Félag íslenska ríkisins, Lindarhvoll ehf., hefur á undanförnum vikum selt 6,38 prósent hlut í Reitum fyrir 3,9 milljarða og 13,93 prósent hlut í Sjóvá fyrir 2,8 milljarða. Kaupendur voru fjárfestar á markaði, lífeyrissjóðir, bankar og tryggingarfélög þar á meðal. Landsbankinn annaðist söluna sem fór fram í opnu söluferli á markaði.
Lyfja í söluferli
Hinn 5. október næstkomandi rennur út frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum í Lyfju hf. sem ríkið á að fullu eftir að hafa eignast fyrirtækið þegar slitabú hinna föllnu banka greiddu stöðugleikaframlag til ríkisins.
Þeim sem eiga hagstæðustu tilboðin verður boðin áframhaldandi þátttaka í ferlinu og munu þeir fá aðgang að rafrænu gagnaherbergi með ítarlegri gögnum, kynningu á félaginu frá stjórnendum Lyfju hf. og gefast kostur á að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu. Það er Virðing hf. sem sér um söluna.
Glitnir, Klakki og Gamli Byr
Hinn 29. september síðastliðinn auglýsti ríkið svo eignarhluti sína í Glitni Holdco ehf., Klakka ehf., og Gamla Byr Eignarhaldsfélagi ehf.
Söluferlið byggir á samþykktum reglum um sölu eigna ríkissjóðs sem eru í umsýslu Lindarhvols ehf., þar sem kemur fram að við sölu eigna skuli leggja áherslu á gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Með hagkvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignirnar, eins og segir á vef Lindahvols.
Söluferlið er opið öllum aðilum gegn undirritun þeirra á trúnaðaryfirlýsingu og skilmálabréfi.
Fjárfestar sem þess óska verður boðið að taka þátt í söluferlinu gegn undirritun þeirra á trúnaðaryfirlýsingu og skilmálabréf þar að lútandi.
Áhugasömum bjóðendum er boðið að skila inn skuldbindandi tilboðum með sérstaklega tilgreindum fyrirvörum fyrir kl. 16.00, föstudaginn 14. október 2016, að því er segir í auglýsingu..
Miklar eignir
Verðmætin, sem slitabú viðskiptabankanna þriggja auk minni slitabúa lögðu fram í tengslum við gerð nauðasamninga, má í meginatriðum flokka í laust fé, framsalseignir og framlag vegna viðskiptabanka.
Þar á meðal var eignarhlutur í Íslandsbanka og skuldabréf sem Kaupþing gaf út með veði í Arion banka hf. Skuldabréfið verður greitt upp við sölu Arion banka hf. en ríkissjóður fær vaxtatekjur af bréfinu fram að því. Með öðrum orðum þá fær ríkissjóður söluandvirði Arion banka.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka og einnig í Landsbankanum. Lindarhvoll annast umsýslu, fullnustu og sölu annarra eigna og hafa eftirlit með svonefndum fjársópseignum.
Meðal þeirra eigna sem fóru í umsýslu hjá Lindarhvoli voru hlutir í eftirtöldum félögum og sjóðum: ALMC eignarhaldsfélag ehf., AuÐur I fagfjárfestingasjóður, Bru II Venture Capital Fund, DOHOP, Eimskip hf., Eyrir Invest hf., Internet á Íslandi, Klakki ehf., Lyfja hf., Nýi Norðurturninn ehf., Reitir hf., S Holding ehf., SAT eignarhaldsfélag hf., SCM ehf., ög Síminn hf.
Loks eru í flokki framsalseigna ýmsar kröfur á einstaklinga og kröfur á 38 félög, sem falla undir persónuverndarákvæði upplýsingalaga, og gefur Lindarhvoll ekki upp hvaða eignir þetta eru nákvæmlega.
Verðmæti þessara eigna, samtals, hleypur á tugum milljarða króna.
Í stjórn Lindarhvols eru Þórhallur Arason úr fjármála- og efnahagsráðuneytingu, sem jafnframt er stjórnarformaður, Ása Ólafsdóttir, meðstjórnandi, og Haukur C. Benediksson, meðstjórnandi, en hann hefur farið fyrir Eignasafni Seðlabanka Íslands.