Þegar pissið í skónum þornar þá étur Leiðréttingin sjálfa sig

dog.pees_.on_.man_.jpg
Auglýsing

Á þriðju­dag birt­ist for­síðu­frétt á Frétta­blað­inu þar sem sagt var að verð­tryggð hús­næð­is­lán, sem eru rétt um 1.200 millj­arðar króna, myndi hækka mikið vegna verð­bólgu sem kjara­samn­ingar gætu leyst úr læð­ingi. Þar var rætt við Ásgeir Jóns­son, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, sem sagði að verð­bólga muni éta upp skulda­nið­ur­færslu rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Í frétt­inni var haft eftir Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra, og guð­föður Leið­rétt­ing­ar­inn­ar, að því meiri sem verð­bólgan yrði, því meira myndi muna um að skulda­nið­ur­fell­ingin hefði átt sér stað. Fáir skildu þessa skýr­ingu og því var ráð­ist í það næstu daga að útskýra hana.

Tveir hirð­menn for­sæt­is­ráð­herra skrif­uðu greinar í þeim til­gangi og reyndu sömu­leiðis að leið­rétta þann mis­skiln­ingi að verð­bólgan éti upp Leið­rétt­ing­una.

Auglýsing

Fyrst skrif­aði Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, grein á blogg­sóðu sína þar sem hann sagði að verð­bólga hækki það sem búið sé að taka í burtu. „Sá hluti lána sem búið er að færa niður bæt­ist ekki á aft­ur. Því er það rangt að tala um að verð­bólga éti upp leið­rétt­ing­una. Ávinn­ing­ur­inn af leið­rétt­ing­unni heldur gildi sín­u.“

Tveimur dögum síðar birt­ist grein eftir Sig­urð Má Jóns­son, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þar sem hann segir það alrangt að verð­bólga éti upp skulda­nið­ur­fell­ingar rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Þvert á móti, það munar enn meira um Leið­rétt­ing­una eftir því sem verð­bólgan er hærri“.

Í Bak­her­berg­inu hafa menn klórað sér fast í hausnum yfir þessum full­yrð­ing­um. Vissu­lega er það svo að aukin verð­bólga sem gæti komið til vegna gerð kjara­samn­inga mun ekki eyða þeim 80 millj­örðum króna sem sumir með verð­tryggð lán fengu gef­ist úr rík­is­sjóði.

En Leið­rétt­ingin sjálf skapar verð­bólgu sem hækkar lán þeirra sem fengu gef­ins pen­ing, og reyndar allra hinna líka, sem eru með verð­tryggðar skuldir en fengu ekk­ert. Um þetta eru allir grein­ing­ar­að­ilar sam­mála að sé þegar farið að ger­ast, óháð því hvort kjara­samn­ingar losi um verð­bólgu­draug­inn. Það er búið að pissa í skó­inn og tíma­bundna vellíð­un­ar­til­finn­ingin sem heitt hlandið skap­aði ent­ist skammt. Eftir stendur hópur fólks í hland­blautum skóm með hækk­andi lán vegna Leið­rétt­ing­ar­inn­ar. Miðað við mæl­ingar á fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir að Leið­rétt­ing­unni var hrint í fram­kvæmd þá er hóp­ur­inn sem fékk hana ekk­ert sér­lega ánægður með nið­ur­stöð­una.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None