Refresco selt fyrir 201 milljarða – Íslenskir fjárfestar hagnast gífurlega

Stjórn Refresco hefur samþykkt 201 milljarða króna yfirtökutilboð í félagið. Íslenskir aðilar eru stærstu einstöku eigendur Refresco, en virði hlutar þeirra hefur hækkað um marga milljarða á nokkrum mánuðum.

Auglýsing
refresco djús 25.10.2017

Fjár­fest­inga­fé­lagið PAI Partners og Brit­ish Col­umbia Invest­ment Mana­gement Cor­poration hafa sam­þykkt að kaupa hol­­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­ann Refresco fyrir 1.623 millj­ónir evra, eða 201 millj­arð króna miðað við núver­andi gengi Seðla­banka Íslands. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu kaup­enda og Refresco sem send var út í morg­un.

Salan skiptir miklu máli fyrir nokkra íslenska aðila, sem munu hagn­ast gíf­ur­lega vel á henni. Stærsti eig­andi Refresco er félagið Ferskur Hold­ing 1, sem er m.a. í eigu Stoða (áður FL Group) og Arion banka, með 14,53 pró­sent eign­ar­hlut. Sam­an­lagt er virði hlutar Fersks 29,2 millj­arðar króna.

Stoðir á beint 8,87 pró­sent í Refresco í gegnum Ferskan Hold­ing. Sá hlutur er því met­inn á 17,8 millj­arða króna sam­kvæmt hinu sam­þykkta yfir­tökutil­boði. Hlutur Stoða var met­inn á 12,7 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og 15,8 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Hann hefur því hækkað um rúma fimm millj­arða króna á tæpum tíu mán­uðum og um tvo millj­arða króna frá því í sum­ar. Hlut­hafar Stoða munu því fá mikla ávöxtun á hlut sinn.

Auglýsing

Mikil við­skipti með hluti í Stoðum fyrr á þessu ári

En hverjir eiga eig­in­lega Stoð­ir? Flestir muna eftir félag­inu þegar það hét FL Group og fór með him­in­skautum fyrir banka­hrun sem eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag banka­bólunn­ar. Þegar Glitn­ir, stærsta eign FL Group, féll þá var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslu­stöðvun og síðar í gegnum nauða­samn­inga þar sem kröfu­hafar eign­uð­ust félag­ið. Stærstur þeirra var Glitn­ir, bank­inn sem félagið hafði átt stóran hlut í.

Síð­ustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afrakst­ur­inn til kröfu­hafa.

Í dag er hlut­ur­inn í Refresco eina eft­ir­stand­andi eign Stoða. Og í vor áttu sér stað umtals­verð við­­skipti með hluti í félag­inu. Tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., eign­­uð­ust meiri­hluta í Stoð­­­um. Sam­an­lagt eiga þessi tvö félög 50,15 pró­­sent hlut. Sá aðili sem seldi þeim stærstan hlut var Glitn­ir­Holdco, félag utan um eft­ir­stand­andi eignir Glitn­is. Það félag átti yfir 40 pró­sent í Stoðum en á nú ekk­ert.

Ómögu­legt hefur verið að nálg­ast nákvæmar upp­lýs­ingar um hvert kaup­verðið var. Hvorki Stoðir né Glitn­ir­Holdco hafa viljað upp­lýsa um það. Fyr­ir­liggj­andi upp­­lýs­ingar úr fyr­ir­tækja­­skrá benda þó til þess að félögin tvö hafi greitt 4,8 millj­­arða króna fyrir 48,73 pró­­sent hlut. Miðað við það verð má ætla að  mark­aðsvirði Stoða væri um tíu millj­­arðar króna þegar við­­skiptin áttu sér stað.

Miðað við yfir­­­tökutil­­boðið  sem nú hefur verið sam­þykkt virð­ist ljóst að hóp­­­ur­inn sem keypti hlut­inn í Stoðum snemma á þessu ári, í við­­­skiptum sem litlar upp­­­lýs­ingar fást um, hefur hagn­ast mjög vel á fjár­­­­­fest­ingu sinni.

