Och-Ziff Capital í miklum vanda

Fjárfestar hafa verið að flýja með peninga sína frá einu þeirra fyrirtækja sem tilkynnt var um að væri orðinn eigandi Arion banka í mars síðastliðnum.

wall-street-sign.jpeg
Auglýsing

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Och-Ziff Capi­tal Mana­gement hefur verið í miklum vanda að und­an­förnu þar sem mikið fjár­magn hefur farið úr stýr­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Fjár­festar flýja fyr­ir­tækið

Eignir fyr­ir­tæk­is­ins í stýr­ingu nema nú um 32 millj­örðum Banda­ríkja­dala, um 3.400 millj­örðum króna, en þær hafa minnkað um 22 pró­sent á aðeins einu ári, sam­kvæmt upp­gjöri félags­ins frá því í gær, vegna þess að fjár­festar hafa tekið fjár­magn úr stýr­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Sér­stak­lega hefur staða fyr­ir­tæk­is­ins versnað á fyrstu mán­uðum þessa árs en eignir í stýr­ingu hafa minnkað um 5,9 millj­arða Banda­ríkja­dala á þessu ári, sam­kvæmt til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Auglýsing

Keypti í Arion banka

Á síð­ustu mán­uðum hefur þetta fyr­ir­tæki verið tölu­vert í umræð­unni hér á landi en til­kynnt var um kaup dótt­ur­fé­lags þess, Sculptor Invest­ments s.a.r.l. á 6,6 pró­senta hlut í Arion banka í mars síð­ast­liðn­um. Fyr­ir­tækið er meðal hlut­hafa í Kaup­þingi, eftir að hafa átt kröfur í slitabú bank­ans.

Kaup­skil ehf., félagi í eigu Kaup­þings, á 57,9 pró­sent hlut í Arion banka, íslenska ríkið 13 pró­sent, vog­un­ar­sjóður í eigu Taconic Capi­tal Advis­ors 9,9 pró­sent, Attestor Capi­tal LLP 9,9 pró­sent og Gold­man Sachs 2,6 pró­sent.

Í rusl­flokk

Ekki er nóg með að rekstur Och Ziff hafi gengið mjög illa að und­an­förnu, og veikst veru­lega vegna van­trausts fjár­festa á fyr­ir­tæk­inu, þá hafa láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki stað­fest brest­ina hjá því. Dag­inn eftir að til­kynnt var um kaup þess á hlut í Arion banka, þá var láns­hæf­is­ein­kunn fyr­ir­tæk­is­ins færð niður í rusl­flokk af Stand­ard & Poor´s.

Hinn 29. sept­em­ber í fyrra var fyr­ir­tækið sektað um 213 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 25 millj­arða króna, eftir að upp komst um stór­felld lög­brot fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku. Fyr­ir­tækið mút­aði emb­ætt­is­mönnum til að hagn­ast sem mest á stöðu­tökum sín­um, meðal ann­ars í Líb­íu, Níger og Kongó. Það var dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna sem lagði sekt­ina á fyr­ir­tækið og sagði ákvörð­un­ina marka tíma­mót. Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI er enn að rann­saka hluta þess­ara glæpa, og ýmsar hliðar þeirra, ef marka má það sem fram kemur í yfir­lýs­ing­unni frá því í sept­em­ber.

Illa hefur gengið hjá einu þeirra fyrirtækja sem keypt hafa eignarhlut í Arion banka.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) er ennþá með þessa eign­ar­halds­breyt­ingu á Arion banka til skoð­un­ar, þar sem vog­un­ar­sjóða­hóp­ur­inn fyrr­nefndi breytti eign­ar­haldi sínu úr óbeinu eign­ar­haldi í beint. Meðal þess sem FME horfir til er hvort þessir telj­ist hæfir til að vera virkir eig­end­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None