Sjálfakandi bílar til þjónustu reiðubúnir

Uber er á fullri ferð með þróun sjálfakandi bíla.

Uber
Auglýsing

Uber, sem hefur komið eins og storm­sveipur á leigu­bíla­mark­að um allan heim, er komið langt með að þróa sjálfa­kandi bíla og er þessa dag­ana að prófa þá þjón­ustu á við­skipta­vinum sínum í Pitts­burgh. Tækni­vef­ur­inn The Verge greindi frá því í síð­ustu viku að Uber væri nú komið með sjálfa­kandi bíla á göt­una sem myndu skutla ein­staka við­skipta­vinum á milli staða á næstu mán­uð­u­m, undir ströngu eft­ir­liti við­skipta­þró­un­ar­sviðs Uber.

Sjálfa­kandi Vol­vo-ar

Bíl­arnir sem not­aðir eru í þessa til­rauna­starf­semi eru Vol­vo XC90 jebb­ar. Öku­menn verða undir stýri og annar til við­bótar mun fylgj­ast með­ að allt fari rétt fram. Flókn­ast í þess­ari þróun er hug­bún­aður sem not­aður er til að meta umferð­ina og umhverf­ið, í sam­hengi við nákvæmt kor­ta­kerfi sem bíl­arnir búa yfir.

Fari svo að þetta gangi vel, þá mun ekki líða langur tím­i þar til fleiri borgir bæt­ast við. Uber er nú aðgengi­legt í flestum stærst­u ­borgum heims­ins og hefur sér­stak­lega haft mikil áhrif í stærstu borgum heims­ins.

Auglýsing

Tveggja ára ferli

Frá því árið 2014 hefur þróun Uber á sjálfa­kandi bílum ver­ið unnin að miklu leyti í Pitts­burgh, í sam­vinnu við verk­fræð­inga við Carneg­ie ­Mellon Uni­versity. Þar hefur á und­an­förnum árum verið sér­stak­lega metn­að­ar­full vinna við að þróa gervi­greind og ákvað Uber að stað­setja kjarna­starf­semi sína í tækni­þróun í nálægð við skól­ann (Advanced Technologies Center).



Eftir að hafa sótt mikið fjár­magn til fjár­festa á árun­um 2013 og 2014 var settur mik­ill kraftur í að þróa sjálfa­kandi bíla sem eru með­ há­tækni­legan hug­búnað sem gerir hina sjálf­virku þjón­ustu mögu­lega.

Sam­kvæmt skrifum The Verge þá er Uber með meira en hund­rað verk­fræð­inga í vinnu við að þróa þessi mál áfram. Ekki er vitað hvenær Uber hyggst vera búið að þróa hug­bún­að­inn, og hefja þá um leið að not­ast við ­sjálfa­kandi bíla fyrir fólk og vöru­flutn­inga, en aug­ljóst er að fyr­ir­tæk­ið ­leggur mikla áherslu á að flýta ferl­inu sem mest og vera leið­andi á þessu svið­i á heims­vísu.

Uber birtist með þennan bíl á götunni í Pittsburgh í maí. Hann var notaður í að þróa sjálfakandi tækni, sem bíla fyrirtækisins munu notast við.

Google hefur lengi unnið að þróun lausna á þessu sviði, og ver­ið ­með sjálfa­kandi bíla á göt­unni í Kali­forníu und­an­farin tvö ár. Uber hefur ekki verið með sín áform á yfir­borð­inu fyrr í vor að fólk í Pitts­burgh tók eftir því að Ford Fusion bíll, sem virt­ist vera stjórnað með sjálfa­kandi hug­bún­aði, sást á göt­unum í borg­inni. Þetta reynd­ist vera rétt og sendi Uber frá sér fyrst­u op­in­beru mynd­ina af sjálfa­kandi bíl fyr­ir­tæk­is­ins í maí á þessu ári.

Gjör­breyttur bíla­iðn­aður

Í síð­ustu viku til­kynnti Uber um samn­ing við Volvo upp á 300 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem 36 millj­örðum króna, þar sem fyr­ir­tækin vinna í sam­ein­ingu að því að þróa sjálfa­kandi bíla. Volvo stefnir að því að hafa lokið við þróun á sjálfa­kandi bíl fyrir opin­beran markað árið 2021 sem er ­sam­bæri­legt mark­mið og Ford, Toyota og Honda hafa sett sér. Er sam­hliða þessum ­mark­miðum unnið að fram­þróun raf­tækn­inn­ar, og eru nú flestir stærst­u bíla­fram­leið­endur heims­ins að vinna mark­visst að því að þróa raf­bíla af öll­u­m ­stærðum og gerð­u­m. 

„Fram­tíð­in, eins og hún birt­ist okk­ur, er að nálg­ast hratt,“ segir í lok umfjöll­unar The Verge um áform Uber, en fyr­ir­tækið er nú metið á um 62,5 millj­arða Banda­ríkja­dala, miðað við verð­mið­anna sem not­aður var í síð­ustu fjár­mögnun fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None