Bláa lónið greiðir tæplega 4,3 milljarða í arð til eigenda

Hagnaður Bláa lónsins, samkvæmt ársreikningi sem Kjarninn hefur undir höndum, var um 3,7 milljarðar króna í fyrra. Rekstrartekjur jukust um 20 prósent á árinu. Fyrirtækið er metið á um 50 milljarða króna.

Bláa lónið
Auglýsing

Á aðal­fundi Bláa lóns­ins, sem fór fram fyrr í dag, var sam­þykkt að greiða út um 30 millj­ónir evra, alls tæp­lega 4,3 millj­arða króna í arð­greiðslu vegna frammi­stöðu síð­asta árs, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Það er næstum því tvö­falt hærri greiðsla en var greidd út á síð­asta ári í arð, þegar slík greiðsla nam 16 millj­ónum evra, eða tæp­lega 2,3 millj­arðar króna á núvirð­i. 

Í árs­reikn­ingi Bláa lóns­ins fyrir árið 2018, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, kemur fram að rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið 122,6 millj­ónir evra, um 17,4 millj­arðar króna, á síð­asta ári. Það er aukn­ing um 20 pró­sent frá árinu 2017 þegar þær voru 102,3 millj­ónir evra, eða um 14,5 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. 

Auglýsing
Alls nam hagn­aður Bláa lóns­ins á árinu 2018 26,4 millj­ónum evra, um 3,7 millj­örðum króna. Hann dróst lít­il­lega saman milli ára en hann var 31 milljón evra, um 4,4 millj­arðar króna, árið 2017. Það þýðir að arð­greiðslan sem sam­þykkt var á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins fyrr í dag er hærri en sem nemur hagn­aði Bláa lóns­ins á síð­asta ári.

Eigið féð 12,4 millj­arðar

Bláa lónið hefur vaxið hratt síð­ustu miss­eri, sam­hliða stór­auknum ferða­manna­straumi til Íslands. Eignir þess um síð­ustu ára­mót voru metnar á 157,2 millj­ónir evra, eða 22,3 millj­arða króna, og eigið fé þess var 87,8 millj­ónir evra, rúm­lega 12,4 millj­arðar króna. 

Stærsti eig­andi félags­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­ar­hlut upp á 39,1 pró­sent. Eig­andi þess er Kólfur ehf., eign­ar­halds­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmund­sen, for­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­son­ar. Kólfur keypti tæp­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, í fyrra. Sam­kvæmt þessu mun Hvatn­ing fá tæp­lega 1,7 millj­arð króna í arð­greiðslu. 

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­sjóða, sem keypti 30 pró­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­lega fimm­­földu bók­­færðu virði hlut­­ar­ins í maí síð­ast­liðn­um, eða á 15 millj­arða króna. 

Salan á hlutnum í Bláa Lón­inu fór fram eftir að Jarð­varmi slhf., félag í eigu sömu líf­eyr­is­­sjóða, hafði eign­­ast allt hlutafé í HS Orku skömmu áður. Miðað við þessi við­skipti þá er Bláa lónið metið í heild sinni á 50 millj­arða króna. Blá­varmi mun fá tæp­lega 1,3 millj­arða króna í arð­greiðslu.

Þriðji stærsti eig­and­inn með 8,7 pró­sent hlut er Keila ehf., en stærsti eig­andi þess er áður­nefnd Hvatn­ing. Arð­greiðsla þess félags mun vera um 370 millj­ónir króna. 

Fjöl­miðla­eig­endur í eig­enda­hópnum

Fjórðu og fimmtu stærstu hlut­haf­arnir er félögin Hof­garðar ehf. og Saffron ehf. með sitt hvorn 6,2 pró­sent eign­ar­hlut. Hof­garðar er eign­ar­halds­fé­lag í eigu Helga Magn­ús­son­ar. Helgi var í fréttum nýverið þegar hann keypti helm­ings­hlut í Torgi ehf., útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins. Hann er enn fremur stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins. 

Auglýsing
Saffron er í eigu Sig­urðar Arn­gríms­son­ar, sem er aðal­eig­andi sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­braut­ar. Arð­greiðsla hvors félags mun vera um 264 millj­ónir króna ef miðað er við gengi dags­ins í dag. 

Bog­mað­ur­inn ehf., félag í eigu Ágústu John­son er einnig á meðal stærstu eig­enda með 2,4 pró­sent eign­ar­hlut. Ágústa er eig­in­kona Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Arð­greiðsla Bog­manns­ins mun nema um 102 millj­ónum króna á gengi dags­ins í dag. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar