Vinnumarkaður hins sterka

Signý Sigurðardóttir skrifar um fyrirbærið tímabundnar ráðningar og gagnrýnir þær harðlega. „Þetta ráðningarform þýðir að þú ert algjörlega réttindalaus.“

Auglýsing

Íslenskur vinnu­mark­aður hefur löngum komið mér und­ar­lega fyrir sjón­ir. Ég hef frá því á bestu árum mínum þar átt erfitt með að átta mig á hvað það er sem skiptir máli.

Nú þegar ég er komin á miðjan aldur skil ég enn minna.

Ég er 59 ára gömul – verð sex­tug á næsta ári. Það er langt síðan ég lærði að ég hef ekki lengur sjálf­dæmi um hvað ég hefst að í líf­inu. Á íslenskum vinnu­mark­aði – íslensku við­skipta­lífi í það minnsta sem er sá starfs­vett­vangur sem ég valdi mér - er maður orð­inn ónýtur fimm­tug­ur. Það er ekk­ert nýtt. Þannig hefur það verið mjög lengi eða frá því ég starf­aði sjálf við ráðn­ingar á níunda ára­tug síð­ustu ald­ar. Um þetta er samt ekki enn tal­að. Ald­urs­for­dómar eru ekki bara leyfi­legir – þeir eru sjálf­sagðir á Íslandi 21. ald­ar.

Auglýsing

Nú spyr ég landa mína að því – hvað á ég að gera?

Starfs­ör­yggi á Íslandi er ekki til.

Á Íslandi þykir sjálf­sagt að segja upp fólki fyr­ir­vara­laust fyrir engar sak­ir. Skiptir engu máli þó það sé komið á sex­tugs­ald­ur. Vinnu­veit­endur eru frjálsir að því að gera það sem þeim sýn­ist og það er litið á það sem mjög mik­il­væga grund­vall­ar­reglu almenns vinnu­mark­aðar í land­inu.

Nú reyna Sjálf­stæð­is­menn að koma þess­ari sömu reglu á á opin­berum mark­aði líka. Finnst það ótækt að hinn opin­beri mark­aður geri kröfu um áminn­ingar sbr. frum­varp sem lagt var fram á haust­þingi um að þær skuli lagðar af.

En það er ekki allt.

Ég hef lengst af minnar starfsævi starfað á almenna mark­aðnum þ.e. þeim einka­rekna. Þar hefur sú grund­vall­ar­regla verið algjör­lega skýr að maður ræður sig til starfa á reynslu­tíma í 3 mán­uði og eftir það er maður fast­ráð­inn. Gríð­ar­lega mik­il­væg regla sem gefur laun­þeg­anum sjálf­dæmi um veru sína hjá við­kom­andi vinnu­veit­anda. Þ.e. hann er í föstu starfi þar til annað hvort hann segir upp með 3ja mán­aða fyr­ir­vara eða er sagt upp með 3ja mán­aða fyr­ir­vara. Þessi regla gefur við­kom­andi ákveðið öryggi sem er gríð­ar­lega mik­il­vægt og maður er svo sem alla jafna ekki að hugsa mikið út í. Fyrr en maður kynn­ist öðru…

Tíma­bundnum ráðn­ing­um. Hjá hinu opin­bera á Íslandi hefur þetta ráðn­ing­ar­form tíðkast um langt skeið að mér er sagt og er orðið ráðn­ing­ar­formið í mörgum til­vik­um. Þetta ráðn­ing­ar­form þýðir að þú ert algjör­lega rétt­inda­laus. Ert ráðin tíma­bundið í ein­hverja mán­uði og getur átt það á hættu að fá ekki fast­ráðn­ingu og þurfa frá að hverfa án nokk­urrar greiðslu sem venju­lega myndi kall­ast upp­sagn­ar­tími.

Auglýsing

Þetta ráðn­ing­ar­form þykir sem­sagt sjálf­sagt orðið að við­hafa hjá hinu opin­bera á Íslandi – hvort sem um ræðir ráðn­ingar rík­is­valds­ins eða Reykja­vík­ur­borgar (þekki ekki fyr­ir­komu­lag þessa hjá öðrum sveit­ar­fé­lög­um). Ráðn­ingar þar sem starfs­menn­irnir eru algjör­lega rétt­inda­laus­ir.

Fram hefur komið að Sól­veig Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar ekki bara sagði upp öllu starfs­fólki á skrif­stofu Efl­ingar í vor heldur réði starfs­menn inn tíma­bund­ið… til hálfs árs. Ekki hægt að skilja þann gjörn­ing öðru­vísi en hann sé hugs­aður sem for­dæmi sem sjálf­sagt sé að almenni mark­að­ur­inn við­hafi.

Ég spyr – hvað á þetta að þýða? Hvernig stendur á því að stétt­ar­fé­lögin í land­inu láta þetta við­gang­ast og gera ekk­ert í mál­inu? Þykir þeim og þykir okkur þetta bara í lagi og hið besta mál? Vita þau ekk­ert hvaða þýð­ingu starfs­ör­yggi hef­ur? Vita þau hvernig það er að fá ekki fast­ráðn­ingu eftir kannski 1 eða 2 ár í starfi og vera þannig hent út rétt­inda­lausum? Ætlum við að þróa vinnu­mark­að­inn í þessa átt lengi enn?

Vinnu­markað þar sem laun­þeg­inn hefur ekki lengur sjálf­dæmi um sinn starfs­feril heldur þarf að lifa í ótta um stöðu sína frá degi til dags?

Vinnu­markað þar sem vinnu­veit­and­inn hefur tögl og hagldir en laun­þeg­inn er peð?

Vinnu­markað hins sterka?

Ég læt staðar numið hér að sinni en fleiri greinar um sama mál­efni munu fylgja í kjöl­far­ið.

Höf­undur er áhuga­maður um stjórn­mál.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar