Stjórnmálamenn lofa upp í ermina á sér

fors..umynd_..kr_.fuhafast.ff_.jpg
Auglýsing

Eitt af því sem var umdeilt á kjör­tíma­bil­inu frá 2009 til 2013 var fjár­fest­inga­á­ætlun þáver­andi rík­is­stjórn­ar, þar sem gert var ráð fyrir tug­millj­arða fjár­fest­ingum í ýmsum verk­efnum víða um land­ið, meðal ann­ars vega­fram­kvæmd­um. Stóð til að fjár­magna þessi verk­efni með veiði­gjöldum meðal ann­ars. Áætl­unin náði tölu­vert langt inn í fram­tíð­ina, en hún var kynnt sér­stak­lega, árið 2012, fyrir árin 2013 til 2015.

Skemmst er frá því að segja, að þessi fjár­fest­inga­á­ætlun varð ekki að veru­leika, og var raunar slegin af nán­ast í heilu lagi um leið og ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var tekin við, eftir kosn­ing­arnar 2013.

Í dag var blaða­manna­fundur þar sem greina mátti svipuð stef, þegar rætt var um hús­næð­is­mála­flokk­inn og fleira. Orð­rétt segir m.a. í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni: „Stefnt er að því að byggja  2.300 íbúðir á árunum 2016-2019, að hámarki 600 íbúðir á ári. Að því loknu verður metin þörf fyrir frek­ari upp­bygg­ingu félags­lega hús­næð­is­kerf­is­ins til fram­tíð­ar. Áhersla verður á íbúðir af hóf­legri stærð og að tryggð verði félags­leg blöndun í leigu­í­búð­un­um.“

Auglýsing

Það er eins og stjórn­mála­menn gleymi því stund­um, að allt þeirra starf markast af fjár­heim­ildum í fjár­lögum ár hvert, og síðan póli­tísku umboði. Í þess­ari til­kynn­ingu er rík­is­stjórnin að kynna mögu­lega útgjalda­liði á fjár­lögum á árunum 2017, 2018 og 2019. Þetta kall­ast að lofa upp í erm­ina á sér, enda alls óvíst að þessi áform geti orðið að veru­leika. Það eru t.d. kosn­ingar vorið 2017 og því allt eins víst að þessi hús­næð­is­stefna rík­is­stjórn­ar­innar verði jafn mark­laus og fjár­fest­inga­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar þar á undan reynd­ist vera þegar upp var stað­ið. Þrátt fyrir að í báðum til­fellum hafi stjórn­mála­menn baðað sig í kast­ljósi fjöl­miðla - að því er virð­ist í kosn­inga­ham.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None