Sjálfstæðisflokkurinn mun fá um 166 milljónir króna í framlag úr ríkissjóði á árinu 2018 og fær mest allra flokka. Vinstri græn munu fá um 111 milljónir króna og Framsóknarflokkurinn 71 milljónir króna. Samanlagt verða framlög til ríkisstjórnarflokkanna þriggja því um 348 milljóna króna framlag úr ríkissjóði á þessu ári til standa straum að starfsemi sinni, samkvæmt útreikningum Kjarnans. Ef framlögin hefðu ekki verið hækkuð í lok desember hefðu þeir fengið 195 milljónum krónum minna. Þeir fimm flokkar sem sitja í stjórnarandstöðu fá 300 milljónir króna samanlagt samkvæmt sömu útreikningum. Án viðbótarframlagsins hefðu þeir fengið 167 milljónum krónum minna.
Líkt og Kjarninn greindi frá í gær þá var tillaga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka framlag ríkisins til stjórnmálaflokka á árinu 2018 um 127 prósent samþykkt í fjárlögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok desember. Framlög til stjórnmálaflokka áttu að vera 286 milljónir króna en verða 648 milljónir króna.
Sjálfstæðisflokkurinn fær 93 milljónum meira
Ef framlögin hefðu ekki verið hækkuð þá hefði Sjálfstæðisflokkurinn, stærsti flokkur landsins, fengið 73 milljónir króna. Þess í stað fær flokkurinn um 166 milljónir króna, eða 93 milljónum krónum meira en hann hefði annars fengið. Vinstri græn fá 111 milljónir króna en hefðu fengið 49 milljónir króna ef framlögin hefðu ekki verið hækkuð en flokkurinn fær nú 111 milljónir króna. Munurinn er 62 milljónir króna. Framsóknarflokkurinn fær 70 milljónir króna en hefði fengið 31 milljón króna ef framlögin hefðu staðið óbreytt. Munurinn er 39 milljónir króna
Tveir flokkar sem eiga sæti á Alþingi skrifuðu sig ekki á sameiginlegt erindi sem sent var til fjárlaganefndar Alþingis 18. desember síðastliðinn þar sem óskað var eftir viðbótarframlaginu. Þeir eru Píratar og Flokkur fólksins. Innra starf þeirra flokka nýtur samt sem áður góðs af hækkuninni. Píratar munu fá 60 milljónir króna í stað 27, sem er hækkun upp á 33 milljónir króna. Flokkur fólksins, sem náði í fyrsta sinn kjöri til Alþingis í kosningunum í haust, fær 45 milljónir króna en hefði fengið 20 milljónir króna ef ekki væri fyrir viðbótarframlagið. Það er hækkun upp á 25 milljónir króna.
Óskuðu eftir „leiðréttingu“
Fulltrúarnir sex sem sendu hið sameiginlega erindi eru Ásgeir Runólfsson, fulltrúi Samfylkingarinnar, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Einarsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, Svanur Guðmundsson, fulltrúi Miðflokksins, og Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Líkt og áður sagði skrifuðu hvorki Píratar né Flokkur fólksins sig á erindið.
Erindið bar yfirskriftina „Nauðsynleg hækkun opinberra framlaga til stjórnmálasamtaka“. Í því er farið fram á að framlög til stjórnmálaflokka verði „leiðrétt“.
Í greinargerð sem fylgdi erindinu segir að sú upphæð sem stjórnmálaflokkum sé ætluð á fjárlögum hafi lækkað um helming á raunvirði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar fulltrúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórnmálastarf um allt land, jafnt á sviði landsmála og sveitarstjórna, árið um kring.
Til samanburðar má nefna að dómsmálaráðuneytið hefur sagt að kostnaður vegna alþingiskosninganna á síðasta ári hafi verið rétt tæpar 350 milljónir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svipaður í ár. Stjórnmálasamtök starfa í þágu almannahagsmuna en hafa hvergi nærri bolmagn á við helstu hagsmunasamtök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfsmönnum í dag og samtals eru 13 fastráðnir starfsmenn hjá þeim átta flokkum sem eiga fulltrúa á Alþingi.
Til samanburðar má geta að Samtök atvinnulífsins eru með 30 starfsmenn, Samtök iðnaðarins 16, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfsmenn. Í þessu umhverfi er stuðningur við nýsköpun, þróun, sérfræðiþekkingu og alþjóðatengsl enginn inni í stjórnmálasamtökunum; endar ná ekki saman til að sinna grunnþörfum í rekstri stjórnmálaflokka og að uppfylla markmið laganna. Lýðræðið á Íslandi á betra skilið.“