Voru yfirlýsingar Sigmundar Davíðs í vikunni smjörklípa?

9951287705_351870c03c_z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var í kast­ljós­inu í lið­inni frétta­viku sem fyrr. Fyrst fyrir að skipa starfs­hóp til að kanna milli­landa­flug á Egils­stöðum og Akur­eyri. Næst fyrir að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um við­bygg­ingu við Alþing­is­hús­ið, bygg­ingu nýrrar Val­hallar á Þing­völlum og að gefa þjóð­inni hús undir stofnun Árna Magn­ús­sonar í full­veld­is­af­mæl­is­gjöf 1. des­em­ber 2018. Kostn­að­ur­inn er áætl­aður á anna tug millj­arða króna og því héldu margir að um apr­ílgabb væri að ræða, enda greint frá til­lög­unum í fjöl­miðlum að morgni 1. apr­íl.

Svo reynd­ist ekki vera, ekki frekar en þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann viðr­aði þær hug­myndir sínar að selja hús­næði Lands­spít­al­ans við Hring­braut undir hót­el­starf­semi með gróða og byggja nýjan spít­ala á lóð Rík­is­út­varps­ins við Efsta­leiti að kvöldi sama dags. For­sæt­is­ráð­herr­ann virð­ist reyndar ekki hafa kveikt á því að Reykja­vík­ur­borg á lóð­irnar sem spít­al­inn er stað­settur á og því myndi sala þeirra ekki skila neinu í rík­is­kass­ann. Auk þess virð­ist honum hafa tek­ist að gera alla sem starfa innan heil­brigð­is­geirans fok­illa með yfir­lýs­ingu sinni, enda ljóst að flutn­ingur á stað­setn­ingu nýs spitala myndi tefja upp­bygg­ingu hans um nokkur ár.

Margir eru þeirrar skoð­unar að Sig­mundur Davíð hafi enn og aftur opin­berað hversu van­hæfur for­sæt­is­ráð­herra hann sé með frammi­stöðu sinni í vik­unn­i.  Í bak­her­berg­inu hafa ýmsir hins vegar viðrað þá kenn­ingu að um vel heppn­aða smjör­klípu sé að ræða. Í síð­ustu vikum hafi miklar brotala­mir í stjórn­ar­sam­starf­inu opin­berað sig, meðal ann­ars með fram­lagn­ingu frum­varpa Eyglóar Harð­ar­dóttur um breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu, sem fjár­mála- og efna­hags­mála­ráðu­neytið undir stjórn Sjálf­stæð­is­manna er að stöðva. Auk þess stendur rík­is­stjórnin frammi fyrir gríð­ar­lega stórum og erf­iðum málum strax eftir páska, á borð við mak­ríl­kvóta­frum­varp­ið, umræður um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald Evr­ópu­sam­bands­við­ræðna og for­dæma­lausum ófriði á vinnu­mark­aði með til­heyr­andi verk­föll­um. Sam­hliða er á stefnu­skránni að stíga stór skref í átt að afnámi hafta.

Auglýsing

Kenn­ing bak­her­berg­is­manna er sú að Sig­mundur Davíð hafi ákveðið að taka fók­us­inn af þessum málum í umræð­unni og beina gonum að sér tíma­bund­ið. Þau mál sem hann valdi til þess séu öll þess eðlis að engin muni muna eftir þeim í næstu kosn­ing­um. Þetta gefi rík­is­stjórn­inni tæki­færi til að vinna í vari að stóru mál­un­um.

Svo bara eftir að koma í ljós hvort um van­hæfni eða stjórn­kænsku var að ræða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None