Fallið frá því að hækka gjöld á sjókvíaeldi um mörg hundruð milljónir á ári

Til stóð að auka gjaldtöku á þau fyrirtæki sem stunda sjókvíaeldi á Íslandi strax á næsta ári. Þegar gjaldtakan yrði að fullu komin til áhrifa átti hún að skila 800 milljónum á ári í nýjar tekjur. SFS mótmælti hækkuninni og nú hefur verið hætt við hana.

Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og mun mæla fyrir nefndaráliti meirihluta hennar.
Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og mun mæla fyrir nefndaráliti meirihluta hennar.
Auglýsing

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, hefur ákveðið að fresta auk­inni gjald­töku á fisk­eldi í sjó­kvíum um ótil­greindan tíma. Gjald­ið, eftir hækk­un­ina, átti að skila rík­is­sjóði 1,5 millj­arði króna í tekjur á næsta ári, sem er um 450 millj­ónum krónum meira en sjó­eld­is­­­fyr­ir­tækin hefðu ann­­­ars greitt í rík­­­is­­­sjóð 2021. Tekju­­­auki rík­­­is­­­sjóðs átti að verða 650 millj­­­ónir króna á árinu 2024 og 760 millj­­­ónir króna árið 2025. Þegar aðlögun fyr­ir­tækj­anna að gjald­tök­unni átti að vera lokið árið 2026 átti fisk­eld­is­gjaldið að verða um 800 millj­­­ónum krónum hærra en ef gjald­hlut­­­fallið hefði ekki verið hækkað og við­mið­un­­­ar­­­tíma­bil­inu ekki verið breytt. 

Nú er ljóst að hækkun á gjald­inu verður hið minnsta ekki inn­heimt að óbreyttu á næsta ári, sem sparar þá sjó­eld­is­fyr­ir­tækjum 450 millj­ónir króna á því ári frá því sem áður stóð til að inn­heimta. 

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans um breyt­ingar á tekju­­­band­ormi sem fylgir fjár­­­laga­frum­varpi næsta árs er þessi ákvörðun rök­studd með því að þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mælti fyrir hækkun af gjald­töku af fisk­eldi í sept­em­ber síð­ast­liðnum hefði verið gert ráð fyrir því að stefnu­mótun um fisk­eldi yrði lengra á veg kom­in. „Gert var ráð fyrir að skýrsla Boston Consulting Group um fram­tíð­ar­mögu­leika í lagar­eldi og skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um fram­kvæmd laga­setn­ingar og fram­kvæmd laga um fisk­eldi myndu liggja fyrir áður en frum­varpið yrði afgreitt. Í skýrslu­gerð Boston Consulting Group var við­haft víð­tækt sam­ráð við grein­ina og aðra hag­hafa. Þar sem þessar skýrslur hafa ekki borist telur meiri hlut­inn rétt­ara að fresta þeirri breyt­ingu á gjald­tök­unni sem er lögð til. Þannig fæst gleggri mynd af gjald­töku hér­lendis og í sam­an­burð­ar­lönd­um. Þannig gef­ist einnig frekara ráð­rúm til að ákvarða rétt­látt gjald fyrir afnot af sam­eig­inlegri auð­lind.“

Í sam­ræmi við aðfinnslur SFS

Rök­semdir meiri­hlut­ans eru í takti við aðfinnslur Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem gæta hags­muna fisk­eld­is­fyr­ir­tækja, sem settar voru fram í umsögn þess um band­orm­inn. 

