Kosningastjóri Trumps ákærður

Trúnaðarmenn Trumps í kosningabaráttu hans eru undir smásjá yfirvalda, og hafa tveir verið ákærðir og einn sakaður um að ljúga að FBI við yfirheyrslu.

Paul Manafort301017
Auglýsing

Fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóri fram­boðs Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta, Paul Mana­fort, hefur verið ákærður fyrir sam­særi gegn yfir­völdum í Banda­ríkj­unum og pen­inga­þvætt­i. 

Við­skipta­fé­lagi hans Rick Gates var einnig ákærður og ráð­gjafi Trumps - og áber­andi tals­maður fram­boðs hans - George Papa­dopolous, hefur einnig játað lög­brot, með því að hafa sagt alrík­is­lög­regl­unni FBI ósatt við yfir­heyrsl­ur.

Rann­sókn Mueller skilar árangri

Þetta eru fyrstu ákær­urnar sem líta dags­ins ljós, á grunni rann­sóknar sem Robert Muell­er, fyrr­ver­andi for­stjóri FBI, hefur leitt, en hann tók við stjórn­ar­taumunum í rann­sókn­inni eftir að James Comey var rek­inn sem for­stjóri FBI í miðri rann­sókn á tengslum fram­boðs Trumps við Rússa, og fleiri atrið­um.

Auglýsing



Don­ald Trump, Banda­ríkja­for­seti, brást æfur við tíð­und­unum af ákær­unum og not­aði Twitter - eins og svo oft áður - til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi. Hann beindi spjót­unum að Hill­ary Clinton og spurði hvers vegna í ósköp­unum ekki væri verið að fara á eftir henni og Demókröt­um. Hann sagði enn fremur að ákær­urnar fjöll­uðu um eitt­hvað sem gerð­ist fyrir mörgum árum og tengd­ist honum ekk­ert, en fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum hafa þegar leið­rétt það, þó ákær­urnar nú teng­ist öðru fremur tengslum Mana­fort við Úkra­ínu og Viktor Janúkovíts, fyrr­ver­andi for­seta.

Faldir sjóðir og land­ráð

Ákærunar eru í tólf lið­um, og snú­ast meðal ann­ars um að millj­ónum Banda­ríkja­dala hafi verið haldið leyndum í aflands­fé­lögum og að tengslum Mana­fort við Úkra­ínu, og hvernig hann beitti þeim, hafi verið beitt gegn hags­munum Banda­ríkj­anna.

Málin eru for­dæma­laus með öllu.

Lög­menn Mana­fort og Gates hafa vísað ákær­unum á bug, og sögðu þeir - á dramat­ískum blaða­manna­fundi fyrr í dag, þar sem stóru orðin voru ekki spöruð - að þeir hefðu ekk­ert gert af sér, og að þeir neiti stað­fast­lega sök.

Ákær­urnar snúa meðal ann­ars að því að Mana­fort hafi átt falda sjóði upp á 18 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem hann hafi notað til að njóta þess að lifa hátt, og en einnig til að borga fyrir ýmsa þjón­ustu. Sjóð­irnir voru faldir og er litið svo á, sam­kvæmt frá­sögn BBC, að með þessu hafi hann brotið gegn lögum um pen­inga­þvætti og einnig stundað sam­særi gegn Banda­ríkj­un­um. 



Verði hann fund­inn sekur getur legið við því allt að því ævi­langt fang­elsi.

Hvað er framund­an?

Sé mið tekið af umfjöll­unum AFP, Reuters, New York Times og Was­hington Post í dag, þá er fast­lega búist við að fleiri ákærur líti dags­ins ljós á grunni rann­sóknar Muell­ers. Auk þess að er búist við því að tölu vert magn af gögnum verði birt, ofan á það sem þegar hefur komið fram, sem renni stoðum undir það að fram­boð Trumps hafi verið í tengslum við rúss­nesk yfir­völd, og að Rúss­ari hafi verið að skipta sér af kosn­ing­unum með sér­tækum aðgerð­um, meðal ann­ars tölvu­árásum og her­ferðum á sam­fé­lags­miðl­um.

Tugir manna hafa verið yfir­heyrðir í tengslum við rann­sókn­ina, þar á meðal tveir synir Trumps og tengda­sonur hans, Jared Kus­hner. Þá liggur fyrir að fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Trumps til skamms tíma, Mich­ael Flynn, hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn FBI vegna tengsla hans við Rússa og Tyrki lík­a. 

Ströng við­ur­lög eru við því að starfa sjálf­stætt með öðrum ríkjum fram­hjá yfir­völd­um, og varðar það við lög um land­ráð, ef fólk er staðið að slíku.

Michael Flynn og Jared Kushner, hafa báðir verið yfirheyrðir af FBI vegna rannsóknar á tengslum framboðs Trumps við Rússa.

Þá hafa verið fram­kvæmdir tugi hús­leita, meðal ann­ars á fjár­öfl­un­ar­skrif­stofu Repúblik­ana. Þá bein­ist rann­sókn Muell­ers einnig að því upp­lýsa um hvort Rússar hafi - með sjálf­stæðum aðgerðum - reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­ana í nóv­em­ber í fyrra, sem Don­ald Trump vann, eins og kunn­ugt er.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar