Tíu staðreyndir um kvótaflóttamenn

Barn að leik við landamæri Þýskalands og Austurríkis. Þýsk yfirvöld hafa sent um 200 flóttamenn til baka yfir landamærin til Austurríkis það sem af er ári.
Barn að leik við landamæri Þýskalands og Austurríkis. Þýsk yfirvöld hafa sent um 200 flóttamenn til baka yfir landamærin til Austurríkis það sem af er ári.
Auglýsing

1 - 35 sýr­lenskir kvótaflótta­menn, sex fjöl­skyld­ur, komu til lands­ins í gær eftir dvöl í flótta­manna­búðum í Líbanon und­an­farin ár. Fjórar fjöl­skyldur munu setj­ast að á Akur­eyri og tvær í Kópa­vogi. Ein fjöl­skylda til við­bótar er vænt­an­leg til lands­ins síð­ar, en barns­haf­andi kona í þeirri fjöl­skyldu reynd­ist ekki fær um að ferð­ast til lands­ins nú. Þrjár fjöl­skyldur sáu sér ekki fært að koma, en nú vinna íslensk stjórn­völd að því í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) að und­ir­búa komu ann­arra flótta­manna í þeirra stað. 

2 - Ísland hefur tekið á móti 549 kvótaflótta­mönn­um. Fyrstu flótta­menn­irnir komu hingað frá Ung­verja­landi árið 1956. Alls tóku íslensk stjórn­völd á móti 204 flótta­mönnum á tæp­lega 40 ára tíma­bili, frá 1956 til 1991. Eftir að Flótta­manna­ráð (nú Flótta­manna­nefnd) var sett á lagg­irnar 1995, hefur Ísland tekið á móti 380 flótta­mönn­um, á tíma­bil­inu 1996 - 2016. 


3 - Íslend­ingar hafa tekið á móti kvótaflótta­mönnum frá 13 löndum: Ung­verja­landi, Júgóslavíu, Víetnam, Pól­landi, Krajina, Kosovo, Kól­umbíu, Írak, Afganistan, Simbabve, Úganda, Kamerún og Sýr­landi. 


Auglýsing

Meðal íslenskra sveit­ar­fé­laga sem tekið hafa á móti flótta­fólki eru Ísa­fjörð­ur, Horna­fjörð­ur, Blöndu­ós, Fjarð­ar­byggð, Dal­vík, Siglu­fjörð­ur, Akur­eyri, Reykja­nes­bær, Akra­nes, Hafn­ar­fjörð­ur, Kópa­vogur og Reykja­vík.  


4 - Á Íslandi stendur kvótaflótta­mönnum meðal ann­ars til boða fjár­hags- og hús­næð­is­að­stoð, heil­brigð­is­þjón­usta, aðgangur að skóla­kerf­inu, túlka­þjón­usta og aðstoð við atvinnu­leit. Þeir eru skyldugir að sækja nám­skeið í íslensku, taka virkan þátt í atvinnu­leit og þiggja við­töl hjá sál­fræð­ingi til að fara yfir reynsl­una af búsetu í upp­runa­land­inu og af aðlög­un­inni í mót­töku­land­inu. Fólkið getur fengið íslenskan rík­is­borg­ara­rétt eftir að hafa verið búsett hér á landi í fimm ár.
 

5 - Flótta­maður er sá sem hefur flúið heima­land sitt vegna stríðs, átaka eða ofsókna og hans eigin rík­is­stjórn getur ekki eða vill ekki veita honum vernd. Kvótaflótta­menn eru þeir flótta­menn sem Flótta­manna­stofnun SÞ hefur óskað eftir að þjóðir heims taki á móti vegna stríðs­á­stands í heima­landi þeirra. Hæl­is­leit­andi er sá sem sækir um hæli utan síns eigin ríkis og er þar með að biðja um við­ur­kennda stöðu flótta­manns. Ef stjórn­völd fall­ast á rétt­mæti umsóknar fær við­kom­andi við­ur­kennda stöðu sem flótta­mað­ur. 


6 - 27 ríki heims taka á móti kvótaflótta­mönn­um. Af þeim eru 25 þjóð­ir, meðal ann­ars Ísland, sem hafa gert sam­komu­lag við Flótta­manna­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) um að taka á móti fjölda kvótaflótta­manna á hverju ári.


7 - Konur og börn eru sér­stak­lega við­kvæmur hópur á átak­svæðum og er meiri­hluti flótta­manna konur og börn í neyð. Flótta­manna­stofnun SÞ hefur lagt áherslu á að ríki taki á móti kvótaflótta­mönnum sem eru konur en þær eru nú um 10 pró­sent þeirra sem fá end­ur­bú­setu í þriðja land­i.


8 - Sam­kvæmt Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, og Vísir greindi frá, má gera ráð fyrir að að kostn­aður vegna mót­töku flótta­fólks sé á bil­inu 4 til 5 millj­ónir króna á hvern ein­stak­ling. 

9 - Rann­sóknir á líðan flótta­manna hafa sýnt fram á að eftir að þeir hafa náð að flýja ofbeldi og átök bíði þeirra oft ný vanda­mál í mót­töku­ríkj­um, for­dóm­ar, útskúfun, ný hlut­verk, menn­ing­ar­á­rekstrar og erfið sam­skipti við yfir­völd og sam­fé­lög. Að vinna gegn kyn­þátta­for­dómum er mjög mik­il­vægt þegar flótta­manna­hópar koma til þriðja lands. 
Ekki hefur verið gerð rann­sókn á líðan flótta­fólks hér í 10 ár. 

10 - 17 pró­sent þeirra sem svör­uðu Þjóð­ar­púlsi Gallup í sept­em­ber síð­ast­liðnum vildu ekki að tekið yrði á móti neinum kvótaflótta­mönnum hingað á næstu tveimur árum.   

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None