Taglhnýtingar þétta raðirnar

Úlfar Þormóðsson svarar hér svargrein Guðmundar Andra Thorssonar við hans eigin skrifum og segir Úkraínu orðna markaðstorg vopnaframleiðenda á meðan að leiðtogar Nató-ríkja „þétti raðirnar“ með framsali Kúrda til Tyrklands.

Auglýsing

„Um alla Evr­­ópu hafa lýð­ræð­is­­sinnar og mann­rétt­inda­­sinnar verið að end­­ur­­skoða afstöðu sína til varn­­ar­­mála og þjóð­­irnar hafa þétt rað­­irnar …“ skrifar Guð­mundur Andri Thors­son fyrr­ver­andi alþing­is­maður í kát­legri grein í Kjarn­an­um.

Á meðan „lýð­ræð­is­­sinnar og mann­rétt­inda­­sinn­ar“ voru að þétta rað­irn­ar, hélt stríð í Úkra­ínu áfram; Rússar lögðu byggðir í rúst og drápu fólk. Nató sendi vopn af margri gerð þangað austur fyrir fólkið að verja sig og drepa Rússa. Morg­un­blaðið flutti fréttir frá víg­stöðv­unum á bls 11 þann 29.06.´22. Þar segir að átökin séu engu lík­ari en „til­rauna­svæði fyrir vopn - Stríð­andi fylk­ingar not­ast við fjöl­breytta flóru vopna á átaka­svæðum Úkra­ínu - Allt frá hátækni­vopnum yfir í óná­kvæmar sprengjur - Banda­rískur árás­ar­dróni hefur nú vakið athygli Frakk­lands“.

Sum sé: Stríðið í Úkra­ínu er mark­aðs­torg vopna­fram­leið­enda.

Auglýsing

Og meðan hers­höfð­ingjar Nató veltu vöngum yfir gæðum vopna sinna og ann­arra, keyptu þetta og seldu hitt, fund­uðu stjórn­mála­menn­irnir þeirra í Madrid á Spáni. Þeir sömdu við Tyrk­lands­for­seta. Hann galt jáyrði við því að Sví­þjóð og Finn­land fengju að ganga í Nató gegn því að hann fengi senda til Tyrk­lands þrjá­tíu og þrjá kúrdíska flótta­menn sem búið hafa, og búa, í Sví­þjóð og Finn­landi. Og „lýð­ræð­is­­sinnar og mann­rétt­inda­­sinn­ar“ frá Norð­ur­löndum sögðu já, já. Þeir eru að þétta rað­irn­ar.

Vef­mið­ill­inn fretta­bla­did.is skýrir þetta nánar og segir að löndin tvö muni skil­greina kúrdíska stjórn­mála­flokk­inn PKK sem hryðju­verka­sam­tök og taka til greina fram­sals­beiðnir Tyrkja um grun­aða hryðju­verka­menn á sænskri og finnskri grundu. Þá verði vopna­sölu­banni til Tyrkja aflétt og strang­ari hryðju­verka­lög­gjöf komið á í báðum lönd­un­um. 

Þið eruð að þétta rað­irnar „lýð­ræð­is­­sinnar og mann­rétt­inda­­sinn­ar“, Guð­mund­ur. 

Fram­sal á 33 Kúr­dum til líf­láts í Nató-­rík­inu Tyrk­landi. Þið eruð að þétta rað­irn­ar!

Höf­undur er rit­höf­und­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar