Húsnæðisbætur verða greiddar út frá Sauðárkróki

Tólf til fjórtán ný störf verða til á nýrri þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki. Það „skemmdi ekki fyrir“ að hægt var að finna skrifstofunni stað í Norðvesturkjördæmi, þar sem ríkisstjórnin hefur lofað að fjölga störfum.

img_4555_raw_0710130525_10191436836_o.jpg
Auglýsing

Tólf til fjórtán manns munu vinna við að greiða út hús­næð­is­bætur í nýju kerfi sem tekur gildi í byrjun næsta árs. Ný skrif­stofa verður sett á lagg­irnar hjá Vinnu­mála­stofnun sem sér um bæt­urn­ar. Hún verður stað­sett á Sauð­ár­króki. 

Gissur Pét­urs­son, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­un­ar, segir að fleiri staðir hafi komið til greina þegar farið var að skoða hvar þessi nýja skrif­stofa ætti að vera. „Ég var mik­ill tals­maður þess að þessu yrði fund­inn staður ein­hvers staðar á lands­byggð­inni. Það er mín skoðun að það falli sjaldan til verk­efni hjá rík­inu sem eru eins vel til þess fall­in.“ Það hafi verið skoðað hvort hægt væri að bæta þess­ari skrif­stofu við á ein­hvern þeirra staða sem Vinnu­mála­stofnun er þegar með starf­semi á. Það hafi gef­ist mjög vel að vera með skrif­stofur á lands­byggð­inni þar sem raf­ræn þróun leyfi það að þjón­ustu­ein­ing sé ekki þar sem kúnn­arnir séu. 

Gissur segir hins vegar að reynslan hafi sýnt að svona sér­hæfður vinnu­staður af þess­ari stærð­argráðu þarfn­ist öfl­ugs bak­lands. Því hafi fljótt orðið ljóst að ekki myndi henta að finna skrif­stof­unni stað á Hvamms­tanga eða Skaga­strönd, þar sem séu þjón­ustu­skrif­stof­ur. 

Auglýsing

„Þá fórum við svona að skoða og það vill nú svo til að þarna á Sauð­ár­króki er önnur stofnun sem heyrir undir vel­ferð­ar­ráðu­neytið sem er Íbúða­lána­sjóð­ur, sem er að minnka við sig og fækka fólki og það varð nið­ur­staðan að við myndum stíga inn í það eftir sam­töl við þá stofn­un.“ 

„Skemmdi ekki fyr­ir“ að vera í Norð­vest­ur­kjör­dæmi

Gissur segir að ákvörð­unin um stað­setn­ingu skrif­stof­unnar hafi verið tekin í sam­ráði við vel­ferð­ar­ráðu­neyt­ið. Spurður að því hvort þessi ákvörðun sé tekin með hlið­sjón af lof­orðum rík­is­stjórn­ar­innar um að fjölga störfum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, segir hann að það „skemmdi ekki fyr­ir“. Með til­liti til lof­orða stjórn­valda hafi Vinnu­mála­stofnun verið að reyna að styrkja starf­semi sína á Hvamms­tanga. 

Rík­is­stjórnin til­kynnti um það rétt fyrir síð­ustu jól að ákveðið hefði verið að „styrkja inn­viði, atvinnu­líf og sam­fé­lag á Norð­ur­landi vestra með marg­vís­legum aðgerð­u­m.“ Mark­miðið var að skapa þjóð­hags­legan ávinn­ing og aðstæður svo að góðum fram­tíð­ar­störfum á svæð­inu fjölgi. Þessi ákvörðun vakti athygli og umtal, eins og Kjarn­inn greindi frá í frétta­skýr­ingu þá

Til­gangur aðgerða stjórn­valda var að snúa við nei­kvæðri byggða­þróun á Norð­vest­ur­landi. Íbúum þar hefur fækkað tals­vert og hag­vöxtur er minni en víða ann­ars stað­ar. 

Engu að síður hefur atvinnu­leysi verið minnst eða næst­minnst á þessu svæði síð­ustu tíu árin. Þá er fjórð­ungur allra starfa á Norð­ur­landi vestra í opin­berri þjón­ustu, eða 26%. Hvergi var hlut­fall opin­berrar þjón­ustu hærra en á Norð­ur­landi vestra árið 2013, sam­kvæmt skýrslu Byggða­stofn­unar sem kom út í fyrra. 

Kostar 140 að koma kerf­inu á lagg­irnar

Það er Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sem fer með íbúða­mál og ákvað að fela Vinnu­mála­stofnun fram­kvæmd hús­næð­is­bóta, en frum­varp um hús­næð­is­bætur var sam­þykkt í þing­inu fyrir sum­ar­frí. Sam­kvæmt því hækka bæt­urnar og ríkið tekur yfir hefð­bundnar húsa­leigu­bætur í stað sveit­ar­fé­laga, sem munu áfram sjá um sér­stakar húsa­leigu­bæt­ur. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er kostn­aður vegna hús­næð­is­bót­anna 140 millj­ónir króna vegna rekstr­ar- og stofn­kostn­aðar á þessu ári. Þá er áætlað að það muni kosta 111 millj­ónir króna árlega að reka hús­næð­is­bóta­kerf­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None