Stéttlaust réttarríki - ganga lögmenn lengra fyrir bankamenn?

H--stir--tturVef-715x320.jpg
Auglýsing

Að und­an­förnu hafa reyndir lög­menn marg­ít­rekað gagn­rýnt Hæsta­rétt fyrir dóms­nið­ur­stöð­ur, einkum og sér í lagi þegar kemur að málum sem tengj­ast banka­málum og banka­hrun­inu. Þetta hefur til dæmis gerst í inn­herja­svika­máli og nú síð­ast í umfangs­mesta efna­hags­brota­máli sem leitt hefur verið til lykta í Hæsta­rétti, hinu svo­kall­aða Al Thani máli. Í það minnsta fjórir lög­menn hafa tjáð sig end­ur­tekið um það mál og gagn­rýnt dóm Hæsta­réttar harð­lega. Um hags­muna­tengslin í því, hefur verið fjallað áður á vett­vangi Kjarn­ans, og ekki ætl­unin að gera það að umtals­efni að þessu sinni.

Það sem vekur athygli í þessum málum sem tengj­ast glæpum banka­manna, sem stað­festir hafa verið með dómum í Hæsta­rétti, er að sumir lög­menn virð­ast vera mun frekar til­búnir að tjá sig og gagn­rýna Hæsta­rétt þegar banka­menn eiga í hlut. Það sama má reyndar segja um suma fjöl­miðla, sem virð­ast ein­hverra hluta vegna horfa með allt öðrum augum á mál, þegar banka­menn og fjár­festar eru ann­ars vegar heldur en fólk úr öðrum stétt­um.

Banka­menn og fjár­festar eru ekk­ert merki­legri en annað fólk. Það er áhuga­vert sið­ferði­legt mál fyrir lög­menn að hugsa um, og ræða, hvort það geti ekki veikt til­trú almenn­ings á því grund­vall­ar­at­riði, að allir séu jafnir fyrir lög­un­um, þegar lög­menn virð­ast vera til­búnir að ganga mun lengra í þjón­ustu sinni fyrir banka­menn og fjár­festa en fólk úr öðrum stétt­um.

Auglýsing

Annað er líka það, sem sjaldan er rætt um, að mörg mál sem koma inn á borð dóm­stóla eru mun flókn­ari og erf­ið­ari við­fangs fyrir dóm­stóla, heldur en mál­efni sem tengj­ast við­skipt­um. Oft­ast nær er það svo, að frum­gögn eru til um við­skipt­in, allt niður í nákvæm gögn um fjár­magns­hreyf­ingar og sam­skipti sem skýra þær sömu­leið­is.

Í marg­breyti­legum ofbeld­is­mál­um, svo dæmi sé tek­ið, er oft á tíðum afar erfitt að átta sig á því hvernig mála­vextir voru, og vitni stundum eng­in. Í þeim aðstæðum reynir mjög á dóm­ara, sem taka síðan að lokum afar erf­iðar ákvarð­an­ir, oft gegn ein­dreg­inni neitun þeirra sem sak­aðir eru um grafal­var­lega glæpi.

Eftir að dómar falla í  þeim málum þar sem sekt er sönn­uð, þá fá þeir sem dæmdir eru yfir­leitt ekki for­síð­urnar end­ur­tekið til þess að afsaka sig, og fjölda lög­manna til að styðja sig í því. Enda er það ein­kenni­legt og felur slíkt í sér óvirð­ingu gagn­vart hinum end­an­lega dómi í mál­inu, og þolendum glæpanna. Í það minnsta að mati ein­hverra.

Það er eðli­lega hægt að deila um dóma og refs­ing­ar. Það á ekki síst við um þegar fólk er sent í fang­elsi, og ætlað að breyt­ast til hins betra og læra af mis­tökum sín­um. Það er ekki aug­ljóst að sú verði raun­in, eins og dæmin sýna, og ekki víst að sagan eigi eftir að dæma fang­elsi sem bestu stað­ina fyrir margt fólkið sem þangað er sent.

Þó lög­menn séu í fullum rétti, þegar þeir tjá sig um dóma og mál sem koma inn á borð dóm­stóla, þá mega þeir ekki gleyma því að rétt­ar­ríkið er stétt­laust. Fram­ganga þeirra ætti ávallt að taka mið af því.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None