49 mál bíða samþykktar og 20 þingfundir eftir

49 stjórnarfrumvörp bíða samþykktar á Alþingi, en 14 eru enn ekki komin inn til þingsins. Búið er að samþykkja 36 stjórnarfrumvörp á núverandi þingi. Ólöf Nordal hefur lagt fram flest mál. Ekkert bólar á dagsetningu fyrir kosningar.

Alþingi hefur nú tuttugu almenna þingfundardaga til stefnu til að samþykkja 49 stjórnarfrumvörp sem bíða afgreiðslu.
Alþingi hefur nú tuttugu almenna þingfundardaga til stefnu til að samþykkja 49 stjórnarfrumvörp sem bíða afgreiðslu.
Auglýsing

Níu þing­fund­ar­dagar eru eftir þar til þing fer í sum­ar­frí, að Eld­hús­deg­inum með­töld­um. Þing kemur saman á ný í ágúst þar sem gert hefur verið ráð fyrir 13 þing­fund­ar­dög­um, með öðrum Eld­hús­degi. Búist er við þing­frestun 2. sept­em­ber. Alls eru þetta þá 20 almennir þing­fund­ar­dagar sem ákveðið hefur verið að setja á dag­skrá þings­ins á þessu síð­asta kjör­tíma­bili fyrir kosn­ing­ar, sam­kvæmt nýend­ur­skoð­aðri starfs­á­ætlun þings­ins, og tveir Eld­hús­dag­ar. Enn er ekki komin dag­setn­ing á haust­kosn­ingar og ekki er vitað hvenær hún verður ákveð­in. For­sæt­is­ráð­herra er sá eini sem hefur vald til þess að rjúfa þing og þarf til þess leyfi frá for­seta Íslands. Þing­rof og stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður verða því eitt af fyrstu verk­efnum nýs for­seta.  

Gert ráð fyrir sum­ar­fund­um 

Starfs­á­ætlun þings­ins var end­ur­skoðuð í vik­unni vegna fyr­ir­hug­aðra kosn­inga. Gert er ráð fyrir sum­ar­fund­um, en sam­kvæmt áætl­un­inni verður síð­asti þing­fundur vors­ins þann 2. júní og hefj­ast fundir svo á ný þann 15. ágúst. Vik­una eftir 2. júní taka við nefnd­ar­dagar og síðan fer þing í sum­ar­frí. Þing­menn mæta á ný til nefnda eftir sum­ar­ið, dag­ana 10., 11. og 12. ágúst áður en þing­fundir fara aftur á dag­skrá. 

Auglýsing

LÍN, sér­eigna­sparn­aður og Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður enn ekki komið

Sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar eru enn fjöl­mörg laga­frum­vörp sem enn eru ekki komin inn í þing­ið. Alls eru það 14 frum­vörp, frá öllum ráð­herrum, að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra und­an­skild­um. Öll hans mál eru komin til þings­ins. 

  • For­sæt­is­ráð­herra (1): Breyt­ingar á stjórn­ar­skránni.
  • Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra (3): Almanna­trygg­ing­ar, Íbúð­ar­lána­sjóður og Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóð­ur. 
  • Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra (4): Stöð­ug­leik­a­reikn­ing­ar, líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og líf­eyr­is­sjóður hjúkr­un­ar­fræð­inga, skatt­frjáls úttekt á sér­eigna­sparn­aði kaup­enda íbúð­ar­hús­næðis og verð­trygg­ingu og bún­að­ar­gjald.
  • Inn­an­rík­is­ráð­herra (2): Lög­reglu­lög, með­ferð kvart­ana og kæru­mála vegna starfa lög­reglu, og umferð­ar­lög varð­andi gjald­töku á bíla­stæð­u­m. 
  • Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra (2): Heild­ar­lög um LÍN og lög um sam­komu­lag milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um stuðn­ing við tón­list­ar­nám.
  • Umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra (1): Timbur og timb­ur­vörur bíður einnig, sem og lög utan­rík­is­ráð­herra um þjóðar­ör­ygg­is­ráð.

Ólöf Nordal, Sigurður Ingi Jóhannsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Kristján Þór Júlíusson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Bjarni Benediktsson, Illugi Gunnarsson, Eygló Harðardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigrún Magnúsdóttir.

Tíu mál ekki komin á dag­skrá

Tíu stjórn­ar­frum­vörp eru komin inn, en bíða samt enn fyrstu umræðu, þar á meðal lög um Umhverf­is­stofn­un, Menn­ing­arminjar, sigl­ingar og loft­ferð­ir. Ekk­ert af þessum tíu frum­vörpum er komið á dag­skrá, en áður­nefndu frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra um menn­ing­arminjar var frestað. Þetta er eitt tveggja frum­varpa sem for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram. Hitt var lög um notkun þjóð­fána Íslend­inga við mark­aðs­setn­ingu og hafa þau verið sam­þykkt. 

Búið er að sam­þykkja 39 stjórn­ar­frum­vörp á þessu lög­gjaf­ar­þingi, meðal ann­ars almenn hegn­ing­ar­lög, lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki, lög um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, nátt­úru­vernd­ar­lög, heild­ar­lög um opin­ber fjár­mál, lög um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, lög um stöð­ug­leika­fram­lag, tekju­skjatt og fleiri skatta og gjöld.

Félags­í­búðir og gisti­staðir aftur í nefnd 

36 mál rík­i­s­tjórn­ar­innar eru enn í nefnd eftir fyrstu umræðu. Þar á meðal eru lög um árs­reikn­inga, búvöru­lög, heild­ar­lög um fast­eigna­lán til neyt­enda, lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki, húsa­leigu­lög, heild­ar­lög um hús­næð­is­bæt­ur, lög um skatta og gjöld, lög um Sjúkra­trygg­ing­ar, lög um stað­göngu­mæðr­un, lög um vexti og verð­trygg­ingu og lög um útlend­inga. 

Eitt mál bíður ann­arrar umræðu á Alþingi og það eru lög um hand­töku og afhend­ingu manna til og frá Íslandi á grund­velli hand­töku­skip­un­ar. 

Tvö frum­vörp eru nú í nefnd eftir aðra umræðu á Alþingi: Lög um almennar félags­í­búð­ir, frá Eygló Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, og lög um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald, frá Ragn­heiði Elínu Árna­dótt­ur, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra. 

Ólöf hefur vinn­ing­inn 

Séu öll mál skoðuð eftir ráð­herrum sést að Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra er með flest mál, 26, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er með 20 og Sig­rún Magn­ús­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, er með ell­efu. Utan­ríki­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, sem skipt­ast á milli Gunn­ars Braga Sveins­sonar og Lilju Alfreðs­dótt­ur, og Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar og Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, eru með fæst mál, tvö á hvorn ráð­herra.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None