Olíuverð rýkur upp – Samþykkt að draga úr framleiðslu

OPEC ríkin náðu saman um að draga úr olíuframleiðslu. Áhrifin komu strax fram, í hækkandi verði.

Olíutunna
Auglýsing

Verð á olíu hækk­aði mikið í gær á alþjóða­mörk­uð­um, og er því ­spáð víða, að svo geti farið að olíu­verð muni hækka nokkuð á næst­unni. Í Banda­ríkj­unum nam hækk­unin á tunn­unni af hrá­olíu 5,6 pró­sentum sem telst mik­ið á einum degi. Kost­aði tunnan rúm­lega 47 Banda­ríkja­dali í lok dags í gær

Fram­leiðslan skorin niður

Ástæðan fyrir því að olíu­verð geti hækkað á næstu miss­erum, hefur ekki síst verið sögð stjórn­ast af því að olíu­fram­leiðslu­ríkin í OPEC muni ná sam­komu­lagi um að draga úr fram­leiðslu, meðal ann­ars til að meira jafn­væg­i ­ná­ist á mark­aðnum á heims­vísu. Mikið offram­boð af olíu hefur leitt til lágs verðs.

Í gær bár­ust svo fréttir af því að óform­legu sam­komu­lagi hefði verið náð um að draga úr fram­leiðslu. Talið er að verðið geti farið hækk­andi á næstu miss­erum vegna þessa, en frek­ari sam­dráttur í fram­leiðslu gæti verið í kort­un­um, sam­kvæmt umfjöllun CNN. Þetta er fyrsta óform­lega sam­komu­lag OPEC ríkj­anna, um að draga úr fram­leiðslu, síðan 2008. Ekki er þó talið öruggt að form­legt sam­komu­lag náist, en næsti fundur OPEC er á dag­skrá í nóv­em­ber. Áhrifin gætu orðið víð­tæk, og þykir ákvörð­unin enn fremur sýna að heims­bú­skap­ur­inn sé að glíma við tölu­verðan slaka þessi miss­er­in.

Auglýsing

Bens­ín­vaktin

Á Íslandi gætu afleið­ing­arnar af því birst einkum í hækk­and­i bens­ín­verði, en síðan óbeint í hærra verði á inn­fluttum vör­um. Sem ýtir svo undir verð­bólgu almennt, en hún hefur hald­ist lág að und­an­förnu og mælist nú 0,9 pró­sent. Les­endur eru hvattir til að fylgj­ast vel með þró­un­inni á bens­ín­vakt Kjarn­ans, en henni er ætlað að auð­velda fólki að fylgj­ast með gang­i ­mála á þessum mik­il­væga neyt­enda­mark­aði.

Á und­an­förnum tveimur árum hefur verð á olíu lækkað hratt. Það hefur farið úr 110 Banda­ríkja­dölum á tunn­una í 40 til 50 Banda­ríkja­dali nú, en það hefur sveifl­ast á því bili á und­an­förnum mán­uð­um. Lægst fór verðið í 26 Banda­ríkja­dali í febr­ú­ar, en hefur síðan verið að fær­ast hægt upp á við. 

Þessi mikla lækkun á olíu hefur komið sér vel fyrir Ísland, þar sem dregið hefur úr verð­bólgu­þrýst­ingi, og olíu­kostn­að­ur, t.d. útgerða og flug­fé­laga, hefur lækkað veru­lega.



Sádí-­Ar­abía og Íran

Orku­mála­ráð­herra Sádí-­Ar­ab­íu, Khalid al-Falih, lét hafa eftir sér í gær, í við­tali við Wall Street Journa­l, að svo gæti farið að frekara sam­komu­lag, sem gæfi meiri vís­bend­ingar um stöðu mála til fram­tíð­ar, myndi nást á milli OPEC ríkja á fyr­ir­hug­uðum fundi þeirra í nóv­em­ber.

Full­trúar stjórn­valda í Íran hafa barist gegn því að fram­leiðsla verði dregin sam­an. Íran er nú byrjað að byggja upp hag­kerfið á nýjan leik, eftir að við­skipta­þving­anir voru felldar niður á land­ið, og mynd­i fram­leiðslu­minnkun hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir Íran. 

Aðrar olíu­fram­leiðslu­þjóð­ir, eins og Nor­eg­ur, Rúss­land og Brasil­ía, sem standa utan OPEC sam­tak­anna, hafa frekar talað fyrir því að jafn­vægi verð­i komið á milli fram­boðs og eft­ir­spurnar – þá með fram­leiðslu­minnkun – svo að verðið geti farið að fær­ast upp á við. Í Nor­egi hefur verið talað um sárs­auka­mörk olíu­iðn­að­ar­ins í land­inu séu í kringum 63 Banda­ríkja­dali á tunn­una, ­sem er óra­fjarri stöðu mála nú.

Sádí-­Ar­abía er stærsti ein­staki olíu­fram­leið­andi heims­ins, og segir í umfjöllun CNN að stærstur hluti fram­leiðslu­minnk­un­ar­innar mun verða hjá fursta­rík­inu í mið­aust­ur­lönd­um.

Til OPEC ríkja telj­ast Alsír, Angóla, Ekvador, Íran, Írak, Gabon, Katar, Kúveit, Líbýa, Níger­ía, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­in, Sádí-­Ar­abía og Venes­ú­ela. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None