Vesalings Færeyingarnir

Jóhann S. Bogason gagnrýnir hvalveiðar Færeyinga harðlega í aðsendri grein.

Auglýsing

Ofan á allar ógn­vekj­andi furður heims­ins eins og til að mynda hnatt­ræna hlýn­un, hrörnun vist­kerfa, felli­bylji, jarð­skjálfta, eld­gos og aðrar hörm­ung­ar, sem ætla mætti að teld­ust ríku­legar ástæður til að ótt­ast mögu­leika barna­barna okkar að taka við – í besta falli – sæmi­legum heimi for­eldra sinna; nú þegar spár segja fyrir um að um þriðj­ungur allra dýra­teg­unda sé að hverfa á braut haldi fram sem horf­ir, þá ber­ast okkur fregnir um hjart­næmar aðferðir frænda okkar Fær­ey­ing­anna til að hafa nóg að bíta og brenna.

Ein leið vina okkar í þessum erinda­gjörðum fólst nýverið í þeim glæsi­lega „gjörn­ingi“ að smala saman svona sirka­bát +1.400 háþró­uðum ein­stak­lingum úr flokki spen­dýra, sem vitað er að lifa í nátengdum fjöl­skyld­um. Eins er vitað að þessi spen­dýr tala saman sín á milli. Og nefna jafn­vel hvert annað með hljóð­merkj­um. Rétt eins og Fær­ey­ingar gera, sem og við frændur þeirra Íslend­ing­arn­ir. Jón og Jógvan og hvað eina.

Þessa slátrun segj­ast þeir fram­kvæma í nafni „hefð­ar“. Rétt­læt­ingin fyrir þess­ari villi­mennsku þeirra virð­ist enn fremur fel­ast í því að öll dýrin hafi jú verið mænu­stungin með skjótum hætti og að slátr­unin hafi þannig verið mann­úð­leg.

Auglýsing

Auk­in­heldur að allt hold hafi verið nýtt. Þessi gjörn­ingur fór fram mestan part á hafi úti, þar sem yfir­veg­aðir „karl­menn“ stungu vopnum sínum í holdið á stórum spen­dýrum í von um að drepa þau öll.

Það var og.

Allt er þetta bull og þvætt­ing­ur.

Það er lukku­lega engin þjóð­leg hefð fyrir svona villi­mennsku. Fær­ey­ingar geta mögu­lega borið fyrir sig að hafa smalað grind­hvölum í ald­anna rás þegar minna var um bjarg­áln­ir.

Það eru löngu liðnir tím­ar. Þessir sömu Fær­ey­ingar geta keypt alls konar steikur hvenær sem er; Kengúru­kjöt, hrein­dýra­kjöt, nauta­kjöt, lamba­kjöt, kjúklinga og m.a.s. strúta­kjöt.

Þessir lukku­ridd­arar sem þykj­ast vera sjálf­stæðir Fær­ey­ingar og gadda í sig þvesti og ket margra fjöl­skyldna af höfr­ungum eru ein­fald­lega hræsnar­ar.

Flestir eru þeir með Net­flix og vafa­lítið fylgj­ast margir með „ðí kar­dashi­ans“.

Fær­ey­ingar virð­ast ein­fald­lega ekki færir um að geta lifað af eigin ramm­leik. Dan­mörk borgar ótrú­legar fjár­hæðir með þeim á ári hverju og hefur gert alla tíð.

Ef Fær­ey­ingum þykir til­hlýði­legt að slátra mörgum fjöl­skyldum háþró­aðra spen­dýra til að hafa það sæmi­legt, þá þykir mér eðli­legt að þeir sjái um sig sjálfir og jafn­framt að Danir láti þá róa.

Sjáum til hvernig þeir spjara sig þá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar