Stjórn Arion banka leggur til að bankinn greiði 25 milljarða króna í arð vegna síðasta árs. Arðgreiðslan er skilyrt því að Kaupþing ehf., stærsti eigandi Arion banka, muni ná að selja að minnsta kosti tvö prósent af eign sinni í bankanum fyrir 15. apríl næstkomandi. Auk þess verður lögð fram tillaga um að bankinn fái heimild til að kaupa tíu prósent af eigin bréfum fyrir allt að 18,8 milljarða króna af hluthöfum sínum. Sú heimild á líka að vera í gildi til 15. apríl.Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallar.
Tillagan verður tekin fyrir á hluthafafundi bankans sem fram fer 12. febrúar næstkomandi. Þá rennur einnig út frestur lífeyrissjóða sem boðið hefur verið að kaupa hlut í Arion banka. Heimildir Kjarnans herma að ólíklegt sé að tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóður verslunarmanna, muni kaupa í bankanum á þessum tímapunkti. Sjóðirnir voru beðnir um að gefa til kynna hvort það væri líklegt fyrir lok dags 2. febrúar síðastliðins, sem var á föstudag. Samkvæmt heimildum Kjarnans voru viðbrögðin ekki jákvæð.
Kaupþing er stærsti eigandi Arion banka með um 57 prósent hlut. Vogunarsjóðirnir Taconic Capital, Och-Ziff CapitalManagement, Attestor Capital og fjárfestingabankinn Goldman Sachs eiga samanlagt 29,59 prósent hlut í bankanum og íslenska ríkið á 13 prósent hlut.
Allt á hreyfingu næstu vikurnar
Kjarninn greindi frá því um miðjan janúar að ráðgjafar frá Kviku banka, sem ráðnir voru af Kaupþingi til að aðstoða við söluna á Arion banka í lok síðasta árs, hefðu haldið kynningar fyrir nokkra íslenska lífeyrissjóði með það fyrir augum að fá þá til að kaupa um fimm prósent hlut í bankanum hið minnsta áður en að hlutafjárútboð verður haldið. Á kynningunum voru sjóðirnir hvattir til að kaupa hlut í bankanum áður en að ársuppgjör hans verður gert opinbert. Það uppgjör mun birtast í síðasta lagi um miðjan febrúar.
Geta fengið háar bónusgreiðslur takist að selja allar eignir
Stefnt hefur verið að sölu á Arion banka í töluvert langan tíma. Kaupþing ehf., eignarhaldsfélag utan um eftirstandandi eignir þrotabús hins fallna banka, hélt á 87 prósent hlut í Arion banka eftir að gengið hafði verið frá uppgjöri milli þeirra og ríkisins í byrjun árs 2016. Og ríkið hélt áfram á 13 prósent hlut.
Í samkomulaginu við kröfuhafanna stóð líka að íslenska ríkið ætti forkaupsrétt á hlutum í Arion banka ef bankinn yrði seldur fyrir virði sem væri 80 prósent eða minna af bókfærðu eigin fé. Sömuleiðis getur ríkið geti leyst Arion banka til sín ef ekki tækist að selja hann fyrir árslok 2018.
Í ágúst 2016 var greint frá því að um 20 starfsmenn Kaupþings gætu fengið allt að 1,5 milljarða króna í bónusgreiðslur ef markmið um hámörkun á virði óseldra eigna myndi nást. Þessar bónusgreiðslur ættu að greiðast út eigi síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eignin á þeim tíma var 87 prósent hlutur Kaupþings í Arion banka. Og sú eign er enn að hluta óseld.
Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi þá verða bónusgreiðslurnar að óbreyttu greiddar út fyrir lok apríl. Þau viðskipti sem áttu sér stað með hluti í Arion banka í fyrra hafa áhrif á umfang þeirra en fyrirhugað hlutafjárútboð á eftirstandandi 57,4 prósent hlut Kaupþings mun ekki gera það.