alþingi þing
Auglýsing

Ísland hefur frá því á föstu­dag­inn verið dæmt í fimm málum fyrir EFTA dóm­stóln­um, og í öllum til­vikum hefur íslenska ríkið verið dæmt til þess að greiða allan máls­kostnað vegna mála­ferl­anna. Dómar voru kveðnir upp á föstu­dag og þriðju­dag. 

Fjögur mál­anna voru höfðuð af ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, vegna þess að Ísland hafði ekki inn­leitt Evr­óputil­skip­anir á réttum tíma. Það fimmta snýr að því að Ísland end­ur­heimti ekki ólög­mæta rík­is­að­stoð frá fimm fyr­ir­tækjum eins og ESA hafði kveðið á um að ætti að ger­a. 

Sem fyrr segir eru fjögur mál til­komin vegna þess að Ísland inn­leiddi ekki Evr­óputil­skip­an­ir, sem rík­inu ber að gera vegna EES samn­ings­ins. Tímara­mmi er settur öllum ríkjum til þess að taka upp til­skip­anir af þessu tagi, og þegar Ísland inn­leiðir ekki á réttum tíma fer eft­ir­lits­stofnun EFTA í mál­ið. Íslensk stjórn­völd fá þá form­leg bréf þar sem þeim er til­kynnt að þau hafi með því brotið gegn EES samn­ingn­um. Í þremur þess­ara mála svör­uðu íslensk stjórn­völd ekki bréfum ESA. 

Auglýsing

Næsta skref ESA er þá að senda frá sér rök­stutt álit með nið­ur­stöðu, þar sem Íslandi er gert að grípa til aðgerða innan tveggja mán­aða. Í sömu þremur mál­unum var því ekki heldur svar­að. 

Þá er síð­asta skrefið að fara í mál fyrir EFTA dóm­stólnum og fá brot á EES samn­ingnum stað­fest, sem var gert í öllum til­vik­um. 

Inn­leið­ing­ar­hall­inn verstur hér

Ísland stendur sig verst allra þeirra 31 ríkja sem eiga aðild að Evr­­ópska efna­hags­­svæð­inu (EES) í að inn­­­leiða til­­­skip­­anir sem ríkin hafa skuld­bundið sig til að inn­­­leiða í lög innan tíma­­marka. Þetta er iðu­lega kallað inn­leið­ing­ar­halli, og inn­­­leið­ing­­ar­halli Íslands er 1,8 pró­­sent. Hin EFTA-­­ríkin sem eru aðilar að EES, Liect­­hen­­stein og Nor­eg­­ur, standa sig mun bet­­ur. Í Liect­­hen­­stein er inn­­­leið­ing­­ar­hall­inn 1,2 pró­­sent en í Nor­egi eng­inn. Meðal inn­­­leið­ing­­ar­hali í Evr­­ópu­­sam­­bands­­ríkjum er 0,7 pró­­sent.

Í nýjasta frammi­stöðu­mati ESA frá því um miðjan júlí kemur fram að Ísland hafi ekki inn­leitt 16 til­skip­anir innan tíma­marka. „Þegar EES-­­ríki inn­­­leiðir ekki til­­­skipun innri mark­að­­ar­ins á réttum tíma fá ein­stak­l­ingar og fyr­ir­tæki ekki notið þeirra rétt­inda sem hún felur í sér. Íslensk fyr­ir­tæki kunna til dæmis að úti­­lok­­ast frá aðgangi að innri mark­að­inum ef sam­ræmdar tækn­i­­legar reglur eru ekki inn­­­leidd­­ar. Því lengur sem inn­­­leið­ing dregst, því alvar­­legri geta afleið­ing­­arnar orð­ið,“ sagði í frammi­stöðu­mat­in­u. 

ESA hefur ítrekað sagt að Ísland þurfi að standa sig miklu betur til að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart inn­leið­ingu á lögum og reglum EES samn­ing­ins. 

Þvert gegn Evr­ópu­stefn­unni 

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­far þess að frammi­stöðu­matið var birt um miðjan júlí. Þar kom fram að Ísland hafi stöðugt verið að bæta þessa hlið á fram­kvæmd EES samn­ings­ins. Í nóv­em­ber 2014 hafi hall­inn verið 2,8% og 3,1% í apríl sama ár. 

Í mars 2014, stuttu eftir að íslensk stjórn­völd höfðu sent bréf til Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem því var lýst yfir að Ísland væri ekki lengur umsókn­ar­ríki að ESB, kynntu stjórn­völd nýja Evr­ópu­stefnu sína. 

Þar var því lýst yfir að ráð­ast ætti í mikið átak til að gera betur í þessum mál­u­m. Á árinu 2014 átti upp­töku gerða í EES-­samn­ing­inn að vera hraðað umtals­vert og eigi síðar en á fyrri hluta árs 2015 átti inn­leið­ing­ar­halli EES gerða að vera kom­inn undir 1%. Á sama tíma átti ekk­ert dóms­mál að vera fyrir EFTA dóm­stólnum vegna skorts á inn­leið­ingu EES gerða. 

Mál­unum fyrir EFTA dóm­stólnum hefur hins vegar fjölg­að, en sjö mál gegn Íslandi hafa verið í vinnslu hjá dóm­stólnum und­an­far­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None