Amazon sýnir meiri hagnað með færri ráðningum

Vöxtur tækni- og smásölurisans Amazon hefur verið með ólíkindum en starfsmönnum fyrirtækisins fjölgaði um 225 þúsund í fyrra.

Bezos
Auglýsing

Tækni- og smá­söluris­inn Amazon kom fjár­festum á grein­endum nokkuð á óvart með því að sýna meiri hagnað á öðrum árs­fjórð­ungi en reiknað var með.

Hagn­að­ur­inn var 2,5 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 260 millj­örðum króna.

Gríð­ar­legur vöxtur í skýja­þjón­ustu Amazon, undir Amazon Web Services, er eitt af því sem skýrir betri afkomu en vöxt­ur­inn í þeirri starf­semi var um 50 pró­sent miðað við sama tíma í fyrra.

Auglýsing

Sölu­tekjur juk­ust um tæp­lega 40 pró­sent, en mark­aðs­grein­endur gerðu ráð fyrir meiri aukn­ingu enn það.

Amazon Go, verslunin í Seattle.

Mannauð­ur­inn undir smá­sjánni

Eitt af því sem skýrir góða afkomu hjá Amazon er minni vöxtur í ráðn­ingum en gert hafði verið ráð fyr­ir. Fram­legðin í rekstr­inum hefur þannig styrkst á sama tíma og rekstr­ar­kostn­aður ekki hækkað eins mikið og bæði áætl­anir og grein­ingar gerðu ráð fyr­ir.

Fjár­mála­stjóri Amazon, Brian Olsav­sky, lét hafa eftir sér þegar hann kynnti upp­gjörið, að eitt af því sem hefði skýrt betri afkomu Amazon væri end­ur­skipu­lagn­ing á starf­sem­inni. Ráðn­ingar hafa ekki verið eins tíðar og þær hafa verið und­an­farið ár, enda hefur vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins verið með ólík­ind­um, segir í umfjöllun MarketWatch.

Sam­tals starfa nú 575 þús­und manns hjá fyr­ir­tæk­inu en í fyrra bætt­ust 225 þús­und í hóp­inn. Þar af voru 90 þús­und sem til­heyra Whole Foods en Amazon keypti það fyr­ir­tæki í fyrra fyrir 13,7 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 1.500 millj­arða króna.

Í máli Olsav­sky koma fram að vöxt­ur­inn í starfs­manna­fjölda hefði verið 1,7 pró­sent á und­an­förnum þremur mán­uð­um, en í fyrra jókst fjöld­inn um 65 pró­sent.

Olsav­sky segir að end­ur­skipu­lagn­ingin á mannauði fyr­ir­tæk­is­ins hafi heppn­ast vel, og að grunn­rekst­ur­inn hafi styrkst mik­ið. Rekstr­ar­kostn­að­ur­inn hefur þó vaxið hratt sam­hliða vexti fyr­ir­tæk­is­ins í tekj­um, og jókst hann um 33 pró­sent milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi

Risi á alla kanta

Mark­aðsvirði Amazon er nú 861 millj­arður Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 90 þús­und millj­arðar króna. Til sam­an­burðar er virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í heild sinni um 750 millj­arðar króna. Þannig er Amazon nú 120 sinnum verð­mæt­ara en íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í heild. Fyr­ir­tækið er risi á alla kanta, og hefur vaxið hrað­ast allra fyr­ir­tækja í sög­unni, en það var stofnað 1994 og er með höf­uð­stöðvar í Seattle.



Rík­asti maður heims er stofn­andi og for­stjóri Amazon, Jeff Bezos. Eignir hans eru metnar á um 150 millj­arða Banda­ríkja­dala, en þær eru að miklu leyti bundnar í hluta­bréfum í Amazon. Hann á ennþá stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu, eða 17 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar