Þrjú Klikk

14128538452_5c89c225a2_z.jpg
Auglýsing

Háskóli Íslands. Fræða­stofn­un, mennt­un­ar­mið­stöð, sam­fé­lag. Marg­rödduð stofnun sem almenn­ingur og Alþingi getur leitað til þegar hefja á upp­lýsta umræðu. Ein af stoðum og styttum menn­ing­ar­innar og lýð­ræð­is­ins. Já, þetta eru vissu­lega stór orð, en það er einmitt við slíkar stofn­anir sem stór orð eiga við og það er innan þeirra sem slík orð öðl­ast merk­ingu. Þeir sem stunda nám við skól­ann, hafa stundað nám við skól­ann og þeir sem ætla sér að stunda nám við skól­ann, öll vitum við hvað er í húfi þegar um er að ræða fram­tíð Háskóla Íslands. Og fram­tíð­in, hún veltur að miklu leyti á verð­andi rekt­or, stefnu hans og sann­fær­ing­ar­krafti.

Fram­tíð Haskól­ans



Bar­áttan um sæti rekt­ors er á hápunkti þessa daga. Fyrri umferð kosn­inga er búin og nú standa eftir Guð­rún Nor­dal og Jón Atli Bene­dikt­son. Stúd­entar eiga atkvæði, og þar af leið­andi rödd. Í fyrri umferð mæld­ist kjör­sókn nem­enda 40,24%, þar af voru 36% allra kven­kynsnem­enda sem kusu og allra 42% karl­kynsnem­enda. Fram­tíð Háskól­ans skiptir fleiri en 40,24% stúd­enta máli. Það er stað­reynd. Á sama tíma og við viljum hvetja sam­nem­endur okkar til að nýta kosn­inga­rétt­inn, á mánu­dag­inn þann 20. apríl næst­kom­andi, langar okkur að koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Við viljum sjá breyt­ingar við Háskóla Íslands. Við viljum að Háskóli Íslands öðlist leið­andi rödd sem nær eyru almenn­ings og stjórn­valda. (Við viljum líka fá Hámu upp á Þjóð­ar­bók­hlöðu, en það er annað mál...!!). Við viljum ferskan en traustan háskóla sem er stjórnað af mann­eskju sem við getum treyst og leitað til.

Guð­rún Nor­dal hefur fram­tíð­ar­sýn sem felur í sér breyt­ing­ar. Hún hristir upp í öllu starfi sem hún kemur nálægt. Guð­rún hrífur fólk með sér, fær fólk með ólíkar skoð­anir til að vinna sam­an, hlustar og virðir skoð­anir ann­arra. Guð­rún er lausn­a­miðuð og sann­gjörn. Alltaf.

Auglýsing

Menntun er einn dýr­mæt­asti auður sam­fé­lags­ins, það þarf að stofna til sátt­mála við þjóð­ina um varð­veislu og efl­ingu henn­ar. Við vitum fyrir víst að Guð­rún Nor­dal er mann­eskjan sem getur tengt saman ólík við­horf á upp­byggj­andi hátt og sann­fært alla um mik­il­vægi þess að Háskóli Íslands fái það fjár­magn sem hann þarf á að halda.

Dríf­andi leið­togi



Guð­rún Nor­dal er virtur fræði­maður hér heima og á alþjóða­vett­vangi, hún er dríf­andi leið­togi sem hefur sannað sig sem for­stöðu­maður Árna­stofn­unnar og for­maður Vís­inda- og tækni­ráðs.  Hún er sann­gjörn, ein­læg og vill halda stjórn­sýslu skól­ans lif­andi þar sem stúd­entar eiga að hafa mikið að segja. Guð­rún Nor­dal er sú mann­eskja sem við viljum að leiði Háskóla Íslands inn í fram­tíð hinna enda­lausu mögu­leika.

Kæru sam­nem­end­ur, tökum ábyrgð á þess­ari fram­tíð, okk­ar eigin fram­tíð, og kjós­um. Það tekur ekki nema þrjú klikk inn í Ugl­unni.

Höf­undar eru nem­endur í Háskóla Íslands í heim­speki og lög­fræði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None