Play leitar að 1,7 milljörðum króna frá innlendum einkafjárfestum

Play er þegar búið að tryggja sér 5,5 milljarða króna lán frá breskum fjárfestingarsjóði sem á líka kauprétt á hlut í félaginu. Félagið mun byrja að selja flugmiða strax og flugrekstrarleyfi er í höfn, en það verður þegar Play hefur lokið hlutafjármögnun.

Arnar Már Magnússon, forstjóri Play, á kynningu á starfsemi félagsins á þriðjudag.
Arnar Már Magnússon, forstjóri Play, á kynningu á starfsemi félagsins á þriðjudag.
Auglýsing

Lág­far­gjalda­flug­fé­lagið Play mun byrja að selja flug­ferðir strax og flug­rekstr­ar­leyfi frá Sam­göngu­stofu fyrir starf­semi þess verður komin í hús. Vinna við öflun þess hefur staðið yfir frá því í júní og er nán­ast lok­ið. Leyfið verður gefið út þegar Play hefur lokið hluta­fjár­mögnun sinn­i. 

Play hefur þegar tryggt sér 40 milljón evra, um 5,5 millj­arða króna, láns­fjár­mögnun frá breska fjár­fest­ing­ar­sjóðnum Athene Capital, sem hefur á móti kaup­rétt á tíu pró­sent hlut í flug­fé­lag­inu. Sú fjár­mögnun er stækk­an­leg upp í 80 millj­ónir evra, um ell­efu millj­arða króna, að ákveðnum skil­yrðum upp­fyllt­u­m. 

En á þó eftir að fjár­magna 12 millj­ónir evra, tæp­lega 1,7 millj­arða króna, í eigin fé fyrir Play og Íslensk verð­bréf hafa gert einka­sölu­samn­ing við Play um að tryggja það fjár­magn. Þeir sem leggja það til munu eign­ast 50 pró­sent í Play á móti Neo ehf., félagi lyk­il­stjórn­enda þess. Hlutur beggja mun þynn­ast niður í 45 pró­sent ef Athene Capi­tal ákveður að nýta kaup­rétt sinn.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjár­­­festa­kynn­ingu sem Íslensk verð­bréfa unnu og kynntu fyrir vænt­an­­legum fjár­­­festum í Play í síð­­­ustu viku. Kynn­ing­in, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, er kirfi­­lega merkt trún­­að­­ar­­mál.

Leita að einka­fjár­festum

Í kynn­ing­unni segir að Íslensk verð­bréf muni stofna sam­lags­hluta­fé­lag um fjár­fest­ing­una í helm­ings­hlutnum í Play og 2 stjórn­ar­menn af 5. Breski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn mun skipa einn stjórn­ar­mann og Neo ehf. mun skipa tvo. Þar kemur einnig fram að fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn TFII slhf., sem er í stýr­ingu hjá Íslenskum verð­bréf­um, sé áhuga­samur um að leggja til að minnsta kosti tíu pró­sent af þeirri upp­hæð sem vantar í verk­efn­ið.

Auglýsing
Neo er í eigu Arn­ars Más Magn­ús­son­ar, for­stjóra Pla­y og ann­arra lyk­il­starfs­manna. Þeir eru ­Sveinn Ingi Stein­þór­s­­­­son, sem verður fjár­­­­­­­mála­­­­stjóri, Bogi Guð­­­­munds­­­­son, sem mun halda utan um sölu-, mark­aðs- og lög­­­­fræð­is­við­ið, og Þóróddur Ari Þór­odds­­­­son, sem verður meið­eig­andi.

með fyr­ir­vara um sam­þykki hags­muna­ráðs og stjórn­ar, þar sem stjórn­endur sjóðs­ins telji verk­efnið vera nægi­lega arð­bært að teknu til­liti til áhættu.

Í kynn­ing­unni stendur enn fremur að þar sem tímara­mm­inn fyrir söfnun hluta­fjár sé stutt­ur, og fjár­hæð­in, um 1,7 millj­arðar króna, sé frekar lág, þá sé frekar leitað til einka­fjár­festa og fjár­fest­inga­fé­laga. „Líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög eru lík­lega ekki svig­rúm til að taka svona fjár­fest­inga­á­kvörðun nægi­lega hratt þó svo að slíkir aðilar væru ákjós­an­legir fjár­festar í svona þjóð­hags­lega hag­kvæmu verk­efn­i.“

Í kynn­ing­unni er miðað við að fjár­­­­­festar sem komi inn í félagið í upp­­­hafi muni geta fengið 12 til 13 földun á fjár­­­­­fest­ingu sína á innan við þremur árum, gangi áætl­­­­­anir félags­­­ins eftir og að gefnum for­­­sendum fyrir verð­mati.

Auglýsing
Mögu­legar leiðir út úr fjár­­­fest­ing­unni, svo­­kall­aða „ex­it“, eru sagðar vera: Bein sala á félag­inu, sam­runi við annað félag í svip­uðum rekstri, arð­greiðslur sem borgi upp fjár­­­fest­ing­una eða skrán­ing á mark­að.

Áætla að Play verði verð­­mæt­­ara en Icelandair

Kjarn­inn greindi frá því í gær­­kvöldi að áform Play gerðu ráð fyrir því að innan þriggja ára verði félagið komið með tíu flug­­­vélar í rekstri og að verð­mið­inn á félag­inu, miðað við rekstr­­­ar­hagnað fyrir fjár­­­­­magnsliði og afskriftir (EBID­T.) upp á 100 millj­­­ónir Banda­­­ríkja­dala, eða um 12,5 millj­­­arða króna, geti numið um 630 millj­­­ónum Banda­­­ríkja­dala, eða sem nemur um 78 millj­­­örðum króna, í lok árs 2022. 

Til sam­an­­­burðar er Icelanda­ir, með verð­miða upp á 40,7 millj­­­arða króna, miðað við verðið eins og það var við lokun mark­aða í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar