Framlag til stjórnarflokka hækkar um 195 milljónir – hinir fá 137 milljónir í viðbót

Framlag úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka var hækkað um 362 milljónir á nýsamþykktum fjárlögum. Sjálfstæðisflokkurinn, stærsti flokkur landsins, fær 93 milljónir í hækkun. Flokkarnir sem skrifuðu ekki upp á viðbótina fá samtals 58 milljónir krónum meira.

althingi_atkvaedagreidlsa.jpg
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun fá um 166 millj­ónir króna í fram­lag úr rík­is­sjóði á árinu 2018 og fær mest allra flokka. Vinstri græn munu fá um 111 millj­ónir króna og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 71 millj­ónir króna. Sam­an­lagt verða fram­lög til rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja því um 348 millj­óna króna fram­lag úr rík­is­sjóði á þessu ári til standa straum að starf­semi sinni, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans. Ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð í lok des­em­ber hefðu þeir fengið 195 millj­ónum krónum minna. Þeir fimm flokkar sem sitja í stjórn­ar­and­stöðu fá 300 millj­ónir króna sam­an­lagt sam­kvæmt sömu útreikn­ing­um. Án við­bót­ar­fram­lags­ins hefðu þeir fengið 167 millj­ónum krónum minna.

Líkt og Kjarn­inn greindi frá í gær þá var til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­is­ins til stjórn­mála­flokka á árinu 2018 um 127 pró­sent sam­þykkt í fjár­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber. Fram­lög til stjórn­mála­flokka áttu að vera 286 millj­ónir króna en verða 648 millj­ónir króna.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær 93 millj­ónum meira

Ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð þá hefði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, fengið 73 millj­ónir króna. Þess í stað fær flokk­ur­inn um 166 millj­ónir króna, eða 93 millj­ónum krónum meira en hann hefði ann­ars feng­ið. Vinstri græn fá 111 millj­ónir króna en hefðu fengið 49 millj­ónir króna ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð en flokk­ur­inn fær nú 111 millj­ónir króna. Mun­ur­inn er 62 millj­ónir króna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fær 70 millj­ónir króna en hefði fengið 31 milljón króna ef fram­lögin hefðu staðið óbreytt. Mun­ur­inn er 39 millj­ónir króna

Auglýsing
Samfylkingin er stærst stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Hún fær 80 millj­ónir króna en hefði átt að fá 35 millj­ónir króna ef fram­lögin hefðu ekki verið hækk­uð. Mun­ur­inn er 45 millj­ónir króna. Mið­flokk­ur­inn er fær nán­ast sama fram­lag og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða 71 milljón króna í stað 31 milljón króna sem hefði fallið honum í skaut ef fram­lag til hans hefði ekki verið hækk­að. Mun­ur­inn er 40 millj­ónir króna. Við­reisn hefði fengið 20 millj­ónir króna ef fram­lagið hefði ekki verið hækkað en fá nú 44 millj­ónir króna. Mun­ur­inn er 24 millj­ónir króna.

Tveir flokkar sem eiga sæti á Alþingi skrif­uðu sig ekki á sam­eig­in­legt erindi sem sent var til fjár­laga­nefndar Alþingis 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir við­bót­ar­fram­lag­inu. Þeir eru Píratar og Flokkur fólks­ins. Innra starf þeirra flokka nýtur samt sem áður góðs af hækk­un­inni. Píratar munu fá 60 millj­ónir króna í stað 27, sem er hækkun upp á 33 millj­ónir króna. Flokkur fólks­ins, sem náði í fyrsta sinn kjöri til Alþingis í kosn­ing­unum í haust, fær 45 millj­ónir króna en hefði fengið 20 millj­ónir króna ef ekki væri fyrir við­bót­ar­fram­lag­ið. Það er hækkun upp á 25 millj­ónir króna.

Ósk­uðu eftir „leið­rétt­ingu“

Full­­trú­­arnir sex sem sendu hið sam­eig­in­lega erindi eru Ásgeir Run­­­ólfs­­­son, full­­­trúi Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, Birna Þór­­­ar­ins­dótt­ir, fram­­­kvæmda­­­stjóri Við­reisn­­­­­ar, Björg Eva Erlends­dótt­ir, fram­­­kvæmda­­­stjóri Vinstri grænna, Einar Gunnar Ein­­­ar­s­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins, Svanur Guð­­­munds­­­son, full­­­trúi Mið­­­flokks­ins, og Þórður Þór­­­ar­ins­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins. Líkt og áður sagði skrif­uðu hvorki Píratar né Flokkur fólks­ins sig á erind­ið.

Erindið bar yfir­­­­­skrift­ina „Nauð­­­syn­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­mála­­­sam­taka“. Í því er farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­mála­­­flokka verði „leið­rétt“.

Í grein­­­ar­­­gerð sem fylgdi erind­inu segir að sú upp­­­hæð sem stjórn­­­­­mála­­­flokkum sé ætluð á fjár­­­lögum hafi lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008. Nú eigi átta flokkar full­­­trúa á Alþingi. „Hver þeirra stendur fyrir eigin rekstri og á að reka virkt og ábyrgt stjórn­­­­­mála­­­starf um allt land, jafnt á sviði lands­­­mála og sveit­­­ar­­­stjórna, árið um kring.

Til sam­an­­­burðar má nefna að dóms­­­mála­ráðu­­­neytið hefur sagt að kostn­aður vegna alþing­is­­­kosn­­­ing­anna á síð­­­asta ári hafi verið rétt tæpar 350 millj­­­ón­ir, og að gera mætti ráð fyrir að hann yrði svip­aður í ár. Stjórn­­­­­mála­­­sam­tök starfa í þágu almanna­hags­muna en hafa hvergi nærri bol­­­magn á við helstu hags­muna­­­sam­tök. Flestir flokkar eru reknir með 0-5 starfs­­­mönnum í dag og sam­tals eru 13 fast­ráðnir starfs­­­menn hjá þeim átta flokkum sem eiga full­­­trúa á Alþingi.

Til sam­an­­­burðar má geta að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins eru með 30 starfs­­­menn, Sam­tök iðn­­­að­­­ar­ins 16, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi 15, ASÍ með 22 og VR 62 starfs­­­menn. Í þessu umhverfi er stuðn­­­ingur við nýsköp­un, þró­un, sér­­­fræð­i­þekk­ingu og alþjóða­­­tengsl eng­inn inni í stjórn­­­­­mála­­­sam­tök­un­um; endar ná ekki saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri stjórn­­­­­mála­­­flokka og að upp­­­­­fylla mark­mið lag­anna. Lýð­ræðið á Íslandi á betra skil­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar