Íslensk kvikmyndatökukona fær heiðursverðlaun Þýsku kvikmyndaverðlaunanna

Birgit Guðjónsdóttir hefur verið verðlaunuð fyrir framúrskarandi störf á ferli sínum.

Birgit Guðjónsdóttir að störfum.
Birgit Guðjónsdóttir að störfum.
Auglýsing

Til­kynnt hefur verið að íslenska kvik­mynda­töku­konan Birgit Guð­jóns­dóttir hljóti heið­ursverð­laun Þýsku kvik­mynda­verð­laun­anna (Deutsche Kamer­a­preis) í ár, en þau eru veitt fyrir fram­úr­skar­andi feril við­kom­andi lista­manns.

Í umsögn dóm­nefndar um störf Birgit segir að öll verk sem hún hefur feng­ist við beri merki næmni hennar og inn­sæi og sé sama hvort hún fáist við leiknar myndir eða heim­ilda­myndir fyrir sjón­varp eða bíó­hús. „Henni fellur vel að takast á við alvöru­mál sem hún gæðir til­finn­ingum og stemmn­ing­u,“ segir þar einnig og að það sé ekki síst glöggt auga hennar fyrir mynd­bygg­ingu sem geri þetta að verk­um. „Töfrar hennar liggja ekki bara í því að taka fal­legar myndir heldur að skapa hár­fína blöndu augna­blika, afstöðu, sjón­ar­horna og hreyf­ingar mynda­vél­ar­inn­ar,“ bætir dóm­nefndin við og klykkir út með því að full­yrða að myndir hennar búi yfir „innri krafti“ sem hvetji áhorf­endur til umhugs­un­ar.

Birgit fædd­ist á Íslandi árið 1962 og er íslenskur rík­is­borg­ari. Móðir hennar var aust­ur­rísk og Birgit sótti sér menntun í Vín­ar­borg, gekk þar í lista­skóla og lærði ljós­mynd­un. Fjár­hagur hennar réð ekki við að fjár­magna kvik­mynda­nám eins og hana dreymdi um en að námi loknu gerð­ist hún sjálf­boða­liði í kvik­mynda­gerð og komst þannig inn í fag­ið.

Auglýsing

Hún hefur búið og starfað í Berlín mörg und­an­farin ár þótt starfið leiði hana víða. Á Íslandi hefur hún einnig starfað og hefur henni tek­ist að sam­eina starf sitt og áhuga á íslenska hest­in­um, en hún hefur farið í fjölda hesta­ferða um land allt og alltaf með mynda­vél­ina nær­hend­is.

Birgit Guðjónsdóttir Mynd: Aðsend

Heið­ursverð­launin eru ekki eina við­ur­kenn­ingin sem Birgit hefur hlotn­ast á ferl­in­um. Kvik­myndin Our Grand Despair sem hún gerði með tyrk­neska leik­stjór­anum Seyfi Teoman var til­nefnd á Berl­inale hát­ið­inni og Birgit fékk verð­laun fyrir kvik­mynda­tök­una á kvik­mynda­há­tíð­inni í Ist­an­bul árið 2011. Hún hefur unnið mikið með leik­stjór­anum Connie Walther og eitt af verk­efnum þeirra, sjón­varps­myndin Zapp­elp­hil­ipp, var til­nefnt til Þýsku kvik­mynda­verð­laun­anna fyrir bestu mynd og kvik­mynda­töku í þýsku sjón­varpi árið 2013, auk þess sem myndin fekk gull­verð­laun á hát­ið­inni Fipa D´Or í Biar­ritz. Sama ár fékk hún verð­laun alþjóða­sam­taka kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi (WIFTS) sem kvik­mynda­töku­kona árs­ins.

Birgit hefur á ferli sínum tekið þátt í gerð fjöl­margra mynda fyrir bíó og sjón­varp og hún er önnum kafin mann­eskja. Auk þessa að sinna kvik­mynda­gerð hefur hún um ára­bil kennt við kvik­mynda­há­skóla í Baden-Württem­berg og Babels­berg. Hún er félagi í Þýsku og Evr­ópsku kvik­mynda­aka­dem­í­unni og tók frum­kvæði að stofnun sam­taka þýsku­mæl­andi kvik­mynda­töku­kvenna, CInema­tograp­hinnen – Women Cinema­tograp­hers Network, en í þeim eru konur frá Aust­ur­ríki og Sviss, auk Þýska­lands.

Þýsku kvik­mynda­verð­launin verða afhent við hátíð­lega athöfn í húsa­kynnum sjón­varps­stöðv­ar­innar WDR í Köln 7. júlí næst­kom­andi. Þetta er í 28. skipti sem þau eru afhent og Birgit er þriðja konan sem hlýtur heið­ursverð­laun­in. Alls eru veitt verð­laun í 26 flokk­um, auk heið­ursverð­laun­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk