Ævintýralegur vöxtur - Ísland í „miðju“ samfélagsbreytinga

Jafnvel þó að það sé farið að hægja á vextinum í ferðaþjónustu, þá er greinin orðin að burðarstólpa undir hagkerfinu. Framundan eru miklar fjárfestingar í innviðum, meðal annars til að styrkja samkeppnishæfni greinarinnar.

ferðamenn, ferðaþjónusta, suðurland, tourism 14831009322_dc79025b21_o.jpg
Auglýsing

Í nýrri skýrslu GAMMA um ferða­þjón­ust­una, sem Haf­steinn Gunnar Hauks­son hag­fræð­ingur rit­stýrði, er fjallað ítar­lega um stöðu grein­ar­innar og áhrif hennar í íslenska hag­kerf­inu.

Margir áhuga­verðir fróð­leiksmolar um stöðu grein­ar­innar koma fram í skýrsl­unni, og eru hér að neðan fimm atriði sem fjallað erum í skýrsl­unni.

8 = 60 ár Óhætt er að segja að vöxt­ur­inn á und­an­förnum sjö árum hafi verið ævin­týri lík­ast­ur. Á árunum 2008 - 2016 komu fleiri ferða­menn til lands­ins en á 60 árum þar á und­an, en heild­ar­fjöldi ferða­manna í fyrra var 2,2 millj­ón­ir. Árið 2010 komu færri en 500 þús­und ferða­menn, og því hefur fjöld­inn marg­fald­ast á skömmum tíma.

Auglýsing

Áfram­hald­andi vöxtur Þrátt fyrir þann mikla vöxt sem hefur verið á und­an­förnum árum, þá er gert ráð fyrir að hann haldi áfram á þessu ári, sam­kvæmt spá ISA­VIA. Hann verður um 11 pró­sent á þessu ár, og verður fjöld­inn þá kom­inn á milli 2,5 til 3 millj­ónir ferða­manna.

Ísland er dýrt Gengi krón­unnar gagn­vart öðrum myntum hefur styrkst mikið á skömmum tíma, og þar hefur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar spilað sína rullu. Mikið inn­flæði vegna vax­andi umsvifa í ferða­þjón­ustu hefur gjör­breytt verði þjón­ust­unnar í erlendri mynt. Á þetta er minnst í skýrsl­unni, og þar talað um margir kann­ist við ummæli ferða­manna sem kvarta yfir háu verð­lagi, jafn­vel brjál­æð­is­legu. En á sama tíma dásama þeir landið og nátt­úru þess.

Eins og hér sést, þá hefur vægi ferðaþjónustu í gjaldeyrissköpun vaxið gríðarlega.

Ungt fólk að breyta venjum Í for­mála skýrsl­unnar fjallar Ólafur Ragnar Gríms­son, fyrr­ver­andi Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.for­seti Íslands, um þær miklu breyt­ingar sem eru að verða á lifn­að­ar­háttum ungs fólks, meðal ann­ars með auknum ferða­lög­um. Nefnir hann að Ísland sé, vegna land­fræði­legrar stöðu sinni, inn í miðju þess­ara breyt­inga. Inn í fram­tíð­ina sé ferða­þjón­usta orðin að stoða­tvinnu­vegi, og mikil tæki­færi felist í því að fram­þróa hana fyrir kom­andi kyn­slóð­ir. Teng­ingar við Asíu séu á næsta leyti, sem geri það að verkum að Íslandi verði sterkur og stór tengi­punktur fólks frá Amer­íku, Evr­ópu og Asíu.

Miklar fjár­fest­ingar í píp­unum Fjallað er sér­stak­lega um þá miklu fjár­fest­ing­ar­þörf sem sé fyrir hendi vegni ferða­þjónstunn­ar. Hún liggur meðal ann­ars í stækkun Kefla­vík­ur­flug­vall­ar, en sú fram­kvæmd er þegar í gangi og heild­ar­um­fang er allt að 1,5 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 150 millj­örðum króna. Lík­legt er að einka­fjár­festar muni koma að þeirri fjár­mögn­un, en nú þegar hefur verið skrifað undir lána­samn­ing við Nor­ræna fjár­fest­inga­bank­ann. Aðrar fjár­fest­ingar eru síðan í vega­kerf­inu, en álag á því hefur auk­ist mik­ið. Sem dæmi má nefna er upp­gangur bíla­leiga, en umfang þeirra hefur vaxið hratt. Floti bíla­leigu­bíla hefur stækkað um þús­undir á hverju ári.

Stærstu bílaleigur landsins hafa vaxið hratt á undanförnum árum. Mynd: Gamma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar