Íslendingum heldur áfram að fjölga í Noregi

Þrátt fyrir að íslenska krónan hafi styrkst mikið gagnvart þeirri norsku að undanförnu þá heldur Íslendingum í Noregi áfram að fjölga.

noregur.jpg
Auglýsing

Í byrjun árs í fyrra voru 9.573 Íslend­ingar skráðir til heim­ilis í Nor­egi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum norsku Hag­stof­unn­ar, en í lok árs 2010 voru þeir 5.284. Fjölg­unin nemur því 4.289 ein­stak­lingum á síð­ustu sex árum. Á milli áranna 2015 og 2016 fjölg­aði Íslend­ingum í Nor­egi um 354 ein­stak­linga eða fjögur pró­sent.

Mesta fjölg­unin hjá ungu fólki

Þrátt fyrir að gengi íslensku krón­unnar gagn­vart þeirri norsku hafi styrkst veru­lega á síð­ustu árum, þá virð­ast Íslend­ingar sækja áfram til Nor­egs eftir vinnu og betra lífi. Fjölg­unin á milli áranna 2015 og 2016 var mest hjá ungu ein­hleypu fólki, sam­kvæmt því sem lesa má út úr gögnum hag­stof­unn­ar. Ein­hleypir full­orðnir Íslend­ingar í Nor­egi voru 3.752 í byrjun árs 2016 en í þeim hópi voru 3.616 í byrjun 2015.

Tölur frá norsku hagstofunni sýna að Íslendingum hefur fjölgað jafnt og þétt í landinu á undanförnum árum. Ekkert lát virðist á fjölguninni.

Auglýsing

Úr 19 í 13

Norska krónan kostar nú rúm­lega 13 íslenskar krónur en fyrir tveimur árum kost­aði hún tæp­lega 19 krón­ur. Mörg íslensk fyr­ir­tæki hafa unnið að verk­efnum í Nor­egi, meðal ann­ars tækni­fyr­ir­tæki og verk­fræði­stof­ur, og hefur þessi geng­is­munur því minnkað fram­legð þeirra af verk­efnum sem fyr­ir­tækin hafa verið að sinna með starfs­fólki á Íslandi.

Efna­hags­dýfa í Nor­egi

Norska hag­kerfið hefur verið að glíma við efna­hagslægð sam­hliða hraðri lækkun olíu­verðs á heims­mörk­uð­um. Árið 2014 var verðið á hrá­olíu rúm­lega hund­rað Banda­ríkja­dalir á tunn­una en það fór lægst í 26 Banda­ríkja­dali í febr­úar í fyrra. Nú er það 54 Banda­ríkja­dalir og hefur því rúm­lega tvö­fald­ast á einu ári. Það telst þó enn vera í lágt, í sögu­legu til­lit­i. 

Í umfjöllun norska við­skipta­f­rétta­mið­ils­ins Dag­ens Nær­ingsliv hefur komið fram að olíu­iðn­að­ur­inn í Nor­egi þurfi að hafa verið yfir 65 Banda­ríkja­dölum til að hagn­aður skap­ist í öllum iðn­að­in­um. Norska hag­kerfið er þrátt fyrir erf­ið­leik­ana í olíu­iðn­að­inum afar sterkt. Atvinnu­leysi mælist nú 4,7 pró­sent en mest hefur það verið í ýmsum þjón­ustu­iðn­aði við olíu­fram­leiðslu. Roga­land, þar sem Stavan­ger er stærsta sveit­ar­fé­lag­ið, hefur sér­stak­lega fundið fyrir þessar nið­ur­sveiflu í olíu­iðn­að­inum en nokkuð stór hluti Íslend­inga­sam­fé­lags­ins í Nor­egi býr á því svæð­i. 

Gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri norsku hefur styrkst mikið á undanförnum árum, eins og sést á þessari mynd frá Keldunni.

Nýta olíu­auð­inn

Nor­egur er eitt allra rík­asta land heims en þessi rúm­lega fimm millj­óna þjóð á fjár­fest­inga­sjóð sem nemur tæp­lega 890 millj­örðum Banda­ríkja­dala að stærð, eða sem nemur um 98 þús­und millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur um 20 millj­ónum króna á hvern ein­asta Norð­mann. Sjóð­ur­inn á meðal ann­ars um eitt pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum í Evr­ópu, en í mars á síð­asta ári ákváðu norsk stjórn­völd að nýta 718 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 90 millj­arða íslenskra króna, til upp­bygg­ingar í norsku efna­hags­líf­i. 

Sjóð­ur­inn er rek­inn undir sjálf­stæðri stjórn, sem heyrir undir norska fjár­mála­ráðu­neytið og Seðla­banka Nor­egs, en for­stjóri hans er Yngve Slyngstad. Sjóð­ur­inn er að öllu leyti í eigu norsku þjóð­ar­inn­ar, en fjár­magnið í hann kemur frá olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu þar sem Statoil er lang­sam­lega stærsta fyr­ir­tæk­ið, en norska ríkið á 68 pró­sent hlut í því. Hagn­aður af olíu­fram­leiðslu er svo skatt­lagður upp á tæp­lega 80 pró­sent, og því fer nær allur hagn­aður af olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu í olíu­sjóð­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None