Þessu þarf öllu að breyta!

Pétur Henry Petersen
Reykjavik_Haskoli_Islands.jpg
Auglýsing

Háskóli Íslands stendur á tíma­mót­um. Rektor verður kos­inn mánu­dag­inn 20. apr­íl. Sitj­andi rektor hefur setið í 10 ár þ.e. frá 2005. Á þeim tíma setti skól­inn sér þá frekar óraun­hæfu stefnu að verða einn af 100 bestu skólum heims – og svo hvolfdi þjóð­ar­skút­unni! Sú staða sem þá mynd­að­ist hefur verið gríð­ar­leg áskorun fyrir háskóla­sam­fé­lag­ið, sem sitj­andi rektor og aðstoð­ar­rektor hafa á margan hátt unnið ágæt­lega úr. HÍ er þó alls ekki full­kom­inn skóli, mjög margt þarf að bæta. Margt af því er afleið­ing fjár­skorts (HÍ er alvar­lega und­ir­fjár­magn­að­ur) en annað er vegna skorts á lýð­ræð­is­legri umræðu, lýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum og þeirrar þró­unar að HÍ hefur verið á margan hátt fyr­ir­tækja­væddur – litið er á menntun og fræði sem fram­leiðslu­grein­ar.

Gríð­ar­legt álag er á starfs­fólki, sem vinnur fyrir alltof lág laun, alltof lengi.  Ný­liðun er lítil og margt ungt fræða­fólk vinnur við skól­ann sem stunda­kenn­arar á smán­ar­legum laun­um, með lítil rétt­indi og t.d. án atkvæð­is­réttar í rekt­ors­kjöri.  Ungt öfl­ugt fræða­fólk hrökkl­ast frá skól­an­um. Lík­lega hefur skól­inn farið of geyst í útskrift dokt­or­snema og fjár­mögnun dokt­ors­náms­ins er oft ótrygg. Yfir­stjórn skól­ans hefur verið ofur­við­kvæm fyrir gagn­rýni. Lítil umræða á sér stað innan skól­ans. Þessu þarf öllu að breyta. En hver á að breyta því?

Tveir aðilar eru til kjörs á mánu­dag­inn. Báðir eru þeir ein­stak­lega hæfir, en bak­grunnur þeirra er mjög ólík­ur. Jón Atli Bene­dikts­son er sitj­andi aðstoð­ar­rekt­or, hand­val­inn af sitj­andi rektor til þeirra starfa 2009 , en hann var áður aðstoð­ar­maður rekt­ors frá 2006. Jón hefur verið for­maður gæða­nefndar HÍ frá 2006 og for­stöðu­maður Mið­stöðvar fram­halds­náms­ins síðan 2009. Jón Atli hefur því haft mörg tæki­færi til að móta og bæta stjórn­sýslu skól­ans.  Jón Atli þekkir mjög vel til starf­semi HÍ og er vel kynnt­ur. Margir sem styðja Jón Atla mæra manns­kosti hans, sem eru miklir og aug­ljós­ir, en á sama tíma virð­ist það vera fólk, sem ekki sér­stak­lega talar fyrir breyt­ingum á innra starfi - er sátt við hlut­ina eins og þeir eru? Jón Atli hefur sagt að hann muni lík­lega sitja í 10 ár við að fylgja eftir stefnu sinni (þ.e. til 2025!). Þá fer nú að stytt­ast í næsta sól­myrkva!

Auglýsing

Hinn fram­bjóð­and­inn er Guð­rún Nor­dal sem hefur ekki starfað við stjórn­sýslu HÍ, þó hún hafi mikla reynslu af stjórn­un­ar­störfum er tengj­ast rann­sóknum og fræð­um. Guð­rún hef­ur  sagt að hún sæk­ist eftir kjöri til 5 ára. Guð­rún er fersk, með opinn og frjóan huga og hefur önnur tæki­færi til að taka til hend­inni og breyta hlutum en sitj­andi aðstoð­ar­rekt­or. Og öllum ætti að vera ljóst að breyt­inga er þörf!

Það er engu batt­er­íi, hvorki fyr­ir­tæki, stjórn­mála­flokki né háskóla­stofnun hollt að hafa sömu aðil­ana við stjórn­völ­inn of lengi.  Vald getur spillt og dregið úr frum­kvæði.  Rektor hefur gríð­ar­leg völd til að velja fólk til starfa (og hafna öðrum), stjórna skól­anum og tryggja að skól­inn þrosk­ist og dafni. Háskólar um allan heim taka mjög örum breyt­ingum um þessar mund­ir. Rektor þarf að geta beitt sér fyrir nauð­syn­legum breyt­ingum í sam­vinnu við starfs­fólk og nem­end­ur. Allt er þetta þjóð­ar­hag­ur.

Ég hvet því nem­endur og starfs­fólk HÍ á mánu­dag­inn, til að þakka Jóni Atla vel unnin störf, en kjósa Guð­rúnu – tals­mann breyt­inga, lýð­ræð­is­legrar umræðu og jafn­ingja­mats.

Höf­undur er dós­ent á heil­brigð­is­vís­inda­sviði HÍ.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None