Auglýsing
Sam­tök sögðu að gjald­hækk­unin væri bæði ótíma­­bær og óhóf­­leg og vís­uðu í að yfir stæði ýmis konar vinna og stefn­u­­mótum um fisk­eldi, meðal ann­ars hjá Boston Consulting Group. Afurð þeirrar vinnu væri óljós á þessu stigi. „Ljóst er þó að ekki er loku fyrir það skotið að ráð­ist verði í viða­­miklar breyt­ingar á lagaum­hverfi fisk­eldis með ófyr­ir­­sjá­an­­legum afleið­ingum fyrir rekstr­­ar­um­hverfi fisk­eld­is­­fyr­ir­tækja. Að mati sam­tak­anna er veru­­lega óábyrgt og ótíma­­bært að boða áform um veru­­lega gjald­hækkun á sama tíma og atvinn­u­­greinin stendur frammi fyrir heild­­stæðri úttekt og stefn­u­­mót­un­­ar­vinn­u.“ 

Þau gerðu einnig athuga­­semd við að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við SFS við und­ir­­bún­­ing skatta­hækk­­un­­ar­inn­­ar. „Til þess að sátt geti ríkt um gjald­­töku af fisk­eldi er mik­il­vægt að sam­ráð sé haft við hag­að­ila í við­kom­andi atvinn­u­­grein áður en áform af þessu tagi eru kynnt opin­ber­­lega.“

Nefndin breytti líka síð­ast án útskýr­ingar

Gjalda­hækk­unin átti sér nokk­urra ára aðdrag­anda. Kjarn­inn greindi frá því í sept­em­ber að þegar frum­varp til laga um töku gjalds vegna fisk­eldis í sjó og fisk­eld­is­­­sjóðs var lagt fram í mars 2019 af Krist­jáni Þór Júl­í­us­­­syni, þáver­andi sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ráð­herra, var skrifað að fjár­­­hæð gjalds­ins ætti að vera 3,5 pró­­­sent af  nýjasta 12 mán­aða með­­­al­tali alþjóð­­­legs mark­aðs­verðs á Atl­ants­haf­s­­­laxi fyrir ákvörð­un­­­ar­dag.

Þegar meiri­hluti atvinn­u­­­vega­­­nefndar skil­aði nefnd­­­ar­á­liti sínu um frum­varpið lagði hann til breyt­ing­­­ar­til­lögu sem í fólst að við­mið­un­­­ar­­­tími gjalds­ins ætti ekki lengur að vera nýj­­­ustu 12 mán­aða með­­­al­­­tal alþjóð­­­legs mark­aðs­verð, heldur að hann ætti að vera „frá ágúst til októ­ber“. 

Í nefnd­­­ar­á­lit­inu er þessi breyt­ing ekk­ert útskýrð, en heims­­­mark­aðs­verð á eld­is­­­fiski er að jafn­­­aði lágt á því tíma­bili sem not­­­ast var við til að ákvarða gjaldið sem greiða átti í rík­­­is­­­sjóð. Breyt­ingin sem atvinn­u­­­vega­­­nefnd lagði til lækk­­­aði því greiðslur þeirra fyr­ir­tækja sem stunda sjó­kví­a­eldi í rík­­­is­­­sjóð. 

Meiri­hlut­ann í nefnd­inni mynd­uðu þing­­­menn stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna þriggja ásamt þing­­­mönnum Mið­­­flokks­ins.

Dug­aði ekki fyrir útgjöldum

SFS lögð­ust líka hart gegn sam­­þykkt frum­varps­ins árið 2019. Í umsögn þeirra sagði meðal ann­­ars að hug­­myndir um skatt­lagn­ingu væru ótíma­­bærar og að ætla mætti „að mark­mið stjórn­­­valda um auknar tekjur af lax­eldi náist fyrst og fremst með því að gæta að svig­­rúmi grein­­ar­innar til fjár­­­fest­ingar svo hún geti haldið áfram að vaxa og verði arð­­bær. Það er eina rétt­láta og skyn­­sam­­lega leiðin að settu marki. Van­hugsuð laga­­setn­ing sem hér er boðuð getur haft mjög nei­­kvæðar afleið­ingar í för með sér - sér í lagi þegar um er að ræða atvinn­u­­grein á við­­kvæmu stigi upp­­­bygg­ing­­ar.“

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.