Stjórn­­­­­ar­­­menn úr TM

En hverjir eru í þessum hópi? S121 og S122 eru í eigu fjög­­­urra einka­hluta­­­fé­laga og eins skráðs félags, Trygg­inga­mið­­­stöðv­­­­­ar­inn­­­ar.  Fé­lögin fjögur heita Helg­ar­fell ehf., Esju­­­­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni. Og eig­endur þeirra voru margir hverjir lyk­il­­­menn í FLGroup á árunum fyrir hrun.

Esju­­­­borg er í 50 pró­­­­sent eigu félags sem heitir Jökla­­­­borg. Það er skráð í 100 pró­­­­sent eigu Jóhanns Arn­­­­ars Þór­­­­ar­ins­­­­son­­­­ar, for­­­­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­­­­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­­­­ur­inn í Esju­­­­borg er í eig Riverside Capi­tal SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Sam­­­­kvæmt Pana­ma­skjöl­unum er það félag í end­an­­­­legri eigu For­town Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­sted. RiversideCapi­tal á líka 2,63 pró­­­­sent hlut í Trygg­inga­mið­­­­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capi­tal ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­­­­stöðv­­­­­­­ar­inn­­­­ar. Örvar var yfir starf­­­­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­­­­þingi í níu ár.  Hann er nú umsvifa­­­­mik­ill fjár­­­­­­­fest­­­­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­­­­asta aðal­­­­fundi félags­­­­ins, se fór fram 21. apríl síð­­­­ast­lið­inn.

Einar Örn Ólafs­­­­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­­­­stöðv­­­­­­­ar­inn­­­­ar. Hann á 2,76 pró­­­­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­­­­ráðum í Stoð­­­­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­­­­­­­banka á árum áður. Hann var meðal ann­­­­ars for­­­­stöð­u­­­­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­­­­­­­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­­­­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­­­­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­­­­anum vegna trún­­­­að­­­­ar­brests. Hann er í dag umsvifa­­­­mik­ill fjár­­­­­­­fest­­­­ir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­­­­stöð­inni, að und­an­­­­skildum líf­eyr­is­­­­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6,34 pró­­­­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni á síð­­­­­­­ustu mán­uð­­­­um.Höfuðstöðvar Refresco í Hollandi. MYND: Richard Sinon.

Eig­endur Helg­ar­fells eru Björg Fen­ger, Kristín Fen­ger Ver­­­­munds­dóttir og Ari Fen­ger. Björg er eig­in­­­­kona Jóns Sig­­­­urðs­­­­son­­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­­stjóra FL Group/­Stoða. Jón tók við sem stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Stoða á síð­­­­asta aðal­­­­fundi félags­­­­ins fyrir tæpum mán­uði síð­­­­­­­an.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í S122 og S121 heitir GGH ehf.  Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­­­­lenska félags­­­­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­­­­son­­­­ar, fyrr­ver­andi fram­­­­kvæmda­­­­stjóra lög­­­­fræð­is­sviðs FLGroup) sem á eitt pró­­­­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Group­fyrir hrun og sat í stjórn félags­­­­ins.

Sam­­­­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­­­­lensk fjár­­­­­­­fest­­­­is.

Tengsl við for­­tíð­ina

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórn­­­­­­­ir. Í S121 er Gunnar Sturlu­­­­son lög­­­­­­­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­­­­starfs­­­­maður Hann­esar Smára­­­­son­­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­­stjóra FL Group, var lög­­­­­­­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­­­­kvæmda­­­­stjóri félaga í eigu Hann­es­­­­ar. Gunnar er líka í stjórn S122. Þar situr hann ásamt Þor­­­­steini M. Jóns­­­­syni, sem á árum áður var oft­­­­ast kenndur við kók. Þor­­­­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­­­­ins og tók við sem stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­­­­ráðum yfir bank­an­­­­um.

Bæði Jón Sig­­­­urðs­­­­son og Þor­­­­steinn M. Jóns­­­­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar