Telja að afnám stimpilgjalda muni ekki auðvelda fólki að koma þaki yfir höfuðið

Bæði Íbúðalánasjóður og Samtök atvinnulífsins eru þeirrar skoðunar að afnám stimpilgjalda muni leiða til frekari verðhækkunar á húsnæði. Því muni afnám þess ekki auðvelda fleira fólki að eignast íbúð.

_abh3592_9954417613_o.jpg
Auglýsing

Íbúða­lána­sjóður telur ein­sýnt að afnám stimp­il­gjalds, sem lagt er á þegar keypt er hús­næði, muni leiða til þess að hús­næð­is­verð muni hækka. Því sé ekki víst að mark­mið frum­varps um afnám stimp­il­gjalda, sem er að auð­velda fólki að eins og frekast er unnt að eign­ast íbúð­ar­hús­næði, einkum við aðstæður á borð við þær sem nú ríkja á hús­næð­is­mark­aði“ muni nást með aðgerð­inni. Til þess að ná því mark­miði væri mark­viss­ara að útvíkka þann afslátt sem nú gildir um stimp­il­gjald vegna fyrstu kaupa, ýmist með því að auka hann enn frekar eða með því að veita vissum félags­hóp­um, sem nú eiga sér­stak­lega erfitt með að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að, sér­stakan afslátt.

Þetta kemur fram í umsögn sjóðs­ins um frum­varp um afnám stimp­il­gjalda sem átta þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks lögðu fram í des­em­ber. Umsögn­inni var skilað á þriðju­dag. Íbúð­álana­sjóður fagnar hins vegar umræðu um stimp­il­gjöld vegna íbúð­ar­kaupa.

Sam­tök atvinnu­lífs­ins skil­uðu einnig inn ítar­legri umsögn um frum­varpið og leggja til að frum­varpið verði sam­þykkt á þeim for­sendum að í því felist aðgerð sem minnkar skatt­heimtu. Þau benda þó á að það kunni að vera að frum­varpið muni ekki ná mark­miði sínu að auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næð­is. „Að­gerðir eins og þessar eru til þess fallnar að ýta undir eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði sem leiðir til verð­hækk­un­ar.“

Tvær aðrar umsagnir bár­ust Alþingi vegna frum­varps­ins, en frestur til að skila inn slíkum rann út á mánu­dag. Þær voru frá Neyt­enda­sam­tök­unum og Hags­muna­sam­tökum heim­il­anna, sem leggja til að frum­varpið verði sam­þykkt.

Flutn­ings­menn telja að stimp­il­gjaldið hækki hús­næð­is­verð

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Auk hennar eru sjö flokks­fé­lagar hennar flutn­ings­menn þess. Í því er lagt til að stimp­il­gjald vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði verði afnu­mið, en það er í dag 0,8 pró­sent af heild­ar­fast­eign­ar­mati. Sú und­an­tekn­ing er til staðar að veittur er helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða.

Auglýsing
Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að mark­mið þess sé að auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næðis og að auka skil­virkni og flæði á mark­aði með íbúð­ar­hús­næði. „Mikil þörf er á að auð­velda fólki eins og frekast er unnt að eign­ast íbúð­ar­hús­næði, einkum við aðstæður á borð við þær sem nú ríkja á hús­næð­is­mark­aði.

Þar segir enn frem­ur: „Sýnt þykir að stimp­il­gjald hafi áhrif til hækk­unar fast­eigna­verðs, dragi úr fram­boði og rýri hlut kaup­enda og selj­enda. Af fram­an­greindu má ætla að afnám stimp­il­gjalds af fast­eigna­við­skiptum muni auð­velda verð­myndun á hús­næð­is­mark­aði með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­boði sem hefur verið með minnsta móti und­an­farin ár.“

Hús­næð­is­verð hækkað um rúm­lega 90 pró­sent á sjö árum

Hús­næð­is­verð hefur hækkað mikið á Íslandi á und­an­förnum árum. Frá því í sept­em­ber 2010 og fram í nóv­em­ber 2017 hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda um tæp 93 pró­sent. Á árinu 2017 einu saman hækk­aði verðið um 13,4 pró­sent og frá byrjun árs 2016 hefur það hækkað um 30,5 pró­sent.

Und­an­farna mán­uði hefur þó dregið umtals­vert úr hækk­unum og jafn­vægi ríkt. Á milli októ­ber og nóv­em­ber lækk­aði það þeirra að segja lít­il­lega. Það var í fyrsta sinn síðan í apríl 2015 sem að vísi­talan lækk­aði á milli mán­aða.

Helsta ástæða þess að íbúða­verð hefur hækkað mikið á skömmum tíma, og erf­ið­­ara hefur verið fyrir ungt eða tekju­lágt fólk að kaupa eða leigja, er að eft­ir­­spurn er lang­­sam­­lega meiri en fram­­boð. Sam­­kvæmt grein­ingu Íbúða­lána­­sjóðs, sem gerð var fyrir aðgerð­­ar­hóp félags- og jafn­­rétt­is­­mála­ráð­herra og birt var í apr­íl, vant­aði nú þegar 4.600 íbúðir og byggja þyrfti níu þús­und íbúðir til loka árs 2018 til að ná jafn­­vægi milli fram­­boðs og eft­ir­­spurn­­ar.  

Afleið­ingin er meðal ann­ars sú að fjórir af hverjum tíu íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á þrí­tugs­aldri búa enn, eða á ný, í for­eldra­hús­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar