Stjórnarandstöðustjórnin ólíkleg án fimmta flokksins

Viðræður standa yfir milli stjórnarandstöðuflokkanna um myndun ríkisstjórnar. Fulltrúar flokkanna hittust síðdegis. Vilji til að taka annað hvort Viðreisn eða Flokk fólksins inn í ríkisstjórn.

Sigurður Ingi Jóhannsson og Logi Einarsson eru á meðal þeirra formanna stjórnmálaflokka sem nú eiga í samtali um að mynda ríkisstjórn.
Sigurður Ingi Jóhannsson og Logi Einarsson eru á meðal þeirra formanna stjórnmálaflokka sem nú eiga í samtali um að mynda ríkisstjórn.
Auglýsing

Full­trúar Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa hist og rætt umtals­vert saman í dag og í gær um myndun rík­is­stjórn­ar. For­svars­menn Við­reisnar hafa líka verið hluti af því sam­tali að ein­hverju leyti, en þau sam­töl hafa verið óform­legri.

Innan Sam­fylk­ing­ar, Vinstri grænna og Pírata er sú skoðun ráð­andi að ekki verði hægt að mynda stjórn sem ein­ungis stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir sitji í. Það þurfi að fá Við­reisn inn í þá stjórn til að tryggja henni betri meiri­hluta, en með þeirri við­bót yrðu þing­menn stjórn­ar­innar 36 tals­ins og þing­menn stjórn­ar­and­stöðu 27. Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að Fram­sókn­ar­flokknum hugn­ist betur að hafa Flokk fólks­ins með sem fimmta flokk en Við­reisn.

Sam­mála um breiðu lín­urnar

Flokk­arnir eru flestir sam­mála um breiðu mál­efna­lín­urnar í mögu­legu sam­starfi. Þ.e. aukin fjár­út­lát í heil­brigð­is- og mennta­mál og að ráð­ast í mjög öfl­uga sókn í fjár­fest­ingum í innvið­um. Þá leggur Fram­sókn mikla áherslu á end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins og það að reynt verði að vinda ofan af sölu á hlutum í Arion banka til vog­un­ar­sjóða. Þá eru allir með­vit­aðir um að kom­andi kjara­samn­ingar verða mjög mik­il­vægir í bar­átt­unni fyrir því að við­halda því efna­hags­á­standi sem hér ríkir nú áfram.

Auglýsing

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja það skýrt frá bæði Fram­sókn­ar­flokknum og Vinstri grænum að ýta Evr­ópu­sam­bands­málum út af borð­inu. Lilja Alfreðs­dótt­ir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði það beint út í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að flokk­ur­inn muni ein­fald­lega ekki sam­þykkja slíkt. Erfitt verður fyrir Við­reisn að kyngja því en flokk­ur­inn hefur lagt áherslu á það, í óform­legum sam­töl­um, að tákn­ræn afgreiðsla á mál­inu verði hluti af stjórn­ar­sátt­mála ef flokk­ur­inn eigi að vera með.

Ákall eftir breiðri stjórn

Við­mæl­endur Kjarn­ans nefna flestir að þeir lesi nið­ur­stöðu kosn­ing­anna þannig að ákall sé eftir því að ólíkir flokkar starfi saman í breiðri rík­is­stjórn. Fimm flokka stjórn, með sterkan meiri­hluta sem teygir sig frá Vinstri grænum yfir miðj­una og að hægri-mið­flokknum Við­reisn eða jafn­vel Flokki fólks­ins sé slík stjórn.

Staðan í við­ræð­unum er þó enn við­kvæm og ljóst að mik­ill þrýst­ingur er frá flokk­unum sem utan þeirra sitja að fá Fram­sókn­ar­flokk­inn til að horfa frekar til þeirra varð­andi myndun rík­is­stjórn­ar. Í raun standi og falli myndun stjórn­ar­and­stöðu­stjórn­ar­innar með ákvörðun Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Yfir vofir því að náist ekki saman sé næsta skref að myndu rík­is­stjórn sem sé skipuð Fram­sókn, Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins, ef ekki tak­ist að ná stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum og Við­reisn eða Flokki fólks­ins sam­an. Hluti við­mæl­enda Kjarn­ans telja þetta þó inn­an­tóma hót­un. Það sé algjör­lega ljóst að hluti þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins muni aldrei geta unnið með Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni. Þar á meðal sé for­mað­ur­inn Sig­urður Ingi Jóhanns­son.

Ekki aug­ljóst hver yrði for­sæt­is­ráð­herra

Fyrir kosn­ingar bjugg­ust flestir við því að Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, væri sjálf­kjörin sem for­sæt­is­ráð­herra ef stjórn­ar­and­staðan gæti myndað rík­is­stjórn. Hún er enda vin­sæl­asti stjórn­mála­maður þjóð­ar­innar og það ríkir traust og vel­vild milli hennar og nán­ast allra ann­arra stjórn­mála­leið­toga. Sú staða er ekki jafn skýr nú og þá í ljósi þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er í raun með pálmann í hönd­un­um.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son sé því í aðstöðu til að krefj­ast þess að verða for­sæt­is­ráð­herra standi hugur hans til þess.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar