VG og Framsókn samstíga í sölunni um Landsbankann

Samhljómur er meðal Vinstri grænna og Framsóknarflokks varðandi sölu ríkisins á Landsbankanum. Helmingur Bjartrar framtíðar tekur undir með sjálfstæðismönnum í málinu.

Landsbankinn
Auglýsing

Lít­ill sem eng­inn vilji er innan Fram­sókn­ar­flokks­ins til að selja tæp­lega 30 pró­senta hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum á þessu ári. Þing­menn Bjartrar fram­tíðar eru klofnir til helm­inga í mál­inu, sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem Kjarn­inn gerði meðal allra 63 þing­manna í vik­unni. Spurt var hver afstaða fólks væri til söl­unn­ar. 

Fjár­mun­irnir sem eiga að fást fyrir söl­una eru nú þegar í fjár­lögum þessa árs, rúm­lega 71 millj­arður króna, sem á að fást fyrir 28,2 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­an­um.  

Svar­hlut­fall þing­manna í könn­un­inni var nokkuð gott, um 75 pró­sent. Allir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn eru á móti söl­unni, þvert á flokka, að und­an­skildum þremur þing­mönnum Bjartrar fram­tíð­ar.

Af þeim sem svör­uðu er Willum Þór Þórs­son eini þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem er hlynntur söl­unni. Í rök­stuðn­ingi hans sagði Willi­um: „Meg­in­mark­miðið er að grynnka á skuldum rík­is­sjóðs, lækka vaxta­byrði útgjalda, að því gefnu; að ein­hver vilji eiga 28,2% á móti 70% eign­ar­hlut rík­is­ins, og ásætt­an­legt verð fáist. Þá er svarið Já - en flýta sér hægt.”

Auglýsing

Meðal ann­arra þing­manna Fram­sókn­ar­flokks sem svör­uðu er Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir. Hún vill að ríkið eigi að minnsta kosti einn banka sem rek­inn yrði á sam­fé­lags­legum for­send­um. Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, er sama sinnis og er alfarið á móti söl­unni.  Elsa Lára Arn­ar­dóttir tekur undir með þeim og segir að fyrst þurfi að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið með neyt­enda­vernd í huga, aðskilja fjár­fest­ing­ar- og við­skipta­banka og afnema verð­trygg­ingu.

Þessar hug­myndir eiga margt sam­eig­in­legt með afstöðu flestra þing­manna Vinstri grænna. Margir þeirra viðr­uðu einnig þá hug­mynd að Lands­bank­inn yrði gerður að sam­fé­lags­banka og þar má finna hljóm­grunn á milli VG og Fram­sókn­ar­flokks. 

Björt fram­tíð er klofin til helm­inga í mál­in­u. 

Þeir Óttar Proppé. Róbert Mars­hall og Guð­mundur Stein­gríms­son vilja allir selja, en leggja allir áherslu á að sölu­ferlið verði opið, gagn­sætt og vand­að. Það rímar full­kom­lega við afstöðu Sjálf­stæð­is­manna í mál­inu, sem sögðu allir „já“ en fara var­lega. 

Þing­menn­irnir Páll Valur Björns­son, Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Björt Ólafs­dóttir eru hins vegar á móti söl­unni og segja rétt að bíða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None