Brynjar og Svandís telja sig ekki vanhæf til að kjósa um vantraust

Stjórnarandstaðan vill láta kjósa um vantraust á Sigríði Andersen í dag. Er með minnihluta nema nokkrir þingmenn stjórnarinnar styðji tillöguna. Stjórnarþingmenn sem tengjast Landséttarmálinu beint ætla að taka þátt. Málið allt pólitísk refskák.

Brynjar Níelsson og Svandís Svavarsdóttir ætla bæði að taka þátt í atkvæðagreiðslunni þrátt fyrir tengingar við Landsréttarmálið.
Brynjar Níelsson og Svandís Svavarsdóttir ætla bæði að taka þátt í atkvæðagreiðslunni þrátt fyrir tengingar við Landsréttarmálið.
Auglýsing

Stjórn­ar­and­staðan gerir nú sitt ítrasta til að fá það í gegn að kosið verði um van­traust á Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra í dag. Þetta herma heim­ildir Kjarn­ans. Þing­fundur mun hefj­ast klukkan 13.30. Ljóst er að riðla þarf dag­skránni eitt­hvað til að svo megi verða.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa sjö manna meiri­hluta á þingi nú þegar kosið verður um van­traust­s­til­lögu Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata á hendur Sig­ríði. Þing­flokkar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar eru með 35 menn á þingi en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir 28.

Munu Rósa og Andrés styðja van­traust­ið?

Allra augu bein­ast að þing­mönnum Vinstri grænna, þeim Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur og Andr­ési Inga Jóns­syni, sem studdu ekki myndum rík­is­stjórn­ar­innar og styðja þannig ekki rík­is­stjórn­ar­sam­starf­ið. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans von­­ast stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arnir til að þau tvö muni ekki leggj­­ast gegn van­­traust­s­til­lög­unni.

Auglýsing

Ljóst er hins vegar að það mun ekki vera nóg, til þess að fá meiri­hluta fyrir til­ög­unni þurfa fleiri þing­menn meiri­hlut­ans að sitja hjá í atkvæða­greiðsl­unni eða styðja hana.

Jafn­­vel þótt þau tvö myndu styðja van­­traust­s­til­lög­una, og öll stjórn­­­ar­and­­staðan líka, þá myndi það ekki duga til þess að fá hana sam­­þykkta. Til þess þarf lík­­­ast til tvo stjórn­­­ar­­þing­­menn til við­­bótar til að kjósa með henni. Hjá­­seta mun ekki duga.

Brynjar og Svan­dís telja sig ekki van­hæf

Þá vekur það aug­ljós­lega athygli að tveir þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar eru nátengdir því máli sem van­traust­s­til­lagan snýst um, þau Brynjar Níels­son og Svan­dís Svav­ars­dótt­ir. Brynjar er eig­in­maður Arn­fríðar Ein­ars­dótt­ur, Lands­rétt­ar­dóm­ara, sem Sig­ríður Á. And­er­sen skip­aði þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem dóm­nefnd tald­ist hæf­asta til starf­anna.

Þá er Ást­ráður Har­alds­son fyrr­ver­andi eig­in­maður Svan­dísar og barns­fað­ir, en hann er einn þeirra sem hlaut ekki emb­ætti við Lands­rétt, þegar meðal ann­arra Arn­fríður var tekin fram fyrir hann, þrátt fyrir að Ást­ráður væri tal­inn meðal þeirra hæf­ustu til að verða Lands­rétt­ar­dóm­ari. Ást­ráður vann dóms­mál gegn rík­inu í Hæsta­rétti vegna brota Sig­ríðar á stjórn­sýslu­lögum og fékk dæmdar miska­bæt­ur.

Bæði Brynjar og Svan­dís stigu til hliðar við afgreiðslu máls­ins þegar dóm­ar­arnir voru skip­að­ir, en á þeim tíma sátu þau bæði í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, vegna van­hæfis og voru hvor­ugt við­stödd atkvæða­greiðsl­una þegar greitt var um þá atkvæði í þing­inu. Nú er spurn­ing­in, munu þau vera fjar­ver­andi þegar kosið verður um van­traust­ið, sitja hjá eða kalla inn vara­menn.

Í sam­tali við Kjarn­ann segj­ast þau bæði ætla að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni nú. Brynjar seg­ist fljótt á litið enga ann­marka sjá á því og mun bara kjósa eftir sinni bestu sann­fær­ingu. „Ann­ars hef ég bara ekk­ert velt því fyrir mér, þetta er bara nýkomið en svona fljótt á litið fynd­ist mér annað frá­leitt,“ segir Brynj­ar.

Svan­dís seg­ist einnig ætla að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni. „Þetta varðar ekki skipan dóm­ara í Lands­rétt heldur van­traust á ráð­herra í rík­is­stjórn sem ég á sæti í.“

Vinstri græn þurfa að styðja Sig­ríði

Ljóst er að málið er allt saman hið erf­ið­asta fyrir Vinstri hreyf­ing­una - grænt fram­boð. Einn fyrr­ver­andi vara­þing­maður flokks­ins og fram­kvæmda­stjóri, Drífa Snædal, sagði sig úr flokknum þegar rík­is­stjórnin var mynd­uð. Við það til­efni sagði Drífa að sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn verði eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil.

„Þá verður VG í þeirri stöðu að verja sam­starfs­flokk­inn og mörkin munu sífellt fær­ast til í sam­starf­inu líkt og í ofbeld­is­sam­bandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo lengi. Með ákvörð­un­inni um stjórn­ar­við­ræður setti flokk­inn nið­ur, trú­verð­ug­leik­inn laskað­ist veru­lega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt upp­dráttar næstu árin og ára­tug­ina,“ sagði Drífa á Face­book-­síðu vinstri grænna.

Með atkvæða­greiðsl­unni er stjórn­ar­and­staðan að setja upp nokkuð klóka póli­tíska skák. Með því að efna til hennar er stjórn­ar­and­staðan að þvinga Vinstri græn til þess að veita Sig­ríði And­er­sen póli­tískt skjól og ljá henni traust sitt og póli­tískan stuðn­ing.

Komi til þess að Hæsti­rétt­ur, eða Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu þegar þar að kem­ur, kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Lands­rétt­ar­dóm­ar­arnir séu van­hæfir til að dæma við dóm­stól­inn á þeim grund­velli að Sig­ríður hafi staðið rangt að skip­un­inni er hún komin í afar þrönga stöðu - og rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir, og þá helst Vinsti græn.

Sú nið­ur­staða myndi setja íslenskt dóms­kerfi í full­komið upp­nám og veikja póli­tíska stöðu allra þeirra sem að mál­inu hafa kom­ið, og þar með talin Vinstri græn ef þau styðja Sig­ríði í atkvæða­greiðsl­unni nú.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent