Ungir Íslendingar borða úti annan hvern dag

Ungir Íslendingar borða skyndibita eða annan tilbúinn mat annan hvern dag að meðaltali og eyða í það tæplega 30 þúsund krónum á mánuði. Dominos er vinsælasti veitingastaðurinn hjá notendum Meniga.

Dominos, Subway og KFC eru vinsælustu veitingastaðir landsins.
Dominos, Subway og KFC eru vinsælustu veitingastaðir landsins.
Auglýsing

Ungir Íslend­ingar borða skyndi­bita eða annan til­bú­inn mat oftar en annan hvern dag og eyða um 26 þús­und krónum á mán­uði í slíkt. Sam­kvæmt nið­ur­stöðum Meniga borðar ungt fólk á aldr­inum 16 til 25 ára úti eða kaupir sér til­bú­inn mat, oft­ast á skyndi­bita­stöð­um, tæp­lega 18 daga í mán­uði að með­al­tali. 

Unga fólkið borðar oftast úti.

Auglýsing

Dom­inos er vin­sæl­asti veit­inga­staður lands­ins sam­kvæmt tölum frá Meniga. Nítján þús­und Meniga­not­endur fengu sér Dom­in­ospitsu árið 2015. Þetta þýðir að um 81 pró­sent þeirra sem versl­uðu sér til­bú­inn mat versl­uðu einu sinni eða oftar við Dom­in­os. Subway er næst­vin­sæl­asti skyndi­bita­staður lands­ins, með 17.500 heim­sóknir frá Meniga­not­endum á mán­uði og KFC í þriðja sæti, með 16.000. Hlut­föllin þar eru 75 pró­sent hjá Subway og 69 pró­sent hjá KFC. Fleiri vin­sælir staðir eru Bak­ara­meist­ar­inn, Te og kaffi, Saffran og Serra­no. Nærri jafn margir Meniga not­endur fengu sér pylsu á Bæj­ar­ins bestu og versl­uðu við sjálf­sala Ölgerð­ar­innar árið 2015. 10.850 fengu sér nær­ingu úr sjálf­sala og 10.640 fengu sér Bæj­ar­ins bestu pylsu.  

Bakarí og pylsur eru ofarlega á vinsælarlista landans.

Yngri fara oftar en eyða minna

Oft­ast er mik­ill munur á útgjöldum eftir ald­urs­hópum og sést það mjög greini­lega þegar kemur að skyndi­bita­áti. Kjarn­inn fékk tölu­legar upp­lýs­ingar frá Meniga sem sýna neyslu­hegðun um 50.000 Íslend­inga árið 2015. Undir þennan lið falla allir staðir sem selja til­bú­inn mat eins og skyndi­bita­stað­ir, kaffi­hús, veit­inga­staðir og bak­arí. 

Fólk á aldr­inum 26 til 35 ára eyða mestum pen­ingum í skyndi­bita, tæp­lega 30 þús­und krónum á mán­uði. Upp­hæðin lækkar eftir því sem fólk eld­ist, en elsti ald­urs­hóp­ur­inn, 66 ára og eldri, eyðir tæpum 12 þús­und krón­um. Og það er eins með fjölda heim­sókna á skyndi­bita­staði og ald­ur­inn, því skiptum fækkar eftir því sem fólk verður eldra. Fólk yfir 66 ára fer að með­al­tali fimm sinnum í mán­uði á skyndi­bita­stað. 

Yngsti aldurshópurinn borðar oftast úti en eyðir ekki jafn miklu og þeir sem eldri eru.

Úrvinnsla Meniga byggir á töl­fræði­legum sam­an­tektum sem aldrei eru per­sónu­grein­an­leg­ar. Töl­urnar byggja á fjár­hags­legum 16 milljón færslum 50 þús­und not­enda sem veltu um 84 millj­örðum króna árið 2015. Meniga greinir ekki eftir heim­il­um, heldur með­al­talsnoktun ein­stak­linga. 

Oft­ast er mik­ill munur á útgjöldum fólks eftir ald­urs­hóp­um. Mesti mun­ur­inn er á veit­inga- og skyndi­bita­mark­aðn­um, en nær helm­ing­ur, eða 43 pró­sent, útgjalda ungs fólks á aldr­inum 16 til 25 ára fer í mat og veit­ing­ar. 

Eyðir tæpri milljón í mat

Þó að Íslend­ingar borði oft skyndi­bita og eyði hund­ruð þús­unda á ári í slíkan mat, þá er langstærsti útgjalda­lið­ur­inn mat­vöru­versl­an­ir. Sam­kvæmt tölum Meniga er fjöl­skyldu­fólk að eyða tæpum 900 þús­und krónum á ári í mat­vöru­versl­an­ir. 

Í þessum útgjalda­lið er mikið bil á milli ald­urs­flokka. Fjöl­skyldu­fólk í yngri kant­in­um, á aldr­inum 26 til 55 ára, eyðir mestu, eða um 75 þús­und krónum á mán­uði. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn eyðir um 25 þús­und krónum á mán­uði og sá elsti um 56 þús­und krón­um. 

Fólk á aldr­inum 36 til 45 ára fer að með­al­tali annan hvern dag í mat­vöru­versl­un, en tíðnin minnkar eftir því sem fólk verður eldra. Þó fer yngsti ald­urs­hóp­ur­inn sjaldn­ast í mat­vöru­búð, eða um þriðja hvern dag. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiInnlent
None