Presturinn sem hatar Ísland

Presturinn sem hélt þrumuræðu um Ísland og fordæmdi pistlahöfund Kjarnans er ekki að vekja athygli í fyrsta sinn. Fyrir nokkrum árum vildi hann taka samkynhneigt fólk af lífi og óskaði Obama dauða. Hann leiðir sértrúarsöfnuð í Arizona.

Steven Anderson með eiginkonu sinni, Zsuzsanna, og átta börnum.
Steven Anderson með eiginkonu sinni, Zsuzsanna, og átta börnum.
Auglýsing

Mynd­band með Steven And­er­son, presti og stofn­anda krist­ins sér­trú­ar­safn­aðar í Arizona­ríki í Banda­ríkj­un­um, hefur verið dreift víða á sam­fé­lags­miðlum í dag. Séra And­er­son talar þar við söfnuð sinn um bastarða­landið Ísland þar sem hlut­fall ógiftra mæðra er hátt og notkun þung­lynd­is­lyfja sé hvergi meiri í heim­in­um. And­er­son er mikið niðri fyrir í mynd­band­inu og verður afar reið­ur, hækkar róm­inn og ber í pont­una þegar hann talar um Ísland: „femínista­hel­víti” þar sem ógiftar mæður leika lausum hala. 

Sagði pistla­höf­und Kjarn­ans poppa þung­lynd­is­lyf

And­er­son nefnir þar sér­stak­lega Bryn­dísi Evu Ásmunds­dóttur á nafn og gerir við­tal við hana að umtals­efni um sam­setn­ingu fjöl­skyldu henn­ar. Í ljósi þess að hún ætti börn með tveimur mönnum hlyti hún að hafa lokið við­tal­inu með því að „poppa eina töflu." Bryn­dís skrif­aði pistil í Kjarn­ann í sept­em­ber síð­ast­liðnum sem fjall­aði um sama efni og bar heitið „Okk­ar”. Bryn­dís sagði þar: „Ég á sam­­setta fjöl­­skyldu. Í því felst að ekki eru blóð­­­tengsl milli allra fjöl­­skyld­u­­með­­lima. Hér eru mín og þarna eru þín og úr verður eitt­hvað okk­­ar. Ekki svo ýkja óal­­gengt fyr­ir­komu­lag á Íslandi, enda hrökkva fáir við og fyll­­ast skelf­ingu þegar ég útskýri fjöl­­skyld­una mína.”

Hún var einnig til við­tals í þætt­in­um „The Wonder List" á CNN í jan­úar þar sem umfjöll­un­ar­efnið var heims­met Íslend­inga í fæð­ingum barna utan hjóna­bands. Þar ræddi hún ásamt Sig­urði Egg­erts­syni, sam­býl­is­manni sín­um, um barn­eignir og hjóna­bönd, en þau áttu bæði börn með öðru fólki þegar þau kynnt­ust. Í þætt­inum sagði hún m.a.: „Það er mjög algengt á Íslandi að konur eign­ist börn á þess að vera í hjóna­bandi. Hér er fólk oft í sam­bandi í langan tíma áður en það eign­ast barn. Fólk gengur oft í hjóna­band eftir að það eign­ast barn[...]Ég held að það sé vegna þess að við búum í svo litlu og öruggu sam­fé­lagi. Hér hafa konur mikið frelsi og geta gert allt sem þeim langar til að ger­a".

Auglýsing

Án efa var það umfjöllun CNN sem vakti athygli And­er­son á Íslandi og Bryn­dísi.



Vildi taka sam­kyn­hneigða af lífi

And­er­son stofn­aði sér­trú­ar­söfn­uð­inn Fait­h­ful Word Bapt­ist Church í lok árs 2005. Hann er ekki mennt­aður en á heima­síðu hans segir að „hann hafi ferð­ast í þrjá mán­uði um Þýska­land og Aust­ur-­Evr­ópu þegar hann var 18 ára og lærði þar erlend tungu­mál.” Hann kynnt­ist þar eig­in­konu sinni og hefur á 15 árum eign­ast með henni átta börn. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem And­er­son ratar í frétt­irnar en árið 2014 birt­ist blogg á síðu Huffington Post, sem til­einkað er LGBT sam­fé­lag­inu, undir fyr­ir­sögn­inni: „Má ég kynna prest­inn sem sagð­ist vona að ég fengi krabba­mein og dæi.” Höf­undur lýsir þar reynslu sinni af honum í kjöl­far þess að hann sagð­ist vilja láta taka sam­kyn­hneigt fólk af lífi til að ráða nið­ur­lögum eyðni­sjúk­dóms­ins. Í pistl­inum er farið yfir hin ýmsu ummæli And­er­son, meðal ann­ars þegar hann hélt ræðu undir yfir­skrift­inni „Ástæða þess að ég hata Barrack Obama” sem sneri að því að hann bað til Guðs um að for­set­inn myndi láta líf­ið. 

Klippta, þriggja mín­útu útgáfu af mynd­band­inu má nálg­ast hjá Nútím­an­um. Hér fyrir neðan má sjá predikun And­er­son í heild sinn­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None