Enginn málalisti kominn og 18 dagar eftir

Málalisti ríkisstjórnarinnar er enn ekki kominn fram. Stjórnmálafræðingur segir afar erfitt fyrir ríkisstjórnina að bakka út úr loforðum um kosningar í haust. 18 dagar eru eftir af almennum þingfundardögum.

Langur verkefnalisti er á borði ríkisstjórnar Sigurðar Inga Jóhannssonar sem þarf að afgreiða á næstu vikum.
Langur verkefnalisti er á borði ríkisstjórnar Sigurðar Inga Jóhannssonar sem þarf að afgreiða á næstu vikum.
Auglýsing

Anna­samir tímar eru framundan á Alþingi. Sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins eru nú ein­ungis 18 þing­funda­dagar eftir af yfir­stand­andi lög­gjaf­ar­þingi, auk eld­hús­dags­ins, og fjöldi mála eftir að leggja fram og afgreiða. 

Fjöldi frum­varpa í tveimur málum

Eva Heiða Önnudóttir. Mynd: RÚVRík­is­stjórnin fund­aði lengi í gær­morgun um stöðu mála, en mála­list­inn fyrir núver­andi þing er enn ekki til­bú­inn. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu er ljóst að ein­hver vinna er eftir til að ná að negla niður for­gangs­röð­un­ina. Nokkur af þeim stóru málum sem liggja á borði rík­is­stjórn­ar­inn­ar, eins og afnám hafta og hús­næð­is­frum­vörp­in, eru afar umfangs­mikil og inni­halda hvert um sig mörg frum­vörp sem bíða afgreiðslu. 

For­sæt­is­ráð­herra hefur stað­fest að kosið verði til Alþingis í haust, en end­an­leg dag­setn­ing er ekki kom­in. Það sama hafa for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins gert. Afar erfitt verður fyrir rík­is­stjórn­ina að efna ekki það lof­orð, að mati Evu Heiðu Önnu­dótt­ur, stjórn­mála­fræð­ings við Háskóla Íslands. 

Auglýsing

„Þeir eru búnir að segja svo oft að það verði kosn­ingar í haust. Við höfum engar for­sendur til að ætla að það hafi verið meint á nokkurn annan hátt,” segir hún. „Þetta er mál sem verður mjög erfitt að bakka út úr. En það er núna bara spurn­ing um nákvæm­lega hvenær, hvort þær verða í sept­em­ber, októ­ber eða jafn­vel nóv­em­ber.” 

Bjarni vildi stytta um eitt lög­gjaf­ar­þing

Bjarni Bene­dikts­son sagði á blaða­manna­fundi á Alþingi í síð­ustu viku, þegar ný rík­is­stjórn Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar var til­kynnt, að ákveðið hafi verið að virkja lýð­ræðið og koma til móts við stöð­una sem hefur mynd­ast. „Við hyggj­umst stefna að því að stytta kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­ar­þing og halda kosn­ingar í haust. Nákvæm dag­setn­ing veldur á fram­vindu þing­mála,” sagði Bjarn­i. 

Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson sammæltust um að kosið yrði til Alþingis í haust. Mynd: Birgir Þór

Sam­kvæmt stjórn­ar­skránni er sam­komu­dagur Alþingis „hinn fyrsta dag októ­ber­mán­aðar eða næsta virkan dag ef helgi­dagur er.” Sam­komu­degi reglu­legs Alþingis má hins vegar breyta með lögum og það var gert með lögum um þing­sköp, en sam­kvæmt þeim er sam­komu­dagur Alþingis annar þriðju­dagur í sept­em­ber. Ef kjör­íma­bilið verður stytt um eitt lög­gjaf­ar­þing, eins og Bjarni sagði, þýðir það að í síð­asta lagi ætti að rjúfa þing mánu­dag­inn 11. sept­em­ber 2016. Þá yrði að kjósa í síð­asta lagi 45 dögum síð­ar. 

Sum­ar­þing ekki ólík­legt

Eva Heiða segir að var­lega verði þó að fara í að túlka orð Bjarna svo bók­staf­lega. Hennar skiln­ingur sé sá að það sé hægt að rjúfa þing í raun hvenær sem er. Og þó að sagt hafi verið að kjör­tíma­bilið beri að stytta um eitt lög­gjaf­ar­þing, gæti það verið ögn teygj­an­legra en þessar nið­ur­negldu dag­setn­ing­ar. 

Miðað við þann mála­fjölda sem á eftir að afgreiða á Alþingi má vel gera ráð fyrir að þing­inu verði fram­haldið inn í sum­arið - eða taki jafn­vel upp þráð­inn aftur í júlí eftir frí á meðan EM í fót­bolta og for­seta­kosn­ing­ar, með sögu­legum fjölda fram­bjóð­enda, ganga yfir. Svo kemur haust­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None