Hagar á tímamótum - stefnubreyting í arðgreiðslum

hagar.jpg
Auglýsing

Smá­söluris­inn Hag­ar, sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bón­uss og Hag­kaup, hefur átt góðu gengi að fagna síðan fyr­ir­tækið var skráð á markað í lok árs 2011. Skrán­ingin mark­aði upp­hafið á end­ur­reisn hluta­bréfa­mark­að­ar­ins eftir hrun­ið, en hann hrundi nær alveg til grunna með falli bank­anna haustið 2008. Frá skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á markað hefur fyr­ir­tækið greitt hlut­höf­um, að stórum hluta ­ís­lenskum líf­eyr­is­sjóð­um, 2,4 millj­arða króna í arð.

Mikil ávöxtun hluta­fjár



Óhætt er að segja að fjár­festar hafi fengið góða ávöxtun á féð sem fór í hluta­bréf í Högum við upp­hafi skrán­ing­ar, en skrán­ing­ar­gengi félags­ins var 13,5 en gengi bréfa félags­ins í lok dags á föstu­dag, ríf­lega þremur árum eftir skrán­ing­una er 42,3. Fyr­ir­tækið hefur lítið breyst á þessum tíma en Finnur Árna­son for­stjóri hefur sagt, að meg­in­mark­miðið hjá fyr­ir­tæk­inu sé að við­halda góðri afkomu af kjarna­starf­semi. Fá fyr­ir­tæki á Ísland, ef þá nokk­ur, eru í jafn miklum við­skiptum við almenn­ing og Hagar þegar kemur að nauð­synja­vörum ýmis kon­ar, og gefur rekstur þess ákveðna mynd af því hvernig neysla Íslend­inga er að þró­ast.

Í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu, sam­hliða upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung rekstr­ar­árs­ins 2014 til 2015, má greina stefnu­breyt­ingu einkum þegar kemur að arð­greiðslu­stefnu. Grein­ing Arion banka fer í gegnum þessar upp­lýs­ingar í nýrri grein­ingu til við­skipta­vina sinna, í til­efni af fyrr­nefndu upp­gjöri, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Fyr­ir­tækið er upp við vegg þegar kemur að vaxt­ar­mögu­leikum á mark­aði, svo að segja, þar sem vaxta­mögu­leikar eru tak­mark­að­ir. Erfitt að sjá að hvernig fyr­ir­tækið á að geta vaxið meira, og raunar frekar spurn­ing hvernig fyr­ir­tæk­inu á eftir að takast að halda mark­aðs­hlut­deild í vax­andi sam­keppni, ekki síst ef alþjóð­legi versl­un­ar­ris­inn Costco opnar verslun hér á landi síðar á árinu, eins og fram hefur komið stefnt sé að. Þá er sam­keppni við erlenda verslun sífellt að harðna, ekki síst með auk­inni vef­verslun lands­manna.

bonuss

Auglýsing

Tekjur aukast lítið eitt



Tekjur félags­ins á síð­asta árs­fjórð­ungi námu 18,4 millj­örðum króna, en á sama tíma­bili ári fyrr námu þær tæp­lega átján millj­örð­um. Það er meiri vöxtur en spár höfðu gert ráð fyr­ir, en nemur þó ekki nema 0,6 pró­sentum að teknu til­liti til verð­bólgu á tíma­bil­inu. Heild­ar­tekjur Haga á rekstr­ar­ár­inu 2014 til 2015 eru áætl­aðar 77,3 millj­arðar króna, sam­kvæmt spá Arion banka, en þær námu 76,1 millj­arði á síð­asta rekstr­ar­ári. Rekstur Haga hefur verið stöð­ugur eftir að félagið var skráð á mark­að, og skil­aði tæp­lega fjög­urra millj­arða króna hagn­aði á síð­asta heila rekstr­ar­ári, en spá gerir ráð fyrir lítið eitt meiri hagn­aði á yfir­stand­andi ári, eða ríf­lega fjög­urra millj­arða króna hagn­aði.

Stefnu­breyt­ing í arð­greiðslum



Í grein­ingu Arion banka á stöðu Haga kemur fram að stjórn félags­ins muni fyrir næsta aðal­fund kynna breyttar áherslur til að koma fjár­magni til hlut­hafa í ljósi þess að núver­andi skulda­staða félags­ins (NI­BD/T12M EBITDA er 0,25) gefi til­efni til áherslu­breyt­inga.

„Upp­haf­leg arð­greiðslu­stefnu mun þó áfram vera óbreytt og mun taka til sömu fjög­urra meg­in­þátta. Áherslan hefur einna helst verið á nið­ur­greiðslu skulda ásamt fast­eigna­kaupum að ein­hverju leyti, því má velta fyrir sér að með áherslu­breyt­ing­unni verði í auknum mæli horft til hinna tveggja þátta arð­greiðslu­stefnu félags­ins, þ.e. arð­greiðslna og eða kaupa á eigin bréf­um,“ segir í grein­ingu Arion banka.

Þrír stærstu hlut­hafar Haga eru Gildi líf­eyr­is­sjóð­ur, með tæp­lega 11 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins með 8,75 pró­sent hlut og Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna með 8,18 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóðir lands­manna eiga sam­an­lag­t ­meira en helm­ing alls hluta­fjár í smá­söluris­an­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None