með 11,4 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu könn­un.

Árni Páll sagði í nýlegu útvarps­við­tali að það væri áfell­is­dómur yfir honum sjálfum og Sam­fylk­ing­unni að fólk líti ekki á flokk­inn sem vett­vang fyrir „hug­mynda­lega nýsköpun á vett­vangi íslenskra stjórn­mála". Hann sagði að flokk­ur­inn væri ekki hluti af fjór­flokknum né kerf­is­flokkur heldur umbóta­hreyf­ing sem hafi barist um með hæl og hnakka fyrir opnu sam­fé­lagi, auknu lýð­ræði, Evr­ópu­sam­bands­að­ild og stjórn­kerf­isum­bót­um. Allir þessir þættir eru mjög ráð­andi á meðal áherslna kjós­enda sem vilja ekki kjósa fjór­flokk­inn svo­kall­aða.

Auglýsing

Að mati Árna Páls eru kjós­endur því að upp­lifa Sam­fylk­ing­una á annan hátt en hún er. Það mætti segja að hann haldi að það sé rof milli skynj­unar og raun­veru­leika hjá kjós­end­um. Þeir sjái ein­fald­lega ekki hvað Sam­fylk­ing sé frábær.

Að mati Árna Páls eru kjós­endur því að upp­lifa Sam­fylk­ing­una á annan hátt en hún er. Það mætti segja að hann haldi að það sé rof milli skynj­unar og raun­veru­leika hjá kjós­end­um. Þeir sjái ein­fald­lega ekki hvað Sam­fylk­ing sé frá­bær.

Í bak­her­ber­berg­inu hefur þessi sýn for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar verið mikið til umræðu að und­an­förnu. Þar er rætt um nokkur aug­ljós atriði sem fælt hafa fólk sem vill „hug­mynda­fræði­lega nýsköpun á vett­vangi íslenskra stjórn­mála“ frá flokkn­um. Þar ber að nefna ofurá­herslu á inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið sem lausn á nán­ast öllum vanda­málum íslenskrar þjóð­ar, meint svik Árna Páls í stjórn­ar­skrár­mál­inu og lítil tengsl við þá nán­ast for­dæma­lausu stétt­ar­bar­áttu og vinnu­mark­aðs­deilur sem riðið hafa yfir íslenskt sam­fé­lag und­an­farin miss­eri.

For­ysta flokks­ins liggur undir ámæli fyrir að vera „Epal-kommar“, elíta sem er ekki í neinum tengslum við þá kjós­endur sem flokk­ur­inn vill í orði ná til. Sam­fylk­ingin er því að glíma við nákvæm­lega sömu til­vist­ar­kreppu og hinir kerf­is­flokk­arn­ir. Lausa­fylgið svo­kall­aða, sem vill breytt stjórn­kerfi, beinna lýð­ræði og sann­gjarn­ara sam­fé­lag, lítur á þá alla sem hluta af vanda­mál­inu frekar en hluta af lausn­inni. Rofið marg­fræga virð­ist vera mun meira hjá stjórn­mála­mönn­unum frekar en kjós­end­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None