Leigukakan stækkar hratt

Um 50 þúsund manns eru nú á leigumarkaði og hefur fjölgunin verið hröð, samhliða mikilli spennu á fasteignamarkaði. Sárlega vantar fleiri eignir á markað.

UnaJónsdóttir
Auglýsing

Leigj­endum hefur fjölgað um tíu þús­und á sjö árum og fjöldi þeirra nú um 50 þús­und. Það er svipuð tala og sem nemur íbúa­fjölda í Kópa­vogi og Akur­eyri sam­an­lagt, um 14 pró­sent af íbúa­fjölda lands­ins. Algengt er að hlut­fallið sé á milli 20 og 30 pró­sent erlend­is.

Að mati Íbúða­lána­sjóðs mun leigu­mark­að­ur­inn halda áfram að stækka á næstu árum, en sam­kvæmt könnun sjóðs­ins telja um 85 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði að þeir muni halda áfram að vera á honum næsta hálfa árið.

Vantar sár­lega íbúðir á mark­að­inn

Þrátt fyrir allt, telja flestir að þeir búi við húsnæðisöryggi.Fjölgun íbúða hefur engan veg­inn haldið í við fjölgun lands­manna, en í fyrra var fólks­fjölg­unin um tíu þús­und en íbúðum fjölg­aði um 1.768. Af þessum tíu þús­und voru um 8 þús­und erlendir rík­is­borg­ar­ar, en að því er fram kemur í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs eru þeir lík­legri til að leigja hús­næði frekar en kaupa.

Auglýsing

Íslend­ingar eru almennt á því að það sé óhag­stæð­ara að leigja en að búa í eigin hús­næði, en 92 pró­sent aðspurðra telja þetta vera veru­leik­ann.

Una Jóns­dótt­ir, deild­ar­stjóri leigu­mark­aðs­mála hjá Íbúða­lána­sjóði, segir í til­efni af útkomu skýrslu sjóðs­ins, þar sem staðan á leigu­mark­aði er í brennid­epli, að leigu­mark­að­ur­inn mót­ist veru­lega af þeirri stað­reynd, að of lítið sé af hús­næð­i. „Könn­unin birtir okkur þá mynd að leigu­mark­að­ur­inn glími enn við lítið fram­boð og að leigu­verð sé íþyngj­andi hjá stórum hópi fólks. Þessi staða veldur meðal ann­ars því að um 350 manns eru utan­garðs og hafa ekki fastan íveru­stað, 800 háskóla­nemar eru á bið eftir íbúð hjá Félags­stofnun Stúd­enta og 1.600 manns bíða eftir félags­legu hús­næði hjá sveit­ar­fé­lög­un­um. Þá má nefna að félags­legum íbúðum hefur fækk­að  um helm­ing frá árinu 1995. Ein afleið­ingin af skorti á hús­næði er að lægri tekju­hóp­arnir í sam­fé­lag­inu búa við lítið hús­næð­is­ör­yggi og tak­markað fjár­hags­legt svig­rúm vegna hás hús­næð­is­kostn­að­ar. Fólkið á bak­við súlu­ritin í skýrsl­unni er að stóru leyti fjöl­skyldu­fólk sem eyðir um helm­ingnum af tekjum sínum eftir skatt í leigu. Þá eru öll önnur útgjöld heim­il­is­ins eft­ir. Þessi hópur hefur í raun ekki efni á því að leigja en stritar við að borga leig­una til að missa ekki hús­næð­ið. Það hefur verið gripið til aðgerða af hálfu stjórn­valda til að hjálpa að þessum hóp. Hús­næð­is­bætur hafa verið hækk­aðar frá ára­mótum og fleiri hafa sótt um þær fyrstu þrjá mán­uði árs­ins heldur en á sama tíma­bili í fyrra,“ segir Una. 

Mark­aður ein­kennst af miklum hækk­unum

Ljóst er að hækkun leigu­verðs og lítið fram­boð hefur mest áhrif á við­horf fólks til leigu­mark­að­ar­ins. Leigu­verð hefur hækkað mikið á und­an­förnum árum, eða um 82 pró­sent frá því árið 2011. 

Það er í sam­ræmi við hækkun fast­eigna­verðs á sama tíma­bili. Þar hefur svo til allt lagst á eitt; auk­inn kaup­máttur fólks, gríð­ar­legur vöxtur í ferða­þjón­ustu og síðan of hæg upp­bygg­ing hús­næðis miðað við fólks­fjölg­un. Þá hefur ytra umhverfið einnig verið okkur hag­fellt, svo sem lágt heims­mark­aðs­verð á olíu, en það hefur þó farið hækk­andi að und­an­förnu. Verð­bólga hefur því hald­ist í skefj­um, þrátt fyrir mikla spennu í hag­kerf­in­u. 

Hún mælist nú 2,8 pró­sent á árs­grund­velli en verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent og hélst verð­bólgan undir því mark­miði í fjögur ár.

Verri fjár­hagur leigj­enda

Fjár­hags­staða leigj­enda er verri en hjá þeim sem eiga, að því er könnun Íbúða­lána­sjóðs leiðir í ljós.  Um 44 pró­sent leigj­enda segj­ast geta safnað sparifé á móti 66 pró­sent fólks sem býr í eigin hús­næði. Greiðslu­byrði vegna leigu er oftar en ekki meiri en hjá fólki sem borgar af lánum í eigin íbúð.

Erfið staða leigj­enda er helsta ástæða þess að Íbúða­lána­sjóður hefur sett sér­stakan fókus á leigu­mark­að­inn og hafið ítar­legar grein­ingar á hon­um. Vantað hefur grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um leigu­mark­að­inn en með til­komu sér­stakrar leigu­mark­aðs­deildar innan sjóðs­ins er hug­myndin að afla gagna til að geta brugð­ist við vand­anum hjá þeim sem standa verst og beint hússnæð­is­stuðn­ingi hins opin­bera á þá staði þar sem þörfin er mest.

Félagslegu húsnæði hefur fækkað á markaði.

Könnun Íbúða­lána­sjóðs um leigu­mark­að­inn fór fram í lok febr­úar og í byrjun mars. Hún var fram­kvæmd af Zenter og um var að ræða net­könn­un. Úrtakið taldi 2500 ein­stak­linga, 18 ára og eldri, og svar­hlut­fall var 58 pró­sent, að því er segir í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar