Unnið að gerð stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar

Það mun í síðasta lagi liggja fyrir á morgun, mánudag, hvort að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur verði mynduð. Byrjað er að ræða verkaskiptingu og unnið er að gerð stjórnarsáttmála.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er með stjórnarmyndunarumboðið.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er með stjórnarmyndunarumboðið.
Auglýsing

Full­trúar flokk­anna fjög­urra, sem nú reyna stjórn­ar­mynd­un, hafa unnið að gerð stjórn­ar­sátt­mála um helg­ina. Þá hafa þeir einnig rætt verka­skipt­ingu og ráð­herra­skip­an. Búist er við því að ákvörðun verði tekin á morgun um hvort að myndun stjórn­ar­innar verði eða ekki. Þeir sem taka þátt í við­ræð­un­um, for­menn og hluti þing­manna flokk­anna, fund­uðu með þing­flokkum sínum í hádeg­inu í dag til að fara yfir stöðu mála. Eftir að þeim fundum lauk var haldið áfram að funda um myndun rík­is­stjórnar og við gerð stjórn­ar­sátt­mála.

Flokk­­arnir fjórir eru Vinstri græn, Sam­­fylk­ing, Fram­­sókn­­ar­­flokkur og Pírat­­ar. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­­maður Vinstri grænna, verður næsti for­­sæt­is­ráð­herra ef flokk­­arnir fjórir ná að klára við­ræður sínar með jákvæðri nið­­ur­­stöðu. Hún fékk stjórn­­­ar­­mynd­un­­ar­um­­boð hjá for­­seta Íslands á fimmtu­dag og síðan þá hafa form­legar við­ræður staðið yfir. Fyrst fór þær fram á heim­ili Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Hruna­manna­hreppi. Þar var fundað á föstu­dag. Vinn­unni var síðan haldið áfram í Reykja­vík um helg­ina.

For­menn flokk­anna funda í kvöld til að fara yfir stöðu við­ræðn­anna. Katrín sagði við RÚV að hún ætti ekki von á því að úrslit stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðn­anna ráð­ist á fund­inum í kvöld en sagði að þar myndu við­semj­endur fara eins langt og hægt væri. Hún sagði enn fremur að það yrði að verða orðið ljóst á morgun hvort flokk­arnir mynda saman stjórn eða ekki.

Auglýsing

Áhersla lögð á stóru málin

Mál­efna­­lega hefur gengið vel að ná saman um þá hluti sem flokk­­arnir eru sam­­mála um. Þ.e. útgjalda­aukn­ingu í heil­brigð­is­­mál, stór­­sókn í mennta­­málum og mikla inn­­­spýt­ingu í fjár­­­fest­ingu í innviðum á borð við vega­­kerf­ið. Auk þess mun vænt­an­leg rík­is­stjórn setja jafn­rétt­is- og loft­lags­mál á odd­inn, beita sér fyrir því að skapa aukna sam­­stöðu um mál og beita sér fyrir breyttum vinn­u­brögðum á Alþingi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Bjarni Benediktsson, sem eitt sinn leiddu saman ríkisstjórn, munu að öllum líkindum sitja saman í stjórnarandstöðu á komandi kjörtímabili. MYND: Birgir Þór HarðarsonÁ laug­ar­dag fór mik­ill tími í að ræða um þær kjara­við­ræður sem framundan eru á vinnu­mark­aði ásamt því að ræða um kjör aldr­aðra og öryrkja.

Fyrir liggur að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill fara í gagn­gerar breyt­ingar á fjár­mála­kerf­inu og við­mæl­endur Kjarn­ans segja að það sé ófrá­víkj­an­leg krafa að hálfu flokks­ins. Þá vill flokk­ur­inn fara í aðgerðir til að draga veru­lega úr vægi verð­trygg­ing­ar. Ekki er talið að þau mál verði gerð að frá­gangs­sök að hálfu hinna flokk­anna.

Píratar munu þurfa trú­verð­uga nið­ur­stöðu í stjórn­ar­skrár­málum til að bak­land flokks­ins muni geta sætt sig við stjórn­ar­þátt­töku og er unnið að lausn á því máli. Þó liggur fyrir að til­lögur stjórn­laga­ráðs verða ekki óbreyttar grunnur að nýrri stjórn­ar­skrá hjá þess­ari rík­is­stjórn.

Evr­ópu­mál hafa í raun verið afgreidd með því að Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur sagt opin­ber­lega að flokk­ur­inn muni ekki setja það sem skil­yrði í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið á næsta kjör­tíma­bili.

Við­reisn boðar mál­efna­lega stjórn­ar­and­stöðu

Náist að klára myndun rík­­is­­stjórn­­­ar­innar þá mun meiri­hlut­inn verða skip­aður 16 konum og 16 kör­l­­um. Katrín Jak­obs­dóttir verður nær örugg­­lega for­­sæt­is­ráð­herra og aðrir for­­menn eða ígildi for­­manns, Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, Logi Ein­­ar­s­­son og Þór­hildur Sunna Ævar­s­dótt­ir, myndu sitja í stjórn­­inni.

Þá má telja nær öruggt að Lilja Alfreðs­dótt­ir, vara­­for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins, muni taka sæti í rík­­is­­stjórn­­inni en óljós­­ara er hverjir úr hinum flokk­unum myndu gera það. Ráðu­­neyt­is­­skipt­ing hefur þegar verið reifuð á ófor­m­­legum fundum flokk­anna en ekk­ert liggur end­an­­lega fyrir í þeim mál­­um. Engum dylst þó að Lilja Alfreðs­dóttir hefur mik­inn áhuga á að verða fjár­­­mála­ráð­herra.

Þá hafa Píratar þá stefnu að ráð­herrar eigi ekki að sitja á þingi. Við þá stefnu verður stað­ið. Því munu þeir þing­­menn Pírata sem setj­­­ast í rík­­is­­stjórn segja af sér þing­­mennsku og vara­­menn þeirra taka við sem þing­menn.

Í stjórn­­­ar­and­­stöðu yrðu fjórir flokk­­ar: Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn, Mið­­flokk­­ur­inn, Flokkur fólks­ins og Við­reisn. Af þeim 31 þing­­manni sem yrði í and­­stöðu yrðu átta konur og 23 karl­­ar.

Við­reisn væri eini flokk­­ur­inn í stjórn­­­ar­and­­stöðu sem væri með jafnt kynja­hlut­­fall. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, hefur þegar boðað ann­ars konar stjórn­ar­and­stöðu en tíðkast hefur hér­lend­is. Hún hefur sagt að sér lít­ist ágæt­lega á þá rík­is­stjórn sem verið sé að mynda. Flokkur hennar muni stunda mál­efna­lega stjórn­ar­and­stöðu og styðja rík­is­stjórn­ina í góðum verk­um. Við­reisn muni hins vegar ekki veita rík­is­stjórn­inni hlut­leysi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar