United Silicon verður sett í þrot í dag samkvæmt heimildum Kjarnans. Beiðni þess efnis verður skilað inn fyrir klukkan 16. Alls eru 56 starfsmenn enn að störfum hjá fyrirtækinu og það verður skiptastjóra að ákveða hvað verður um störf þeirra. Hann mun einnig þurfa að taka ákvörðun um hvort að nýtt félag verði stofnað um rekstur kísilmálmverksmiðju United Silicon í Helguvík. Það yrði þá að gera með samþykki helstu kröfuhafa félagsins, en Arion banki er þeirra langstærstur. Nokkrir íslenskir lífeyrissjóðir eru einnig í þeim hópi.
Starfsemi verksmiðjunnar var stöðvuð 1. september 2017 eftir að Umhverfisstofnun tók ákvörðun þess efnis. Óheimilt var að endurræsa ofn verksmiðjunnar nema með skriflegri heimild frá stofnuninni að loknum fullnægjandi endurbótum og ítarlegu mati á þeim.
Arion banki og lífeyrissjóðirnir sem tóku yfir United Silicon að mestu í fyrrahaust höfðu vonast til þess að hægt yrði að hefja starfsemi að nýju með því að gera úrbætur sem myndu kosta fimm milljónir evra, um 630 milljónir króna. Vonast var til að hægt yrði að selja verksmiðjuna ef svo væri.
Heimildir Kjarnans herma að til greina komi að kæra úrskurð Umhverfisstofnunar frá því á föstudag. Það verður þó skiptastjóra að ákveða slíkt eftir að United Silicon verður sett í þrot.
Sorgarsaga
United Silicon er fyrsta kísilmálmverksmiðjan sem hefur verið gangsett á Íslandi. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þáverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, setti ljósbogaofn verksmiðjunnar af stað 13. nóvember 2016. Fljótlega fór að bera á mikilli óánægju hjá íbúum í Reykjanesbæ með mengun frá verksmiðjunni. Margir fundu fyrir töluverðum líkamlegum einkennum vegna þessa. Í apríl tilkynnti Umhverfisstofnun forsvarsmönnum United Silicon að ekki yrði hjá því komist að loka verksmiðjunni vegna mengunar sem frá henni streymdi. Í kjölfarið voru veittir frestir en starfsemin var endanlega stöðvuð 1. september 2017 og framleiðsla hefur legið niðri síðan.
Áður höfðu helstu lánveitendur United Silicon, Arion banki og nokkrir íslenskir lífeyrissjóðir, tekið yfir United Silicon. Félagið óskaði eftir greiðslustöðvun í ágúst 2017 og bar fyrir sig erfiðleika í rekstri sem rekja mætti til síendurtekinna bilana í búnaði sem valdið höfðu félaginu miklu tjóni. Þá féll gerðardómur í deilu United Silicon við ÍAV hf., sem hafði tekið þátt í að reisa verksmiðjuna, í fyrrasumar. Samkvæmt honum átti United Silicon að greiða ÍAV um einn milljarð króna, sem félagið átti ekki til.
Hluthafar og kröfuhafar tapað stórum fjárhæðum
Hluthafar og kröfuhafar félagsins hafa þurft að afskrifa stórar upphæðir vegna United Silicon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 milljarða króna vegna verkefnisins. Bankinn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en útistandandi skuldbindingar nema ennþá 5,4 milljörðum, samkvæmt síðasta birta uppgjöri bankans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst reksturinn á greiðslustöðvunartímanum en hann hefur borgað um 200 milljónir króna á mánuði vegna hans, frá því greiðslustöðvunartíminn hófst í ágúst.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem fjárfesti 1.178 milljónum króna í United Silicon, hefur færð niður virði þeirra hlutabréfa og skuldabréfa sem sjóðurinn á í fyrirtækinu um 90 prósent. Um varúðarniðurfærslu er að ræða, og nemur hún rúmum milljarði króna. Sömu sögu er að segja af Eftirlaunasjóði félags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA). Þar nemur niðurfærslan einnig 90 prósentum. Lífeyrissjóð starfsmanna Búnaðarbanka Íslands (LSBÍ) fjárfestir einnig í verkefninu. Arion banki rekur alla sjóðina þrjá, starfsfólk bankans gegnir stjórnunarstöðum í þeim og þeir eru til húsa í höfuðstöðvum hans í Borgartúni.
Þá setti lífeyrissjóðurinn Festa 875 milljónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig framkvæmt varúðarniðurfærslu vegna verkefnisins.
Úttekt tilbúin i lok mars
Í september 2017 lagði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, fram beiðni á Alþingi um úttekt á aðkomu ríkisins að aðdraganda og eftirmálum þess. Fór hún fram á að Ríkisendurskoðun myndi vinna úttektina. Beiðnin var lögð fram á ný í desember.
RÚV greindi frá því fyrr í dag að Ríkisendurskoðun vinni nú að úttektinni. Í frétt á vef RÚV segir að búist sé við því að úttektin verði tilbúin í lok mars.