RÚV hefur komið fyrir í 300 ritstjórnargreinum Morgunblaðsins frá 2009

15811520029_71ddca3522_c.jpg
Auglýsing

Þann 24. sept­em­ber næst­kom­andi verða liðin sex ár frá því að þeir Har­aldur Johann­essen, fyrr­ver­andi rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins, og Davíð Odds­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tóku við sem rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins.

Á þeim tíma hafa rit­stjórar blaðs­ins fundið RÚV, eða Rík­is­út­varp­inu eins og þeir kalla iðu­lega félag­ið, flest til for­áttu. Það hefur blasað við flestum sem fylgj­ast með umræð­unni, að Morg­un­blaðið hefur haft horn í síðu RÚV á und­an­förnum árum, og þá sér­stak­lega eftir að Davíð og Har­aldur tóku við sem rit­stjórar blaðs­ins.

Einn fasta­gestur í bak­her­berg­inu gerði það að gamni sínu á dög­unum að fletta upp orð­inu Rík­is­út­varp* í greina­safns­leit­ar­vél Morg­un­blað­ins á net­inu. Tíma­bilið sem var undir var frá 25. sept­em­ber 2009 til dags­ins í dag og hakað var skil­merki­lega við rit­stjórn­ar­greinar. Um er að ræða Reykja­vík­ur­bréf, Stak­steina og leið­ara Morg­un­blaðs­ins.

Auglýsing

Sam­kvæmt leit­ar­vél Morg­un­blaðs­ins hefur orðið Rík­is­út­varp komið fyrir í 300 rit­stjórn­ar­greinum á tíma­bil­inu. Þó rit­stjór­arnir nefni aldrei aftur Rík­is­út­varpið á nafn fram að sex ára rit­stjóra­af­mæl­inu í þann 24. sept­em­ber næst­kom­andi, hefur þeim samt tek­ist að minn­ast á RÚV að með­al­tali 50 sinnum á ári, eða næstum einu sinni í viku. ­Síð­asta rit­stjórn­ar­greinin þar sem minnst er á rík­is­fjöl­mið­il­inn ­leit dags­ins ljós í fyrra­dag, en þar eru vinnu­brögð frétta­stofu RÚV gagn­rýnd.

Í bak­her­berg­inu vakti fjöldi rit­stjórn­ar­grein­anna nokkra athygli, þó fjöld­inn hafi ekki endi­lega komið konum og körlum þar á óvart. Þá var ekki ráð­ist í vís­inda­lega rann­sókn í bak­her­berg­inu á því hvort almennt væri um að ræða nei­kvæðar greinar í garð RÚV, en aug­ljóst væri að rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins hefðu mik­inn áhuga á RÚV. Svo ekki væri fastar að orði kveð­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None