„Það er ekki sanngjarnt að almenningur sitji eftir með krónuna og kostnaðinn sem henni fylgir á meðan tiltekin fyrirtæki tryggja sig með því að gera upp í erlendri mynt og hafa aðgang að ódýru erlendu fjármagni. Krónan hefur reynst okkur dýrkeypt spaug. Horfumst í augu við það.“
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
Þar gerir hún gjaldmiðlamál þjóðarinnar að umtalsefni, og einkum skaðsemi íslensku krónunnar fyrir almenning og fyrirtæki. Í greininni segir meðal annars að töluverð óvissa sé nú uppi innan ferðaþjónustunnar og fleiri geira atvinnulífsins. Enn og aftur heyrum við fréttir um fyrirtæki sem heyja erfiða rekstrarbaráttu og undantekningarlaust er bent á orsakavaldinn, styrkingu krónunnar. „Óvissan innan ferðaþjónustunnar er mikil, bændur standa í kunnuglegri baráttu og litlar fiskvinnslur sem og nýsköpunarfyrirtæki eiga erfitt með fótfestu í þessu sveiflukennda umhverfi. Þessa sögu þekkjum við öll og höfum lifað með henni. Óvissuna sem fylgir krónunni má hins vegar sjaldan ræða nema út frá þeirri forsendu einni að við Íslendingar verðum að viðhalda núverandi gjaldmiðli. Það sé okkar eini kostur. Að betra sé að stagbæta okkar örgjaldmiðil í stað þess að horfast í augu við þann gríðarlega kostnað og áhættu sem sveiflukennd krónan er fyrir heimili, launþega og fyrirtækin í landinu,“ segir Þorgerður Katrín.
Hún segir enn fremur að vilji til breytinga sé augljóslega ekki við ríkisstjórnarborðið, og því þurfi að koma frumkvæði frá atvinnulífinu, þegar kemur að því að kalla eftir stöðugleika og betri rekstrarskilyrðum. Hún segir íslensku krónuna vera „sveiflukóng“ sem valdi tjóni fyrir almenning í landinu. „Sveiflur krónunnar, ólíkt þeirri skagfirsku, eru enginn gleðigjafi. Íslenskt atvinnulíf sem og heimili eru berskjaldaðri en aðrar þjóðir með stöðuga mynt. Ef einhver alvara er í því að vinna að langtímastöðugleika er þetta atriði sem aðilar vinnumarkaðarins ættu að koma sér saman um því hugrekkið í gjaldmiðilsmálum er ekki að finna við ríkisstjórnarborðið,“ segir Þorgerður Katrín.