Frum­varpið var samt sem áður sam­­þykkt og álagn­ingin lagð­ist á frá 1. jan­úar 2020. Sam­­kvæmt fjár­­laga­frum­varpi þess árs var reiknað með að gjaldið myndi skila 134 millj­­ónum króna í rík­­is­­sjóð á árinu 2020. Þar kom einnig fram að til stæði að leggja 175 millj­­ónir króna í að bæta stjórn­­­­­sýslu, eft­ir­lit og heil­brigð­is­­­kröfur í fisk­eldi á því ári, eða 41 millj­­ónum króna minna en lög­­­fest gjald­­taka vegna fisk­eldis átti að skila í rík­­is­­kass­ann.

Tvenns konar breyt­ingar sem átti að inn­leiða

Gjaldið sem um ræðir leggst á þá rekstr­­ar­að­ila sem stunda sjó­kví­a­eldi. Aðrir sem stunda fisk­eldi, t.d. á landi, eru und­an­þegnir gjald­inu. Þegar lögin um gjald­tök­una voru sett var sam­­þykkt að veita þessum aðilum aðlögun að því að greiða fullt gjald. Á næsta ári munu sjó­eld­is­­fyr­ir­tækin greiða 4/7 af því hlut­­falli reikn­i­­stofns­ins sem þeim mun frá árinu 2026 vera gert að greiða að fullu. 

Auglýsing
Í fjár­­laga­frum­varpi árs­ins 2023, sem lagt var fram í sept­em­ber, voru til­­­teknar tvær megin breyt­ingar á verð­­mæta­gjaldi vegna sjó­kví­a­eld­­is. Ann­­ars vegar er gjald­hlut­­fallið hækkað úr 3,5 í fimm pró­­sent og hins vegar var við­mið­un­­ar­­tíma­bil gjalds­ins fært nær í tíma. Nánar til­­­tekið var því breytt þannig að nú er miðað við alm­an­aks­árið, en ekki ágúst, sept­­em­ber og októ­ber. Báðar breyt­ing­­arnar áttu að gera það að verkum að inn­­heimt gjald myndi hækk­a og þegar þær væru að fullu inn­leiddar árið 2026 myndu tekjur rík­is­sjóðs aukast um 800 millj­ónir króna á ári.  

Nú hefur meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar fallið frá þessum breyt­ing­um.

Kostar mikið í Nor­egi en er frítt á Íslandi

Á Íslandi er eng­inn auð­linda­skattur lagður á eldi. Hér á landi kosta fram­­leiðslu­­leyfi og lax­eld­isk­vóti sem fram­­leið­endur fá frá íslenska rík­­inu ekk­ert. Í nýlegri umfjöllun Stund­­ar­innar er rifjað upp að árið norsk lax­eld­is­­fyr­ir­tæki, sem hafa fram­­leiðslu­­leyfi fyrir 65 þús­und tonnum hér á landi, hefðu þurft að greiða 169 millj­­arða króna fyrir þau leyfi í Nor­egi.

Rík­­is­­stjórn Nor­egs til­­kynnti 28. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn að hún ætli að leggja auð­linda­skatt á eld­is­­fisk. Sam­­kvæmt til­­lögum á hann að vera 40 pró­­sent af tekjum að frá­­­dregnum útgjöldum við að afla tekn­anna, sem er til að mynda fjár­­­fest­inga­­kostn­að­­ur. Búist er við að skatt­­tekjur vegna þessa verði um 50 millj­­arðar íslenskra króna á næsta ári en um er að ræða við­­bót­­ar­­tekjur fyrir norska rík­­is­­sjóð­inn, þar sem um nýjan skatt­­stofn er að ræða.

Í ann­arri frétt Stund­­ar­innar sem birt var nýverið var haft eftir Kjartan Ólafs­soni, stjórn­­­ar­­for­­manni Arn­­ar­­lax, að afleið­ingar skatt­heimtu á eld­is­­laxi í Nor­egi minntu á upp­­haf Íslands­­­byggð­­ar. Þar átti hann við að norsk lax­eld­is­­­fyr­ir­tæki séu að flýja skatt­heimt­una þar í landi og komi til Ís­lands í leit að hag­­­stæð­­­ara skattaum­hverfi fyri iðn­­­að­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar