Viðmiðunarverð á bensíni hefur nú lækkað skarpt tvo mánuði í röð og er 315,2 krónur á lítra. Það er 26,7 krónum lægra en það var um miðjan júlímánuð. Verðið hefur því lækkað um 7,8 prósent frá þeim tíma. Viðmiðunarverðið hækkaði viðstöðulaust milli mánaða framan af ári. Einu skiptin sem það hefur lækkað er milli júlí og ágúst og nú milli ágúst og september.
Verðið í júlí var það hæsta sem það hefur nokkru sinni verið í krónum talið, eða 341,9 krónur á lítra. Það hafði þá hækkað um 71 prósent á tveimur árum og um 28 prósent frá því í janúar. Uppreiknað miðað við þróun vísitölu neysluverðs á bensínlítrinn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en það náðist í apríl 2012.
Þetta má lesa út úr nýjustu bensínvakt Kjarnans.
Innkaupaverð olíufélaga lækkað um þriðjung
Verðlækkunin er þó ekki í neinum takti við þá þróun sem hefur orðið á heimsmarkaði með olíu, en heimsmarkaðsverðið á tunnu af hráolíu hefur lækkað um tæplega 30 prósent síðan í júní. Á sama tíma hefur verðið lækkað um 7,5 prósent hérlendis.
Olíufélögin farin að taka meira til sín
Þetta þýðir að olíufélögin eru að taka meira til sín í álagningu af hverjum seldum lítra en þau gerðu fyrr á þessu ári. Hlutur þeirra er nú 65,08 krónur og hefur ekki verið hærri í krónum talið síðan í apríl 2020. Alls taka olíufélögin nú til sín tæplega 21 prósent af söluandvirði hvers selds lítra. Til samanburðar tóku þau til sín 48 krónur í júlí, eða 14 prósent af hverjum seldum lítra. Hlutur olíufélaganna í krónum talið hefur rúmlega tvöfaldast frá því í maí síðastliðnum, þegar 31,24 krónur af hverjum seldum lítra fór til þeirra.
Að hluta til má skýra þessa breytingu með því að olíufélögin voru ekki að velta hækkunum á heimsmarkaðsverði að fullu út í verðlagið framan af ári. Með því héldu þau að einhverju leyti aftur af hækkunum og minnkuðu hagnað sinn af eldsneytissölu. Þetta hefur breyst síðustu mánuði. Samhliða því að innkaupaverðið hefur lækkað hafa olíufélögin kroppað til baka þá álagningu sem þau gáfu eftir fyrr á árinu 2022.
Álögur ríkisins hækka á næsta ári
Hlutur ríkisins í hverjum seldum bensínlítra, sem samanstendur af virðisaukaskatti, almennu og sérstöku bensíngjaldi og kolefnisgjaldi er nú 150,41 krónur á hvern lítra af seldu bensíni og fer lækkandi í krónum talið en hlutfallslega hækkandi. Það þýðir að 47,7 prósent af hverjum lítra fer í ríkissjóð.
Bifreiðareigendur geta búist við því að greiða meira í ríkissjóð á næsta ári en þeir gera í ár. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs er áætlað að tekjur ríkissjóðs vegna vörugjalda af ökutækjum aukist um 2,7 milljarða króna og verði 8,2 milljarðar króna á næsta ári.
Vörugjöld af bensíni aukast um 440 milljónir króna milli ára og verða 9,3 milljarðar króna, kolefnisgjöld aukast um 560 milljónir og verða 7,5 milljarðar króna og olíugjaldið eykst um tæpan milljarð króna og verður rúmlega 13,5 milljarðar króna.
Kílómetragjald mun skila rúmlega 1,6 milljarð króna í ríkissjóð og bifreiðagjöld 10,6 milljörðum króna.
Gögn og aðferðafræði
Hér að ofan er birt niðurstaða útreikninga og áætlunar á því hvernig verð á lítra af bensíni skiptist milli aðila í framsetningu GRID.
- Viðmiðunarverð er fengið frá hugbúnaðarfyrirtækinu Seið ehf. sem meðal annars heldur úti síðunni Bensínverð.is og fylgst hefur með bensínverði á flestum bensínstöðum landsins daglega síðan 2007. Miðað er við næstlægstu verðtölu í yfirlitinu til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíufélagsins en reikna má með að raunin sé meðaltalið af öllu seldu bensíni á landinu.
- Hlutur ríkisins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlutfallslegir. Upplýsingar um breytingar á skattalögum eru fengnar frá Viðskiptaráði sem fylgst hefur með slíkum breytingum um árabil.
- Líklegt innkaupaverð er reiknað útfrá verði á bensíni til afhendingar í New York-höfn í upphafi mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands. Í þessum útreikningum kann að skeika nokkru á hverjum tímapunkti vegna lagerstöðu, skammtímasveiflna á markaði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bensíni til afhendingar í Rotterdam, en verðupplýsingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagnaveitum. Mismunur á verði í New York og Rotterdam er þó yfirleitt mjög lítill.
- Hlutur olíufélags er loks reiknaður sem afgangsstærð enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar. Hafa ber í huga að þar sem viðmiðunarverð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill einhverju hærri sé litið til heildarviðskipta með bensín á Íslandi.
Verðupplýsingar miðast við verðlag hvers tíma. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega í kringum 15. hvers mánaðar. Fyrirvari er gerður um skekkjumörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreiknaða liði. Ábendingar um villur, lagfæringar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarninn.is og er tekið fagnandi.