Fleiri sifjaspellsmál á landsbyggðinni

Meirihluti þeirra sifjaspellsmála sem komu á borð Stígamóta í fyrra áttu sér stað utan höfuðborgarsvæðisins. Meira en helmingi fleiri búa þó á höfuðborgarsvæðinu heldur en á landsbyggðinni.

Flest sifjaspellsmál sem Stígamót fékk í fyrra gerðust utan höfuðborgarsvæðisins.
Flest sifjaspellsmál sem Stígamót fékk í fyrra gerðust utan höfuðborgarsvæðisins.
Auglýsing

Meiri­hluti sifja­spells­mála sem kom á borð Stíga­móta í fyrra áttu sér stað utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Fimmt­ungur mál­anna gerð­ist í Reykja­vík, 19 pró­sent ann­ars staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rúm­lega helm­ingur á lands­byggð­inn­i. 

Í nýj­ustu árs­skýrslu Stíga­móta sem birt var fyrr í vik­unni eru öll kyn­ferð­is­brot flokkuð eftir eðli, eins og hefur verið gert árin á und­an. 136 sifja­spells­mál voru til­kynnt til sam­tak­anna í fyrra og þau voru 111 árið 2014. 

Auglýsing


Innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru flest málin í Reykja­vík, 28, og næst­flest í Kópa­vogi, 11. Það er hlut­falls­lega í sam­ræmi við íbúa­fjölda á þessum stöð­um. Ein­ungis eitt sifja­spells­mál var framið á Sel­tjarn­ar­nes­i. 

Anna Þóra Krist­ins­dótt­ir, hjá Stíga­mót­um, segir töl­urnar vissu­lega athygl­is­verð­ar. Starfs­fólk Stíga­móta hóf að greina töl­urnar eftir lands­hlutum árið 2014, en þá var hlut­fall sifja­spells­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 42,3 pró­sent, á meðan það er 39,7 pró­sent.  

Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gerð­ust flest brotin á norð­ur­landi, en þau voru 18. 

 „Þetta er for­vitni­legt. Mögu­legar skýr­ingar á mun­inum eru að við erum með reglu­leg við­töl á Egil­stöðum og Pat­reks­firði og erum því þannig að ná til fólks sem býr utan höfu­borg­ar­svæð­is,” segir hún. „Við erum líka með síma og Skype-við­töl við fólk sem býr utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem. Svo eru sumir sem keyra til Reykja­víkur til að fá við­töl en búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.”

Mik­il­vægt að halda grein­ing­unni áfram

Anna Þóra segir mik­il­vægt að hafa í huga að erfitt sé að alhæfa út frá töl­unum og nauð­syn­legt að halda áfram grein­ing­unni á kom­andi árum til að sjá hvort mynstrið haldi áfram.

 „Einnig er mik­il­vægt að taka fram að þegar stað­irnir eru ekki flokk­aðir saman heldur sund­ur­lið­aðir eins og í töfl­unni hér að ofan þá eru flestir sem segja að sifja­spellið hafi átt sér stað í Reykja­vík sem er í sam­ræmi við það að flestir sem leita til okkar búa í Reykja­vík,” segir hún. 

Lang­flest mál ger­ast á heim­ili

Séu stað­setn­ingar brot­anna skoð­aðar þá sést að fjórð­ungur brot­anna gerð­ist á sam­eig­in­legu heim­ili þol­anda og ofbeld­is­manns­ins, sem þýðir þá að við­kom­andi var annað hvort for­eldri, stjúp­for­eldri eða systk­ini. Sifja­spells­mál eiga sér oft­ast stað á heim­ili ofbeld­is­manns­ins, á heim­ili þess sem er beittur ofbeld­inu eða á sam­eig­in­legu heim­ili, sam­tals í um 72 pró­sent til­fella. Þetta eru svipuð hlut­föll og und­an­farin ár. Heim­ilin er langoft­ast vett­vangur þess­ara glæpa. Vinir eða vin­konur eru yfir­leitt þeir sem þolendur segja frá ofbeld­inu, en yfir helm­ingur þolenda seg­ist hafa sagt þeim frá því. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None