Yfirlýsing hjúkrunarfræðinga: „Þolinmæðin á þrotum“

16035871482_8f0744eaa9_z.jpg
Auglýsing

Við und­ir­rit­aðir hjúkr­un­ar­fræð­ingar á Blóð­lækn­inga­deild Land­spít­al­ans höfum miklar áhyggjur af fram­tíð deild­ar­innar og þeirri sér­hæfðu þjón­ustu sem þar er veitt. Alvar­leg staða er komin upp í launa­bar­áttu stétt­ar­innar í kjöl­far laga­setn­ingar á verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Blóð­lækn­inga­deild 11-G á Land­spít­al­anum við Hring­braut er 14 rúma legu­deild sem veitir sér­hæfða með­ferð fyrir sjúk­linga með blóð­sjúk­dóma. Ber þar helst að nefna hvít­blæði, eitilfrumu­krabba­mein og merg­frumu­æxli. Þetta eru ill­kynja sjúk­dómar sem krefj­ast mjög flók­innar og sér­hæfðrar með­ferð­ar. Frá árinu 2003 hefur verið gefin háskammta­með­ferð með eigin stofn­frumu­ígræðslu á deild­inni. Fyrir þann tíma þurfti að fara út fyrir land­stein­ana í þessa með­ferð og því mikil lyfti­stöng þegar fram­kvæmd hennar hófst hér á landi og sjúk­lingar þurftu ekki lengur að dvelja lang­tímum saman erlend­is. Lyfja­með­ferðum við sjúk­dómum af þessu tagi fylgir mikil ónæm­is­bæl­ing og ein­stak­lingar því í mik­illi sýk­ing­ar­hættu á meðan á með­ferð stend­ur.

Auglýsing


Á undra­verðan hátt hefur tek­ist að halda deild­inni í stöðugri fram­þróun þrátt fyrir oft á tíðum gríð­ar­lega erf­iðar aðstæð­ur. Mik­ill nið­ur­skurður og algjör­lega óvið­un­andi húsa­kostur fyrir bæði starfs­fólk og sjúk­linga hefur ekki létt róð­ur­inn. Þrátt fyrir það hefur verið veitt besta mögu­lega þjón­usta sem völ er á af sam­heldnum hóp ein­stak­linga úr hinum ýmsu starfs­stétt­um. Allir eiga það sam­eig­in­legt að vera með mikla reynslu og færni á sínu sviði, þar af 20 hjúkr­un­ar­fræð­ing­ar.



Upp­sagnir eru því miður byrj­aðar að ber­ast. Ótt­umst við að brott­fall úr okkar hópi verði of mikið til að hægt verði að halda uppi við­un­andi starf­semi á deild­inni. Höfum við þungar áhyggjur af vel­ferð okkar skjól­stæð­inga náist samn­ingar ekki sem allra fyrst.



Við erum stoltir hjúkr­un­ar­fræð­ingar og getum ekki sætt okkur við að árið 2015 eru kvenna­stéttir enn að berj­ast fyrir jafn­rétti kynj­anna þegar kemur að laun­um. Í dag eru svo­nefndar kvenna­stéttir með 14-25% lægri laun en aðrar sam­bæri­legar stéttir innan rík­is­ins þegar litið er til mennt­unar og ábyrgð­ar. Þol­in­mæði hjúkr­un­ar­fræð­inga er á þrotum og við gefum ekki lengur afslátt af okkar laun­um.



Við skorum því á stjórn­völd að stíga fram á þessum tíma­mótum í sögu kvenna á Íslandi og leið­rétta þennan mis­mun svo við getum haldið áfram að nýta fag­kunn­áttu okkar og krafta í þágu sjúk­linga á land­inu.



Virð­ing­ar­fyllst,



Arn­laug Borg­þórs­dóttir

Ásta Kristín Árna­dóttir

Dag­björt H. Krist­ins­dóttir

Elsa Bjarna­dóttir

Elva B. Brynjars­dóttir

Guð­laug Helga Helga­dóttir

Guð­rún Jak­obína Jóns­dóttir

Guð­rún Kar­ítas Karls­dóttir

Helga G. Bender

Her­dís Guð­laugs­dóttir

Karen Ýr Sæmunds­dóttir

Ragna Þyrí Guð­laugs­dóttir

Sig­ríður Særún Gauts­dóttir

Svein­laug Atla­dóttir

Tinna Dröfn Sæmunds­dóttir

Vil­borg Linda Ind­riða­dótt­ir.



Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ar, deild 11-G á LSH

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None