Hversu miklar tekjur hefur ríkissjóður haft af veiðigjöldum síðan 2005 á verðlagi ársins 2015?

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, svarar fyrstu spurningunni á Staðreyndavaktinni.

iceland-heimaey-island_14142094561_o.jpg
Auglýsing

Hér á eftir birt­ist fyrsta svarið í Stað­reynda­vakt­inni. Svarið kemur frá stað­reynda­vakt Vís­inda­vefs­ins, og má einnig finna á vef Vís­inda­vefs­ins. 

Í töflu 1 má finna yfir­lit yfir inn­heimt veiði­gjöld á árunum 2005 til 2014 sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fjár­sýslu rík­is­ins. Einnig er sýnd áætluð inn­heimta árs­ins 2015 og áætlun í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2016 um inn­heimt veiði­gjöld á því ári sem nú er að líða.

Tafla 1: Inn­heimt veiði­gjöld frá 2005-2016.

ÁrVeiði­gjald, millj­ónir króna, hlaup­andi verð­lag
2005786
2006432
2007875
2008-270
20091.015
20102.265
20113.893
20129.836
20139.724
20148.121
20157.410
20167.852

Vert er að vekja athygli á að inn­heimt gjald árið 2008 telst nei­kvætt þar sem gjaldið sem hafði verið lagt á fyrir fisk­veiði­árið 2007/2008 var lækkað með lögum nr. 151/2007 sem tóku gildi 29. des­em­ber 2007.

Auglýsing

Tafla 1 ber með sér að inn­heimt gjald var hæst árið 2012, rétt tæpir 10 millj­arðar króna á hlaup­andi verð­lagi. Sam­tals voru greiddir 52 millj­arðar króna í veiði­gjöld á tíma­bil­inu.

Tafla 2 sýnir stað­virtar upp­hæðir þar sem not­ast er við þrjár ólík­ar verð­vísi­tölur til stað­virð­ing­ar­inn­ar. Í fyrsta lagi er það verð­vísi­tala sjáv­ar­af­urða, í öðru lagi verð­vísi­tala sam­neysl­unnar og í þriðja lagi vísi­tala neyslu­verðs. Graf 1 sýnir sömu upp­lýs­ingar á grafi.

Tafla 2: Inn­heimt veiði­gjöld frá 2005-2016 miðað við þrjár ólíkar verð­vísi­tölur til stað­virð­ing­ar. Upp­hæðir eru í millj­ónum króna.

ÁrFast verð­lag 2015 (verð­vísi­tala sjáv­ar­af­urða)Fast verð­lag 2015 (verð­lag sam­neyslu)Fast verð­lag 2015 (neyslu­verðs­vísi­tala)
20052.2621.5001.378
2006977758710
20071.8941.4411.368
2008-406-402-376
20091.2761.3721.261
20102.7482.9142.669
20114.2124.7504.411
20129.93111.35310.596
201310.45810.77310.084
20148.6558.6688.254
20157.4107.4107.410



Graf 1: Inn­heimt veiði­gjöld frá 2005-2016 miðað við þrjár ólíkar verð­vísi­tölur til stað­virð­ing­ar. Upp­hæðir eru í millj­ónum króna.

Í öllum til­vikum eru fjár­hæðir færðar til verð­lags árið 2015. Ekki er gerð til­raun til að færa áætl­aða inn­heimtu árs­ins 2016 til verð­lags árs­ins 2015. Töl­urnar bera með sér að verð­mæti veiði­gjalds­ins hafi hækkað mikið milli áranna 2011 og 2012 og fari síðan lækk­andi frá árinu 2013.



Upp­runa­lega spurn­ingin var: Hversu miklar tekjur hefur ríkið af veiði­gjöldum og er rétt að útgerðin greiði lægri veiði­gjöld nú en áður?

Svarið er að á árunum 2005-2016 fékk ríkið 52 millj­arða króna í veiði­gjöld og þau hafa farið lækk­andi frá árinu 2012.

Sjá einnig hvað útgerðin hefur borgað í veiði­gjald á hvert þorskígildiskíló frá árinu 2005.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiStaðreyndavaktin
None