Um aðgengismál fatlaðra í Þjóðleikhúsinu

tinna-1.jpg
Auglýsing

Það leiða atvik átti sér stað á frum­sýn­ingu á Karitas, að Edda Heiðrún Back­man fest­ist í lyftu sem, ætlað er að flytja hjóla­stóla frá inn­gangi og upp á gesta­svæði Þjóð­leik­húss­ins. Ég harma þetta atvik og tel afleitt að sá bún­aður sem hreyfi­haml­aðir ein­stak­lingar verða að reiða sig á í Þjóð­leik­hús­inu, geti ekki staðið undir vænt­ing­um.

Þegar und­ir­rituð tók við starfi þjóð­leik­hús­stjóra ­fyrir rétt tæpum tíu árum, lá fyrir að leik­húsið þarfn­að­ist viða­mik­illa og ­gagn­gerra við­gerða og end­ur­bóta, utan húss sem inn­an. En auk þess að bjarga ­hús­inu frá frekara nið­ur­broti og raka­skemmd­um, var algert for­gangs­mál að tryggja að­gengi fatl­aðra.

Stjórn­völd brugð­ust við ákall­inu og fjár­magn var sett í umfangs­miklar fram­kvæmdir utan­húss, auk þess sem við­halds­málum leik­húss­ins til fram­búðar og úrbótum innan húss, var komið til­ fa­g­að­ila, eða Fast­eigna rík­is­sjóðs, sem er nú ábyrgð­ar­að­ili hús­eign­ar­inn­ar.

Auglýsing

Þess ber þó að geta að í hönnun húss­ins er ekki tekið til­liti til aðgengis fatl­aðra, ekki frekar en öðrum húsum frá sama tíma og lausn­irnar því alltaf að ein­hverju ­marki mála­miðlun út frá aðstæðum

Bestu lausna var leitað til að tryggja aðgengi hreyfi­haml­aðra að leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu. Þess ber þó að geta að í hönnun húss­ins er ekki tekið til­liti til aðgengis fatl­aðra, ekki frekar en öðrum húsum frá sama tíma og lausn­irnar því alltaf að ein­hverju ­marki mála­miðlun út frá aðstæð­um, eins og for­svars­mönnum leik­húss­ins var kynnt að hálfu þeirra sér­fræð­inga sem sáu um að velja bún­að­inn.

Það er vissu­lega álita­mál hvernig til hefur tek­ist en þeim bún­aði sem sér­fræð­ingar töldu bestan og tryggastan var komið upp á árunum 2007 til 2009, en það eru fjórar mis­mun­andi lyftur í aðal­bygg­ing­unni, rampur við starfs­manna-inn­gang og lyfta við Kass­ann á Lind­ar­götu 7.

Þjóð­leik­húsið hefur á umliðnum árum tek­ið á móti fjölda gesta í hjóla­stólum og bún­að­ur­inn verið tek­inn reglu­lega út, ­síð­ast núna í byrjun sept­em­ber, en þá var hann vott­aður til árs eða til hausts­ins 2015. Helg­ina áður en Edda Heiðrún fest­ist í lyft­unni fóru fjórir gestir í hjóla­stólum upp og niður með þess­ari sömu lyftu án vand­ræða. En þó bún­að­ur­inn hafi að mestu virkað vel, er satt og víst að á því eru alvar­leg­ar und­an­tekn­ing­ar, eins og bréf Eddu Heiðrúnar ber með sér. Tækni og bún­aður getur alltaf bil­að, en það er sér­stak­lega sárt þegar fatl­aðir leik­hús­gestir þurfi að verða fyrir töfum og jafn­vel missa af leik­sýn­ingu vegna tækni­bil­ana. Leita verður allra leiða til að tryggja örugga aðkomu og aðgengi hreyfi­haml­aðra að Þjóð­leik­hús­inu, það er ekki spurn­ing og það er svo sann­ar­lega vilji yfir­stjórnar Þjóð­leik­húss­ins.

Þjóð­leik­húsið hefur fyrr á þessu ári komið áhyggjum sínum á fram­færi við á­byrgð­ar­að­ila hús­eign­ar­inn­ar, eða fast­eignir rík­is­sjóðs, eða núna í febr­ú­ar, þegar maður í hjóla­stól fest­ist í lyft­unni utandyra, en Edda Heiðrún­ vísar einmitt til þess atviks í bréfi sínu. Þá var úrbóta kraf­ist og því fylg­t eftir að hálfu und­ir­rit­aðr­ar. Til að fylgja mál­inu frekar eftir lét, ­Þjóð­leik­húsið gera óháða úttekt á aðgengi að hús­næði Þjóð­leik­húss­ins nú í vor,  auk þess sem ­málið var tekið upp á fundi með full­trúum mennta og ­menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Það er ljóst að ekki verður unað við þetta ótrygga ástand lengur og á fundi þjóð­leik­hús­stjóra og fram­kvæmda­stjóra ­leik­húss­ins með verk­efn­is­stjóra fast­eigna rík­is­sjóðs í gær, var stað­fest og ­full­yrt að úrbætur yrðu setta í afger­andi for­gang hjá emb­ætt­inu.

Grein Eddu Heiðrúnar Back­man, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær, má lesa hér.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None