Við undirritaðir hjúkrunarfræðingar á Blóðlækningadeild Landspítalans höfum miklar áhyggjur af framtíð deildarinnar og þeirri sérhæfðu þjónustu sem þar er veitt. Alvarleg staða er komin upp í launabaráttu stéttarinnar í kjölfar lagasetningar á verkfall hjúkrunarfræðinga.
Blóðlækningadeild 11-G á Landspítalanum við Hringbraut er 14 rúma legudeild sem veitir sérhæfða meðferð fyrir sjúklinga með blóðsjúkdóma. Ber þar helst að nefna hvítblæði, eitilfrumukrabbamein og mergfrumuæxli. Þetta eru illkynja sjúkdómar sem krefjast mjög flókinnar og sérhæfðrar meðferðar. Frá árinu 2003 hefur verið gefin háskammtameðferð með eigin stofnfrumuígræðslu á deildinni. Fyrir þann tíma þurfti að fara út fyrir landsteinana í þessa meðferð og því mikil lyftistöng þegar framkvæmd hennar hófst hér á landi og sjúklingar þurftu ekki lengur að dvelja langtímum saman erlendis. Lyfjameðferðum við sjúkdómum af þessu tagi fylgir mikil ónæmisbæling og einstaklingar því í mikilli sýkingarhættu á meðan á meðferð stendur.
Á undraverðan hátt hefur tekist að halda deildinni í stöðugri framþróun þrátt fyrir oft á tíðum gríðarlega erfiðar aðstæður. Mikill niðurskurður og algjörlega óviðunandi húsakostur fyrir bæði starfsfólk og sjúklinga hefur ekki létt róðurinn. Þrátt fyrir það hefur verið veitt besta mögulega þjónusta sem völ er á af samheldnum hóp einstaklinga úr hinum ýmsu starfsstéttum. Allir eiga það sameiginlegt að vera með mikla reynslu og færni á sínu sviði, þar af 20 hjúkrunarfræðingar.
Uppsagnir eru því miður byrjaðar að berast. Óttumst við að brottfall úr okkar hópi verði of mikið til að hægt verði að halda uppi viðunandi starfsemi á deildinni. Höfum við þungar áhyggjur af velferð okkar skjólstæðinga náist samningar ekki sem allra fyrst.
Við erum stoltir hjúkrunarfræðingar og getum ekki sætt okkur við að árið 2015 eru kvennastéttir enn að berjast fyrir jafnrétti kynjanna þegar kemur að launum. Í dag eru svonefndar kvennastéttir með 14-25% lægri laun en aðrar sambærilegar stéttir innan ríkisins þegar litið er til menntunar og ábyrgðar. Þolinmæði hjúkrunarfræðinga er á þrotum og við gefum ekki lengur afslátt af okkar launum.
Við skorum því á stjórnvöld að stíga fram á þessum tímamótum í sögu kvenna á Íslandi og leiðrétta þennan mismun svo við getum haldið áfram að nýta fagkunnáttu okkar og krafta í þágu sjúklinga á landinu.
Virðingarfyllst,
Arnlaug Borgþórsdóttir
Ásta Kristín Árnadóttir
Dagbjört H. Kristinsdóttir
Elsa Bjarnadóttir
Elva B. Brynjarsdóttir
Guðlaug Helga Helgadóttir
Guðrún Jakobína Jónsdóttir
Guðrún Karítas Karlsdóttir
Helga G. Bender
Herdís Guðlaugsdóttir
Karen Ýr Sæmundsdóttir
Ragna Þyrí Guðlaugsdóttir
Sigríður Særún Gautsdóttir
Sveinlaug Atladóttir
Tinna Dröfn Sæmundsdóttir
Vilborg Linda Indriðadóttir.
Hjúkrunarfræðingar, deild 11-G á LSH